437. - Ég vil að Anna K. Kristjánsdóttir fari aftur að blogga á Moggablogginu sem fyrst

Einn af albestu bloggurunum hér á Moggablogginu er Anna K. Kristjánsdóttir. Hún hefur bloggað lengi og verið einn af mínum uppáhaldsbloggurum frá því löngu áður en Moggabloggið tók til starfa. Hún hefur lengi haldið uppi vörnum fyrir okkur Moggabloggara þegar ómaklega hefur verið að okkur vegið af þeim sem bloggað höfðu lengi þegar hér var byrjað.

Auðvitað er réttast að hún útskýri sín sjónarmið sjálf. Velstyran.blog.is er urlið hennar hér á Moggablogginu. Það er einnig hægt að lesa það sem hún hefur að segja á velstyran.blogspot.com

Það er á henni að skilja að henni hafi ofboðið viðbrögðin sem Kristín Björg Þorsteinsdóttir (konukind.blog.is) fékk í kommentakerfið sitt þegar hún lýsti yfir stuðningi við Paul Ramses fyrir skemmstu. Að hætta að setja blogg sitt einnig á Moggabloggið er aðferð hennar til að mótmæla. Ég er sammála henni um að hún hafi ekki átt margra annarra kosta völ en vil samt biðja hana að koma hingað sem fyrst aftur. Hennar er sárt saknað.

Ég hafði ekki tekið eftir þessu fyrr en Anna vakti athygli mína á því og hef einmitt verið að minnka mikið lestur á kommentum við blogg annarra að undanförnu. Meðal annars vegna þess að Google Readerinn býður ekki uppá slíkt fyrirhafnarlaust. Ég les samt alltaf kommentin við mín eigin skrif og get ekki kvartað undan neikvæðum kommentum en veit dæmi þess að þau geta valdið miklum sárindum.

Kommentin eru sál bloggsins. Auðvitað er hægt að misnota þau en mér finnst að ekki megi taka þau of nærri sér. Einfaldast er að leiða neikvæðar og órökstuddar athugasemdir nafnleysingja hjá sér. Hvaða áhrif þau hafa á lesendur bloggsins er engu hægt að ráða um.

Sumir fá svo mikið af neikvæðum athugasemdum að þeir loka fyrir þann möguleika lesenda að kommenta á skrifin. Það finnst mér slæmt en skil sjónarmið þeirra bloggara sem það gera. Millivegur er að kommentin komi ekki fram nema bloggarinn samþykki þau sjálfur. Sumir notfæra sér það. Sjálfum finnst mér rétt að reyna að komast hjá slíku.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

Einz vænt & mér þykir nú í raun um uppáhaldz 'vélztýru' mína þá tel ég nú þetta upphlaup hennar vera vindhviðu í fíngurbjörg, enda kemur hún alltaf aftur, einz & öll góð konudýr gera.

Steingrímur Helgason, 1.9.2008 kl. 00:36

2 identicon

Ég held Sæmundur að þú vitir ekki hvað þú er að tala um. Kynntu þér málið betur og þá munt þú breyta um skoðun.

Ingi 1.9.2008 kl. 00:46

3 identicon

Ég les líka oft bloggið hennar Önnu, en mér finnst engu máli skipta hvort ég les það á blogspot-svæðinu hennar eða á Moggablogginu.  Hverju breytir það hvar maður les bloggið hennar?  Bear with me - er ég svona græn, en ég bara skil ekki vandamálið?  Þetta er sama manneskjan sem er að skrifa - bara á öðru svæði á netinu!

Malína 1.9.2008 kl. 02:15

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Sko, ég er ekki að hugsa um mig heldur Moggabloggara svona almennt. Ég held einhvern vegin að það sé auðveldara fyrir þá að finna hana á Moggablogginu en á blogspottinu og svo er það líka í útlandinu. Einnig finnst mér það bara eiga að vera metnaðarmál fyrir þessa bloggveitu að hafa konu eins og Önnu innanborðs. Eyjan.is er búin að ræna nógu mörgum frá okkur.

Sæmundur Bjarnason, 1.9.2008 kl. 02:59

5 identicon

Ég er nú svo græn, en ég hef aldrei skilið þennan ríg sem virðist vera hjá sumum bloggurum á milli bloggveita (veitna?).  Sjálf les ég blogg út um allt og krossa netveitur alveg þvers og kruss og án blygðunar - ég virði engin netveitulandamæri!   En því er ekki að neita að mér hefur oft fundist vera meira um skítkast hérna á Moggablogginu heldur en t.d. á Eyjublogginu.  Þannig að ég skil alveg að Anna skuli vilja hvíla sig aðeins á því.

Kannski á ég eftir að upplifa netveitulandamæraríginn á eigin skinni ef ég einhvern tíma fer að blogga sjálf!

Malína 1.9.2008 kl. 03:38

6 identicon

Vélstýran er ein af þeim sem af og til hótar að hætta af því henni mislíkar eitthvað. Þá auglýsir hún bloggspot síðuna sína og reynir að beina lesendum þangað - um leið og hún reynir að kalla fram einhverskonar stuðning við bloggið sitt.

Svo gengur maður undir manns hönd að sárbiðja hana að fara ekki af moggablogginu: Ekki fara - elsku vélstýra, þú ert svo frábær - ekki fara - plííís. Þetta virðist virka því hún er ekki hætt enn.

Ég tek ekki þátt í þessu.

Velviljuð 1.9.2008 kl. 08:50

7 Smámynd: Salvör  Kristjana Gissurardóttir

það er miklu betra að fylgjast með skrifum fólks ef það er á moggablogginu. ég les mjög sjaldan þá sem ekki eru þar.  Ég hef sjálf bara nokkrum sinnum lent í svona kommentastalker sem setti inn einhver rustaleg ruslkomment.  mér fannst það óþægilegt og ef viðkomandi hefði ekki hætt þá hefði ég lokað fyrir komment. en mér datt aldrei í hug að hætta að tjá mig vegna þess að einhverjir vildu þagga niður í mér.

það fylgir tjáningarfrelsinu að ribbaldalýður hefur líka tjáningarfrelsi og gargar og grenjar hásum rómi m.a. í kommentum. 

Salvör Kristjana Gissurardóttir, 1.9.2008 kl. 09:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband