267. - Vísnagerð og vanhæfir alþingismenn

 

Þú ert kátur með þitt mát

þó meiri gát ég vildi.

En í gráti aldrei lát

enda hláturmildi.

Þetta er sennilega einhver dýrast kveðna vísa sem ég hef gert. Vissulega hef ég gert þónokkrar sléttubandavísur, en mér finnst ekki að þær séu dýrari en oddhendur. Vel gerðar oddhendur finnst mér taka flestu fram. Afhendingarhátt hef ég glímt við og sett saman vísur eftir þeim reglum sem þar gilda. Meiningin í þeim vísum vill þó fara veg allrar veraldar þegar formið eitt yrkir orðið vísuna. Af einhverjum ástæðum hefur mér jafnan gengið verst að gera limrur.

Ofangreind vísa er úr ljóðabréfi til Þóris E. Gunnarssonar og ég man að við tefldum líka bréfskák um leið og felldum leikina í ferskeytlur eins og allt annað í bréfunum, jafnvel dagsetningarnar. Hann hótaði að máta mig í byrjun skákar og þess vegna varð þessi vísa til. Skákin varð ekki löng og lauk líklega aldrei. Ein af fyrstu vísunum sem ég gerði í þessum ljóðabréfaflokki var svona:

Ofsalegt æfingarleysi

er mér til tafar um stund.

Á Pegasus þegar ég þeysi

á Þóris hins spaka fund.

Ekki veit ég hversvegna ég man þessa vísu svona vel. Hún er þó alveg sæmilega lipur. Yfirleitt man ég ekki lengi þær vísur sem ég geri.

En frá sjáflhælninni og að öðrum málefnum.

Ég hef oft velt fyrir mér hve alþingismenn eru undarlegur þjóðflokkur. Dæmi um það er frumvarp sem ég heyrði sagt frá fyrir nokkru, en veit ekki hvar er statt núna. Þar er gert ráð fyrir að hver og einn landsbyggðarþingmaður geti ráðið sér einn þriðja hluta af aðstoðarmanni.

Þvílík della. Í fyrsta lagi er engin leið að koma auga á hversvegna þetta á bara að ná til landsbyggðarþingmanna en ekki annarra. Eru þeir eitthvað hjálparlausari en aðrir? Í öðru lagi er það út í loftið að hafa bara einn þriðja hluta aðstoðarmanns og getur alls ekki gengið til lengdar.

Ef þessi ósköp verða samþykkt þá líður ekki á löngu áður en þessir aðstoðarmenn verða orðnir jafnmargir og þingmennirnir og allir í fullu starfi. Hlutverk þeirra verður öðru fremur að tryggja sínum manni endurkjör í prófkjörum og alþingiskosningum og sjálfum sér þar með áframhaldandi atvinnu. Með þessu má komast hjá óhóflegri endurnýjun í þingliðinu og sú er væntanlega hugsun flutningsmanna þessa fáviskufrumvarps.

Ef ekki væri gert ráð fyrir að þingmenn sjálfir réðu sér aðstoðarmenn væri mögulegt að koma viti í þetta frumvarp. Ekki er ég á móti því að þingmenn sinni sínu starfi betur.

Einn af kostunum við að blogga er að þetta er ágæt aðferð til að koma frá sér allskonar efni. Það sá ég best um daginn þegar það datt í mig að setja saman einskonar ljóð. Með því að henda því inn á bloggsvæðið mitt var ég laus við það. Auðvitað má ekki nota þessa öskutunnuaðferð í óhófi en sé hún sparlega notuð er hún úrvalsgóð.

Óróinn við Upptyppinga fer nú vaxandi. Áslaug stendur jafnan skjálftavaktina og veit um svonalagað löngu áður en sagt er frá því í sjónvarpinu, þökk sé úrvalsupplýsingum um þetta á Netinu á slóðinni vedur.is.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ofsalegt æfingarleysi

er mér til tafar um stund.

Á Pegasus þegar ég þeysi

á Þóris hins spaka fund.

Þessi vísa er ekki ferskeytla.  Ferskeytlur, eins og aðrir rímnahættir, þekkjast m.a. á því að í þeim eru eingöngu tvíliðir.  (Að sönnu finnast vísur sem í eru þríliðir en þær eru undantekningar og þríliðurinn raskar hrynjandi vísunnar) Þessi vísa hefur hins vegar eðlilega þríliði, nema reyndar í annarri kveðu í seinustu línunni, og er þar af leiðandi eitthvað annað. 

Fyrri vísan er heldur ekki hrein oddhenda.  Oddhendur eru frumbakhendar, þeas önnur kveðan í 1. og 3. línu rímar við síðustu kveðuna.  Þessi er svo hringhent að auki, en það er ekki skilyrði til að vísan sé oddhent, sbr. vísu sr. Halla Pé en hann orti:

Hreykinn móð úr hyggju sjóð,

hringa eikin skæra.

Oddhent ljóð hið unga fljóð

ætla ég þér að færa.

Og af því þú hefur augljóslega vit á vísnagerð þá sérðu hvernig þríliðurinn í síðustu línunni stingur í stúf.

Kveðja T

Tobbi 9.3.2008 kl. 17:04

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Þakka þér fyrir þetta. Þú hefur eflaust lög að mæla. Í mínum huga eru þó allar vísur sem hafa fjórar ljóðlínur ferskeytlur. En ég hef lítið vit á nafnagiftum vísna og þekki ekki einu sinni rímnakveðskap frá öðrum. Stundum hefur of mikil áhersla á  nafngiftir og þess háttar slæm áhrif á þá sem þó eru hagmæltir.

Þetta með tvíliði og þríliði getur líka oft verið ruglandi og mér finnst framburður eigi að ráða hér miklu. Í fyrstu vísunni er "tafar um" nánast tvíliður í framburði og þess vegna hljómar vísan ekki óeðlilega.

Sæmundur Bjarnason, 9.3.2008 kl. 18:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband