608. - Auðvitað eru bloggarar bloggurum verstir

Ég hef sjaldan skrifað eins langa athugasemd á blogg eins og í gær hjá Sigurði Þór Guðjónssyni. Hann var að hallmæla blogginu eins og hann gerir oft og ég reyndi að bera svolítið í bætifláka fyrir það og held því kannski áfram hér eftir nennu.

Alltaf eru einhverjir sem halda framhjá blogginu. Eiður Guðnason gerði það um daginn. Heldur víst að það sé eitthvað merkilegra að skrifa grein í Moggann. Segi svona. Auðvitað lesa fleiri Moggagreinina hans en bloggið. Skil þetta vel. Ef mönnum líður sæmilega vel með sín skrif þá sé ég ekki að það skipti miklu máli um hvað er skrifað né hvar. Gott samt að hafa aðgang að því ef maður skyldi hafa áhuga. Mín vegna má Sigurður Þór skrifa eins og hann vill um veðrið. Ég les það stundum. Finnst ég samt ekki vera neitt skyldugur til þess. Það er ég einn sem ákveð hvað ég les af bloggum.

Ég fylgist yfirleitt með Vilhjálmi Erni Vilhjálmssyni fornleifafræðingi í danaveldi þó sumum finnist hann ekki skemmtilegur. Fyndið fannst mér þegar einhver var í athugasemdum að kalla hann vinstrisinnaðan. Hann var einmitt eitthvað að agnúast út í Eið Guðnason. Þess vegna minnist ég á hann hér.

Það sem ég hef einkum áhyggjur af í sambandi við mína eigin bloggnáttúru er að ég er sífellt að festast meira og meira á Moggablogginu þó ég viti mætavel að prýðilega og forvitnilega er bloggað víða annars staðar. Moggamenn reyna líka eins og þeir geta að hlaða undir einhverja samkenndartilfinningu meðal sinna bloggara og vilja um leið stjórna hvernig bloggið er hjá sér.

Með því að Moggabloggast erum við auðvitað að auglýsa Moggaræfilinn sem er á hausnum eftir því sem sagt er. Ég veit að ég er í vinnu hjá Moggamafíunni án þess að fá nokkuð borgað fyrir það. Þjónustan er bara góð hjá þeim og meðan mér býðst ekki jafngóð eða betri ókeypis þjónusta annars staðar held ég áfram að blogga hér. Á sama hátt og Sigurði Þór finnst ekkert blogg vitrænt nema veðurblogg þá þykir mér skemmtilegast að blogga um blogg. Þar má alltaf finna umræðuefni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Mér finnst bara að maður eigi ekki að þurfa réttlæta bloggnáttúru sína fyrir öðrum. Það er með hana eins og aðra náttúru að hún er manni ósjálfráð.

Ég kem oft hér inn þó ég geri ekki alltaf vart við mig. Og hér hef ég lesið margt mér til ánægju.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 19.2.2009 kl. 10:30

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk, Ólína!
Ég finn alltaf betur og betur að ég er aðallega að blogga fyrir sjálfan mig. Þetta er einhverskonar þörf og ég ætlast ekki til neins af lesendum mínum. Lít samt oft á aðsóknartölur og þær skipta mig máli.

Athugasemdir skipta líka máli og ekki síður svörin við þeim.

Sæmundur Bjarnason, 19.2.2009 kl. 13:22

3 Smámynd: Salvör  Kristjana Gissurardóttir

já, við erum í bloggvinnu hjá mogganum. Spurning hvert við vinnuþrælar bloggsins verðum seld. er það ekki núna sem tilboð eru gerð í moggann?

Salvör Kristjana Gissurardóttir, 19.2.2009 kl. 15:51

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Við mbl. bloggarar lifum á óvissutímum. Ef Styrmir kemst á ný með puttana í blaðið verður stórfelld úthreinsun meðal okkar og ég örugglega með í þeim hópi. En þá mun að sjálfsögðu segja upp blaðinu sem er reyndar núna í minni eigu.

Finnur Bárðarson, 19.2.2009 kl. 16:02

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég held nú að bloggnáttúran sé bölvuð ónáttúra!

Sigurður Þór Guðjónsson, 19.2.2009 kl. 19:26

6 Smámynd: Yngvi Högnason

Það er gott að kíkja hér inn á stundum því höfundur tekur sjálfan sig ekki hátíðlega og þykist ekki færa fram stóra sannleik í hvert sinn sem hann bloggar. Takk fyrir það.

Yngvi Högnason, 19.2.2009 kl. 22:19

7 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk öll.

Já, það getur vel verið að við séum haldin bölvaðri ónáttúru og séum að gefa Moggahyskinu þessi flottu skrif okkar. Samt er haldið áfram og ég sé ekki að vinsældir Moggabloggsins séu neitt að dvína.

En hverig er að blogga annarsstaðar? Ég hef ekki séð mikið skrifað um það. Ég vil ekki flytja mig bara vegna þess að þetta er Moggablogg. Það dugar ekki að finna því allt til foráttu. Aðrir staðir þurfa að vera áberandi betri.

Sæmundur Bjarnason, 20.2.2009 kl. 01:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband