1917 - Jóhanna Sigurđardóttir

Sagt er ađ Jóhanna Sigurđardóttir, forsćtisráđherra muni flytja ţingsályktunartillögu um slit alţingis nú fljótlega. Mér finnst samt ađ stjórnmálin öll séu svo óljós um ţessar mundir ađ ţađ er ekki fyrr en alţingismenn eru hćttir öllu ţrasi og ljóst er orđiđ hverjir bjóđa fram í komandi ţingkosningum, sem ég get almennilega fariđ ađ velta ţví fyrir mér hvađ ég eigi ađ kjósa. Öruggt er samt ađ ég mun engan af fjórflokkunum svonefdu kjósa og líklega ekki Bjarta framtíđ heldur. Eins og ég hef áđur sagt eru Píratarnir líklegastir, og koma vel til greina ásamt Lýđrćđisvaktinni og Dögun. Ég hef samt bara eitt atkvćđi og ólíklegt er ađ ţađ skipti nokkru máli. Ţannig má samt ekki hugsa og vel getur veriđ ađ einhverjir hugsi um ţessi mál á svipađan hátt og ég.

Kannski er ég ekki einn um ađ vantreysta fésbókinni. (Umfram Moggabloggiđ.) Sá ekki betur áđan en sjálf Birgitta Jónsdóttir (og Bergţórudóttir) vćri farin ađ efast um fullkomleika fésbókarinnar. Yfirleitt reyni ég ađ lćka sem allra minnst og fer aldrei í fésbókarleiki. Yfirleitt er fésbókin stórhćttuleg. Á ekki von á ađ allir komi nú hlaupandi og skrái sig á Moggabloggiđ – frekar á Wordpress. Einhverntíma hlýtur fésbókartímanum samt ađ ljúka. Mest er ég hissa á ađ fésbókaróvinirnir virđast vera sárafáir.

Af hverju dettur alţjóđlegum stórfyrirtćkjum í hug ađ koma hingađ til Íslands? Jú, bćđi er orkuverđiđ afar hagstćtt og svo er tiltölulega auđvelt ađ plata sveitamanninn. Ţó einn og einn mađur međ fullu viti slćđist öđru hvoru í sjónvarpiđ er ţađ ekkert hćttulegt ef bćđi er búiđ ađ útbúa belti og axlabönd í samningum svo allt sé nú löglegt. Ekki dettur mér í hug eitt andartak ađ Steingrímur og Katrín Júl. séu eitthvađ skárri en Valgerđur og Halldór.

Ţađ er ágćtt ađ blogga sem mest ţví međ ţví rifjast ýmislegt upp fyrir manni og eftir ţví sem mađur skrifar meira er auđveldara ađ koma orđum ađ hlutunum. Á endanum verđ ég kannski farinn ađ segja blogglesendum mínum fleira en nokkrum öđrum. (Ţetta segi ég nú bara til ađ ţeir, sem hingađ hafa fariđ og lesiđ, hćtti ţví ekki.)

Ha ha. Var ekki alveg viss um hvort ég hefđi klárađ međ réttum hćtti (ađ mati rsk.is) skattframtaliđ mitt og fann ţví upp ađferđ til ađ gá ađ ţví. Sótti semsagt um frest en fékk ţá meldingu um ađ viđkomandi vćri búinn ađ skila og frestur yrđi ekki veittur. 

Margt er mannanna bloggiđ
og misjafnt drukkiđ groggiđ.
En ekki er ţví ađ leyna
ađ ţađ fór um Svein og meyna.

Eiginlega er ţetta samsafn af hortittum svokölluđum og ekki einu sinni stuđlađir almennilega. Mér datt ţetta svona í hug í framhaldi af ţví ađ upp í hugann kom byrjun á eldgamalli heimsósómavísu: Margt er mannann böliđ og misjafnt drukkiđ öliđ.

Nú er ég ađ hugsa um ađ prófa nýja leiđ viđ dreifingu á ţessu bloggi. Ţađ er ađ tengja ţetta blogg viđ frétt á Moggablogginu og svo ađ auglýsa ţađ líka á fésbókinni. Fjölyrđi ekki um ţađ meira.

IMG 2858Stóll međ tilheyrandi.


mbl.is Ţingfundi slitiđ og nýr bođađur
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Eitthvađ hefur enn skolast til í sameiginlegu heilabúi ríkisstjórnarfólks.

Forseti Alţingis er ćđsti mađur ţessarar stofnunar og verkstjóri án athugasemda.

Jóhanna Sigurđardóttir er í hópi alţingismanna og auk ţess er hún í forsvari fyrir framkvćmdavaldiđ sem er í vinnu hjá Alţingi. 

Árni Gunnarsson, 22.3.2013 kl. 17:21

2 Smámynd: Ţórir Kjartansson

Ég vil hvetja sem flesta ađ fara nú inn á beina útsendingu frá Alţingi og sjá fáránleikann međ eigin augum.  Ţar skiptist sama fólkiđ á ađ vera í pontunni, aftur og aftur, sjálfu sér til skammar og ţjóđfélaginu öllu til skađa.

Ţórir Kjartansson, 22.3.2013 kl. 18:18

3 Smámynd: Sćmundur Bjarnason

Árni, já ţađ er alveg rétt, en ég er yfirleitt ţeirrar skođunar ađ forsćtisráđherra hafi áhrif á ţingforseta. Eru oftast úr sama flokki.

Sćmundur Bjarnason, 23.3.2013 kl. 09:02

4 Smámynd: Sćmundur Bjarnason

Ég hef stundum fylgst međ umrćđum ţar og ţađ er međ ólíkindum stundum hvernig fólk hagar sér.

Sćmundur Bjarnason, 23.3.2013 kl. 09:04

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband