570. - Um árangur í stjórnkerfismálum, skák og sálfræðing í Silfrinu

Til að árangur náist í stjórnkerfismálum þarf að einhenda sér í þau. Leggja smámál eins og bankahrun, aðild að Evrópusambandinu, kvótamál, stóriðju og þessháttar til hliðar í bili. Margir virðast sammála um að stjórnkerfisbreytingar séu nauðsynlegar. Jafnvel virðist talsverð samstaða um hvernig þessar breytingar skuli vera. Til að árangur náist líst mér best á tillögu Egils Jóhannssonar í Brimborg um Sjálfseyðingarflokkinn. Verði tryggt að flokkurinn stefni eingöngu að stjórnkerfisbreytingum og verði örugglega lagður niður mjög fljótlega þegar búið er að ákveða aðrar kosningar eftir þær fyrstu er von til þónokkurs fylgis. Að stofna nýja flokka til að koma mönnum á þing og vasast í allskyns málum eykur bara ruglið. 

9-year-old Hetul Shah (India) youngest ever to beat a GM. (Fyrirsögn í skákfréttablaði)

Níu ára gutti vinnur stórmeistara í skák. Ótrúlegt. Nú má Maggi litli Carlsen frá Noregi fara að vara sig. Nánar um þetta á blogginu hjá Hrannari Baldurs.

Sálfræðingur í Silfrinu hjá Agli á sunnudaginn sagði að kreppan hefði komið eins og þjófur úr heiðskíru lofti. Þarna er blandað saman tveimur þekktum orðtökum. Að koma eins og þruma úr heiðskíru loft og að koma eins og þjófur á nóttu. Kannski gerði sálfræðingurinn þetta viljandi og þótti fyndið. Þá var hann líka viljandi að rugla þá sem tóku eftir þessu. Þessi sálfræðingur hafði annars margt gott til málanna að leggja en talaði alltof hratt og var of óskýrmæltur.

Egill hefur bætt sig að undanförnu og er farinn að losa sig meira og minna við stjórnmálamennina sem áður voru eins og gráir kettir í þættinum hjá honum.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Beturvitringur

Sæll bróðir. Það eina sem ég mundi eftir þáttinn var einmitt þjófurinn.Ég var satt að segja milli "steins og steggja" Velti fyrir mér hvort kreppan hefði verið á flugi.

Á mér kvikindi að vini... sendum ambögur á milli. Þess fór strax á vængjum netsins.og eins og spákonan á Útvarpi Sögu segir í hverjum þætti: " En þú veist að Róm var ekki byggð á einni nóttu"

Beturvitringur, 13.1.2009 kl. 01:31

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Sjálfur er ég talsvert fyrir að afbaka talshætti og finnst oft skemmtilegt. Segi oft "það er ekki hundur í hættunni", "betra er að hafa vaðið fyrir ofan sig", "þar kom horn úr hljóði", "þegar í harðfennið slær", o.s.frv.

Sæmundur Bjarnason, 13.1.2009 kl. 02:13

3 Smámynd: Beturvitringur

Ég kalla þetta "bibbísku" eftir persónunni er Edda Björgvinsdóttir bjó til og lék. Mig minnir "Bibba á Brávallagötunni".Þættirnir gengu einmitt útá afbökun spakmæla og orðtaka. Óttaðist það svolítið fyrir "hönd" íslenskrar tungu. Það eru held ég fæstir sem skilja upprunann svo þeir hafa getað étið þetta upp, hugsunarlaust (og skilningslaust)

Stafaskipti geta líka verið drepfyndin, þegar þau eru sögð t.d. rauð dolla verður dauð rolla.

Undirritað,

Hrokagikkur

Beturvitringur, 13.1.2009 kl. 02:23

4 identicon

Ég vil líka vera með, hér koma tvo dæmi :)

,,Þetta er nú ekkert til að hlaupa húrra yfir"

,,Þið eruð eitthvað svo spænskir á svip"

Hafdís Rósa 13.1.2009 kl. 12:14

5 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Afbökuð orðatiltæki geta verið óborganlega fyndin. Stundum fylgir líka saga sem gerir þau enn fyndnari. Man eftir að ég sagði einhvern tíma alveg óvart: "Verið ekki að skemmileggja pálið hans túns." Skemmileggja var að einhverju leyti meðvitað en ekki hitt. Sögur um "Ísmann í Kristshúsinu" og aðra fljótfæra og fljóthuga menn eru skemmtilegar.

Sæmundur Bjarnason, 13.1.2009 kl. 16:21

6 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Það er nú svona að bæta við athugasemdum eftir djúpan disk, en óneitanlega minnti sálfræðingurinn mig á strákinn sem kom alltaf draugfullur í síðustu rútu til Keflavíkur á sunnudagskvöldum fyrir hálfri öld eða svo, hrekkti þar mann og annan en þannig að enginn tók það illa upp og allir hlógu. Þegar fór að draga af honum fór hann venjulega að syngja og byrjaði alltaf á sama laginu, í hærri tóntegund en hann eiginlega réði við: „Bára blá, um loft þú líður…“

Sigurður Hreiðar, 14.1.2009 kl. 09:25

7 identicon

Það er fátt sem slær út lokasetninguna í "Sódóma Reykjavík":

"Láttu ekki slá svona um þig, þú gætir forskalast"

Sveinn í Felli 14.1.2009 kl. 16:16

8 identicon

Íþróttafréttamenn tala líka stundum um að tiltekinn knattspyrnumaður hafi ekki stigið feilnótu í leiknum.

Hafsteinn 14.1.2009 kl. 16:35

9 Smámynd: Beturvitringur

Ég vildi að ég kynni að búa til e-s konar "klúbb-blogg" þar sem safna mætti á einn stað svona skemmtilegu rugli.

Bara núna er ég tvisvar búinn að hlæja framan í skjáinn. Hugsið ykkur sparnaðinn að geð- og róandi lyfjum.

Oft var þörf, en nú er nauðsyn (e-r með aðra útgáfu?) að hafa gleðigjafa í hverju skoti.

Þegar fýlan og önugheitin liggja yfir mér eins og skata á sandbotni (frumsamið) hef ég stundum neyðst til að brosa og jafnvel skellihlæja af "Fyndnum fjölskyldumyndum" í sjónvarpinu. Það er bara ekki hægt að vera staðfastur í fýlunni yfir sumu þar.

Beturvitringur, 15.1.2009 kl. 02:25

10 Smámynd: Beturvitringur

Fyrir 3-4 áratugum heyrði ég konu í alvarlegu samtali við aðra manneskju. Get bara alls ekki gleymt því sem hún sagði:  "Það þýðir ekki að efna og efna og lofa svo aldrei neinu"  !!!

Beturvitringur, 15.1.2009 kl. 02:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband