605. - Já er nei og nei er já. Eða svoleiðis

Egill Helga er alltaf áhugaverður í Silfrinu. Ég er ekki alltaf sammála honum og get vel skilið þá sem telja talsverða vinstri slagsíðu á þættinum. 

Blaðamaður einn að nafni Magnús Björn Ólafsson vakti sérstaka athygli mína í þættinum í morgun. Hann sagðist vinna við hið kommúníska blað "Nei" og í mínum huga er ekkert neikvætt við það.

Nei er eitt af þessum vefritum sem sprottið hafa upp að undanförnu. Ég hef lítið fylgst með því blaði og hugðist því nálgast það beint. Nei.is skilaði ekki tilætluðum árangri því ég lenti beina leið á ja.is eða með öðrum orðum símaskránni. Sem var ekki það sem ég ætlaðist til. Nei.com skilaði heldur ekki því sem ég var að leita að. Þá var ekki annað eftir en að spyrja Gúgla að þessu og þá kom í ljós að urlið er: this.is/nei. OK nú get ég farið að lesa þetta gagnmerka rit.

Í föðurlandi frjálshyggjunnar er læknishjálp góð. Dýrari samt en allt sem dýrt er. Þeir sem nógu ríkir eru geta þó notfært sér hana. Hinir fá einhverja afgangslæknishjálp eftir að þeir eru orðnir öreigar en mega að öðru leyti eiga sig.

Ef ég á að velja milli Evrópska módelsins og þess Ameríska þá vel ég það Evrópska. Ég er ekki bara að hugsa um læknishjálp og þess háttar. Það er margt í Evrópska módelinu sem mér hugnast betur en samskonar atriði í því Ameríska.

Í grunninn eru Íslendingar líka Evrópuþjóð þó Amerísk menning hafi náð fótfestu hér hin síðari ár og Amerísk viðhorf grasseri í ákveðnum stjórnálaflokki. Jón Baldvin Hannibalsson hefur útskýrt vel muninn á þessu tvennu. Ég man ekki öll rökin en mismunurinn er augljós. Stórveldisárangur Bandaríkjanna undanfarið er þó mun meiri.

Evrópumenn voru iðnir við kolann hér áður fyrr og víst er að þeir eru víða hataðar öðrum fremur. Núorðið virðast Bandaríkjamenn samt verða meira fyrir barðinu á hryðjuverkamönnm og er ekki að furða.

Konan mín hafði ákveðið að nú skyldi hafið nýtt líf. Þáttur í þessu var að ég átti að hella í vaskinn öllu wiskyinu mínu.

Ég tók tappann úr fyrstu flöskunni og hellti úr henni í vaskinn að undanteknu einu glasi sem ég drakk. Svo tók ég tappann úr næstu flösku að undanteknu einu glasi sem ég drakk. Næst hellti ég úr þriðju flöskunni í glasið að undanteknum einum vaski sem ég drakk. Þá var komið að tíunda vaskinum. Ég hellti úr honum í glasið fyrir utan eina flösku sem ég drakk. Svo studdi ég húsið og taldi tappana áður en ég fór að sofa. Þeir voru tuttugu og fjórir.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eygló

Þessi ungi blaðamaður, sem mér sýndist vera snoppunett stelpa þegar mér var litið á skjáinn, átti mig með trompi eftir að hann hafði lokið máli sínu.  Meira í hans kolli en margra sem þyrftu þó nauðsynlega á heilmiklu að halda.

Eygló, 16.2.2009 kl. 00:16

2 identicon

Þetta kalla ég illa farið með eldvatnið!

Malína 16.2.2009 kl. 03:02

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Já, þetta er gamall brandari. Ég mundi bara eftir setningunni "að undanteknum einum vaski, sem ég drakk." og prjónaði í kringum hana.

Sæmundur Bjarnason, 16.2.2009 kl. 03:26

4 identicon

Gott að heyra að þetta er bara brandari.  Ég var farin að dauðvorkenna þér að eiga svona stjórnsama kellingu!

Malína 16.2.2009 kl. 03:38

5 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Já, hann var fínn hann Magnús Björn. En mér finnst að þeir eigi að laga aðganginn að miðlinum.

María Kristjánsdóttir, 16.2.2009 kl. 16:07

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Þeir RUV-menn eru oft ansi lengi að laga þetta og útsendingin oft i skötulíki en myndgæðin er nokkuð mikil. Lára Hanna klippir Silfrið oft niður og setur á síðuna hjá sér en bæði sjónvarp og útvarp þurfa að fara að gera sér grein fyrir að Netið er það sem koma skal.

Sæmundur Bjarnason, 16.2.2009 kl. 17:05

7 identicon

Sæmundur, ég bjó í landinu sem þú kallar ´föðurland frjálshyggjunnar´lengi.  Það er ekki þannig að bara þeir ríku fái góða læknishjálp.  Það er ísl. kjaftasaga.  Engum er neitað um læknishjálp, það er bannað samkvæmt lögum að neita fólki um læknishjálp.  Sonur minn fæddist samt í einum þróaðasta spítala veraldar sem var í 5 mín. akstur í burtu frá okkur.  Og þar fengum við sko enga afgangslæknishjálp þó ég væri enginn milli.

EE elle

EE 16.2.2009 kl. 22:57

8 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Þetta með "afgangslæknishjálp" er eflaust skilgreiningaratriði. Ég er í engri aðstöðu til að dæma um gæði þeirrar læknisþjónustu sem þeir fá sem ekki geta borgað fyrir hana.

Sæmundur Bjarnason, 16.2.2009 kl. 23:27

9 identicon

Kannski kom ég of hvasst fram og ætlaði þó ekki að vera með neinn ruddaskap.  Það var þannig að mér sárnaði orðalagið þar sem Bandaríkin eru gott land með heiðursfólki þrátt fyrir mikla fordóma hérlendis gegn landinu.  Og við fengum fullkomna læknisþjónustu þar.  En takk fyrir að útskýra mál þitt.

EE elle 17.2.2009 kl. 11:09

10 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Ég get alveg fallist á þetta með fordómana. Held að þeir snúi samt meira að stjórnvöldum en fólkinu.

Sæmundur Bjarnason, 17.2.2009 kl. 14:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband