388. - Um málfar, ljósmyndir og sitthvað fleira

Jæja, áfram með karlagrobbið í dulargervi endurminninga. Nei annars. Aðsóknartölur sýna mér að þetta er ekki það sem fólk vill lesa. Ég verð að sætta mig við það þó auðvitað vildi ég gjarnan segja frægðarsögur af sjálfum mér endalaust. Svona verður maður bara með aldrinum. 

Í sjónvarpi allra landsmanna var um daginn tekið svo til orða að von væri á að einhverjir skúrir yrðu um helgina. Ég hef áður talað um rigningarskúrir og geymsluskúra hér á blogginu og fengið heldur bágt fyrir.

Nú geri ég mér alveg grein fyrir að kynferði skúra er mállýskuháð. Ef karlkynið á að ríkja eins og sagt er að það geri fyrir norðan af hverju var þá ekki sagt „einhverjir skúrar"? Ef sunnlenskan á hinsvegar að blíva hvað snertir rigningarskúrir af hverju var þá ekki sagt „einhverjar skúrir"? Er þetta kannski miðjumoð allra miðjumoða?

Sigurður Hreiðar HM hvar ertu nú með þínar hnífskörpu skilgreiningar? Nú þörfnumst við þín.

Núorðið er svo mikið tekið af ljósmyndum að afar fáir nenna að skoða myndir sem aðrir taka. Næstum því hver maður á sína eigin myndavél og enginn vafi er á að meira er tekið af myndum en áður hefur þekkst.

Þessvegna er það sem ég ligg núna á því lúalagi að setja oft á tíðum ljósmyndir aftast í bloggið mitt. Með þessu tekst mér kannski að fá álitlegan fjölda fólks til að skoða myndir sem því hefði annars ekki dottið í hug að skoða. Auðvitað tel ég svo sjálfum mér trú um að þetta séu frábærar myndir.

Annars er það svo með þetta ljósmyndakraðak að meirhluti þess mun í fyllingu tímans lenda í glatkistunni gaflalausu. Geymslumiðlum fer sífellt hrakandi. Ekkert geymist eins vel og gömlu glerplöturnar. Á sama hátt eru bækur þær sem prentaðar voru fyrir mörgum öldum mun líklegri til að varðveitast en þær bækur sem verið er að prenta nútildags á illa gerðan afgangspappír allskonar.

Guðmundur Magnússon skrifar í sinn bloggpistil hugleiðingar um Matthías Johannessen skáld og ritstjóra og segir í lokin:

„Það er ekki gott að lesa langa texta Mattíasar á skjánum. Betra að þeir hefðu verið settir í pdf-skjal þannig að maður gæti prentað þetta út. Kannski spáir hann í það við tækifæri?"

Það er ef til vill rétt hjá Guðmundi að pdf-skjöl séu frekar prentuð út en html-skjöl en ég fæ ekki séð að pdf-sniðið sé eitthvert skilyrði fyrir útprentun. Vilji er allt sem þarf.

Eins og sjá má af myndum mínum frá í gær fórum við í grillveislu í sumarbústað. Sá bústaður er að Húsafelli og á leiðinni þangað sáum við tilsýndar það hús sem Bjarni og Charmaine eru búin að festa kaup á. (Fyrsta mynd)

Annars var aðalstjarnan í grillveislunni lítil stelpa að nafni Snædís Sól  Ingimundardóttir og aftan við myndina af húsinu Bjarna og Charmaine eru fáeinar myndir af henni.

IMG 1808IMG 1819IMG 1824IMG 1852


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Ég er nú hérna Sæmundur minn, má til með að svara fyrst þú spyrð. En þó ég sé framur er ég ekki með nefið allsstaðar og nú vill svo til að hér hjá mér hafa verið einhverjar skúrir sem læt verða mér afsökun til að leggjast í leti. En ég hefði betur skilið þetta sem þú talar um ef rætt hefði verið um „einhverja skúra" -- nema i-ið í einhverjir hafi hreinlega verið sláttuvilla. Af þeim geri ég sjálfur nóg og læt þær því njóta vafans í smámálum eins og þessu. Hið fornkveðna um grjótkastið og glerhúsið er enn í fullu gildi.

En myndirnar þínar eru margar forláta!

Góð kveðja -- hittumst við í Bifröst á föstudaginn? Því ég var Í Bifröst á sínum tíma, ekki Á.

Sigurður Hreiðar, 14.7.2008 kl. 17:34

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Kynferði skúra er alls ekki neitt smámál Sigurður minn. Spurðu bara Nönnu Rögnvaldar sem er systir Eiríks prófessors í íslensku við Háskólann að ég held. Mér er sagt að sú venja að kvenkenna rigningarskúrir en karlkenna geymsluskúra sé bara sunnlensk mállýska en á Norðurlandi séu allir skúrar karlkyns.

Sæmundur Bjarnason, 14.7.2008 kl. 23:10

3 Smámynd: Beturvitringur

=> einhverjir skúrir? => einhverjir skúrar => einhverjar skúrir. Mér finnst "rétt" að notast við hið síðast upptalda. Hins vegna ber ég heilshugar virðingu fyrir mismunandi málnotkun eftir landsvæðum, EN þá finnst mér líka að fólk verði að gera upp við sig hvort það talar, í þessu tilviki, norð- eða sunnlenska mállýsku, og hana nú

Beturvitringur, 15.7.2008 kl. 20:46

4 Smámynd: Beturvitringur

Gleymdi áðan: Mér finnst koparkollurinn Snædís Sól rosalega flott. Alltaf "svag" fyrir rauðleitu hári :)

Beturvitringur, 15.7.2008 kl. 20:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband