2932 - Drífa Snædal

Held að það sé talsvert mikið ofílagt að halda að eitt til tvöhundruð þúsund muni deyja í Bandaríkjunum af völdum Covid-19 veirunnar. Alltaf þegar ég sé eitthvað tölulegt um US þá heimfæri ég það uppá Ísland alveg ósjálfrátt. Það er fremur auðvelt því Bandaríkjamenn eru u.þ.b. þúsund sinnum fleiri en við. Samkvæmt þessari kenningu ættum við Íslendingar að missa svona 100 til 200 manns í þessari plágu. Það finnst mér afar ótrúlegt. Kannski koma andlát nokkurra tuga Íslendinga til greina, en allsekki meir. Því neita ég alfarið að trúa.

Þorsteinn Siglaugsson var vanur að kommenta mikið á þessa síðu. Hann er alveg hættur því. Stuðningsmaður Frosta er hann orðið mikill. Honum finnst Þórólfur og Co. vera að gera tóma vitleysu. Það held ég allsekki. Það er raunar hálfskrýtið að manni eins og honum (Þórólfi) skuli hafa verið þrýst í það að taka svona veigamiklar ákvarðanir eins og hann hefur óneitanlega gert eða þurft að gera. Þó er hann eiginlega bara starfsmaður Landlæknisembættisins. Að vísu yfirmaður sóttvarna þar. Stjórnmálamenn hafa að mestu leyti kúplað sér útúr því að taka ákvarðanir varðandi farsóttina sjálfa og er það vel. Nóg er nú samt. Vissulega má deila um ýmsar efnahagslegar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar. Þó samstaða um þær sé mikið umtöluð fer allsekki hjá því að menn búi sig undir miklar deilur hvað það snertir. Sjálf þykist ríkisstjórnin  hafa gert vel, en flestir hallast að því að of lítið sé að gert. Þó virðist samkvæmt skoðanakönnunum að vinsældir hennar hafi aukist.

Eitt helsta vandmál mitt í sambandi við þessi bloggskrif er að mér leiðist óttalega að þykjast alltaf vera svona gáfaður. Þetta er bara eðli mitt. Ég get ekki öðruvísi verið né að þessu gert. Að miklu leyti er allt okkar líf einn allsherjar þykjustuleikur. Innsta eðli sitt lætur enginn í ljós. Allt okkar líf er um dauðann. Hann litar allt saman. Þessvegna er það mikilvægt þroskastig hjá börnum þegar þau gera sér grein fyrir því að þau eru ekki ódauðleg. Þeim getur fundist að dauðinn sé mjög fjarlægur, en samt er hann alltaf til staðar. Þegar maður gerist gamall færist hann að sjálfsögðu nær og nær. Auðvitað sér maður eftir ýmsu, sem maður hefur gert eða vanrækt að gera. Vel hefði verið hægt að lifa lífinu allt öðruvísi.

Stend með Drífu í ASÍ-málinu. Verkalýðurinn á fyrst og fremst að hugsa um sjálfan sig, ekki fyrirtækin. Þó Vilhjálmur sé Akurnesingur og Ragnar Þór hafi frelsað VR undan ofurvaldi Sjálfstæðisflokksins er ég þeirrar skoðunar að þeir séu bara fúlir yfir því að hafa tapað fyrir Drífu. Hún er forseti ASÍ og stendur sig bara vel þar.

IMG 6226Einhver mynd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þú saknar þess greinilega að einhver nenni að kommenta á bloggið þig, svo maður verður að reyna að bæta úr því.

Það er nú einhver misskilningur að ég sé stuðningsmaður þeirra skötuhjúanna Frosta og Ólínu, þó svo að ég hefði talið það skynsamlegt að loka loftbrúnni til Ítalíu á sínum tíma. Er raunar fremur á því að verið sé að ganga of langt í samskiptahindrunum en hitt, enda dánartíðnin af þessari flensu líklega ekki mjög mikil.

Og þar hefurðu það. Þú færð mig hins vegar ekki til að kommentera neitt á hana Drífu frænku mína.

Þorsteinn Siglaugsson, 2.4.2020 kl. 17:40

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Drifa er auðvitað í starfi sem hún getur ekki staðið i, ef all hörðustu verkalýðsforingjar sjá fram á að mikill fjöldi fyrirtækja fara á hausinn ef ekkert er gert til að hjálpa þeim.

Drífa fær sin laun hvað sem tuðar og tautar, en það er hætt við því að þegar fólki verður leift að fara til vinnu, þá verði ekki fyrirtæki til staðar til fara til vinnu til.

Með kveðju frá Montgomery Texas

Jóhann Kristinsson, 3.4.2020 kl. 04:37

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

ASÍ-forystan er síður en svo hafin yfir gagnrýni. Stend samt með henni í þessu efni. Viðurkenni samt fúslega að ég er ekki gjörkunnugur öllum hliðum þessa máls.

Sæmundur Bjarnason, 3.4.2020 kl. 08:44

4 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sæll Sæmundur karlinn, 

Í  mörgum af þessum vel þekktu uppflettibókum í læknisfræði, eða eins og til dæmis "The American Medical Association Encyclpedia of Medicine" er minnst á "Covid", sem bara venjulegt kvef og/eða flensa. Í öllum þessum tilfellum er upp hafa komið eftir þessar athugunnir með þessum pinnum, þá kemur EKKI fram einhver munur á því hvort þetta sé flensa eða bara kvef.

Þannig að tölur í þessu sambandi verða án efa háar tölur, nú og það gæti farið svo í öllum þessum líka sérstaka hræðsluáróðri,að næstum því öll dauðsföll eldra fólks verði víða um heim flokkuð sem bara dauðsföll af völdum Covid. Ég er hins vegar sammála þér með, að "það sé talsvert mikið ofílagt að halda að eitt til tvöhundruð þúsund muni deyja í Bandaríkjunum af völdum Covid-19 veirunnar." En miðað við þessar tölur sem við höfum í dag (eða frá 2. apríl sl.) og svo miðað við síðustu flensufaraldra í Bandaríkjunum, þá get ég ekki sé að það séu eitthvað fleiri dauðsföll af völdum Covid 19 -flensufaraldursins en verið hefur miðað við aðra flensufaraldar í Bandaríkjunum. 

KV. 

   No photo description available.  

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 3.4.2020 kl. 11:20

5 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Í öllum þessum hræðsluáróðri á okkar einhliða og ritstýrða RÚV, þá verður örugglega ekki minnst einu orði á þessar fréttir hérna.

Global scientists revise predictions, claim coronavirus mortality much lower than previously thought

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 3.4.2020 kl. 13:03

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Ég er ekki viss um að ég skilji þig fullkomlega.

Hvort sem um er að ræða RUV eða eitthvað annað hljótum við öll að leggja þann skilning í þær upplýsingar sem við fáum, sem samræmist okkar eigin gildum.

Sæmundur Bjarnason, 3.4.2020 kl. 15:29

7 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Já, ég er sammála þér með að við "hljótum að leggja þann skilning í þær upplýsingar sem við fáum". En þegar okkar ritstýrða RÚV og helstu fjölmiðlar hér á landi taka þá í því að halda upplýsingum varðandi lyga og/eða false - fréttir í burtu frá almenningi, án þess að gera eina einustu tilraun til þessa að leiðrétta fréttir er fjölmiðlar hafa birt, þá má reikna með einhverjum viðbrögðum, ekki satt? 
KV.

No photo description available.

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 4.4.2020 kl. 11:04

8 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Image may contain: one or more people, possible text that says 'Top photo was shared last week from an ICU in Italy. Bottom photo was was shared of an ICU in New York this week. Notice the difference??? THERE ISN'T ONE!! And this is your mainstream media ladies & gents... .wake up, you are being fed lies! Careful where you get your info because unfortunately you can't trust much anymore. Slcy news'

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 4.4.2020 kl. 11:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband