1576 - Nýársblogg - og ţó

Scan157Gamla myndin.
Skúli Alexandersson tekur á honum stóra sínum.

Nú byrja ég semsagt ađ blogga á nýju ári, Ekki á ég samt von á ađ bloggiđ mitt breytist mikiđ. Ţađ er mér talsverđ auđveldun ađ spekúlera lítiđ sem ekkert lengur í dögum og klukkustundum. Ég bara skrifa mitt blogg og hendi ţví upp á Moggabloggiđ ţegar mér finnst vera tími til ţess kominn. Gćti ţess líka ađ eiga jafnan svolítiđ af myndum á lager til ađ setja fremst og aftast í bloggiđ. Svona er ţetta bara. Ég er íhaldssamur eins og sjá má og breyti helst aldrei neinu. Er ekki einu sinni viss um ađ ég yrđi neitt betri bloggari ţó vinsćldir mínar ykjust mikiđ.

En af hverju er ég eiginlega ađ ţessu. Ţađ fatta ég ekki sjálfur. Mér finnst ég bara skrifa um sjálfsagđa hluti. Jafnvel mínar umdeildustu skođanir (sem ekki eru margar) finnst mér vera sjálfsagđar. Er ég meira „down to earth“, en margir ađrir? Er ég ekki eins illvígur og orđljótur og sumir eru? Kannski, en ţá er ţađ bara eđlilegt og sjálfsagt.

Skelfileg fáviska eru ţessar áramótasprengingar. Ţeim er ađeins ađ linna núna eftir ađ hafa náđ hámarki rétt áđan. Gestir komu en voru farnir fyrir miđnćtti og ég nennti ekki út til á horfa á raketturnar, aldrei ţessu vant. Ţađ var líka nóg ađ gera viđ ađ ganga frá og taka til. Veit ekki hvenćr ég set ţessi ósköp upp á Moggabloggiđ. Sennilega ekki fyrr en annađ kvöld.

Strákarnir voru báđir hérna í kvöld og sögđu mér ýmislegt um Kindle tölvuna og Windows 7 sem ég gleymi vafalaust mjög fljótlega. Ţá er bara ađ spyrja ţá nćst ţegar ţeir koma eđa hringja.

Andskotinn hvađ ţađ er orđiđ vandlifađ. Eftir nýjustu mjólkurfréttum ađ dćma er ég náttúrulega kominn međ bullandi blöđruhálskrabbamein, ţó ég hafi fyrir nokkrum árum hćtt ađ drekka bláa mjólk (3,9%) og fariđ ađ drekka ţá gulu (1,5%). Nú vantar mig bara rannsóknarniđurstöđu um samanburđ á ţessu tvennu. Kannski erum viđ ađ tala um mismun á fitusprendri mjólk og ófitusprengri. (Hryllilegt.) Bíđ frétta af ţessu mikilsverađa máli međ ađra hönd á (nei, sleppum ţví annars).

Ég kýs ađ líta á gulu blettina í landslaginu (snjólaginu) sem hundamerkingar frekar en eitthvađ annađ. Auđvitađ er ţetta „annađ“ mögulegt en mér finnst ţađ ekki sennilegt. Örugglega er ţađ ţó eftir piss en hvađan ţađ kemur er hugsanlega spursmál.

Lagđi ţađ á mig ađ hlusta á áramótaávarp Ólafs Ragnars og auđvitađ var ţađ mestmegnis óttalegt frođusnakk, en hann svarađi ţó ţeirri spurningu sem flestir vildu fá svar viđ. Hann ćtlar ekki ađ bjóđa sig fram einu sinni enn. Óttast sennilega ađ niđurstađa EFTA-dómstólsins geri sig ađ áhrifalausum ţjóđhöfđingja. Nú geta menn fariđ ađ spá og spekúlera í hvern eigi ađ senda nćst á Bessastađi. Ég mun ţó hamast viđ ađ gleyma Ólafi Ragnari. Ég kaus hann á sínum tíma og hann hefur valdiđ mér nokkrum vonbrigđum. Ekki ţó međ Icesave ákvörđunum sínum heldur konungsstćlum.

Held ég hafi skrifađ um ţađ áđur ađ allar götur frá ţví ađ einvígiđ var haldiđ hér í Reykjavík áriđ 1972 sćllar minningar hefur heimsmeistaratitillinn í skák veriđ nokkuđ umdeildur. Ég ćtla ađ setja hér á blađ ţá sem mér finnst ađ hafi eiginlega borđiđ hann síđan. Af ţeim hafa Kasparov og Karpov veriđ minnst umdeildir. Mér finnst listinn líta svona út:

Fischer
Karpov
Kasparov
Kramnik
Anand
Carlsen

Ađrir kunna ađ hafa gjörólíkar skođanir á ţessu og vilja bćta ýmsum viđ á ţennan lista og jafnvel fella einhverja út af honum.

Mér dettur í hug ađ ţađ ćtti ađ koma upp ritrýndri bókmenntasíđu. Internetiđ er kjörinn vettvangur fyrir slíkt. Jafnvel má gera ráđ fyrir ađ síđan geti međ tímanum skilađ tekjum í formi auglýsinga. Ritstjórn síđunnar skiptir mestu máli. Einnig hvernig til tekst međ ritrýnina. Efnisyfirlit og flokkun skiptir líka talsverđu máli. Mér finnst ađ hún eigi einkum ađ beinast ađ ţví ađ greinafjöldinn verđi hćfilegur. Sé frambođiđ af frambćrilegum greinum lítiđ ćttu ritrýnar ađ reyna ađ leiđbeina ţeim sem ţó senda greinar til birtingar. Ef hćgt er ađ halda úti bókmenntaţćtti í sjónvarpinu ćtti ađ vera auđvelt ađ halda úti bókmenntasíđu á Internetinu. Bókmenntaumfjöllun ţar virđist nokkuđ tilviljanakennd.

IMG 7594Hér byrja jólin hjá mörgum.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gleđilegt nýtt ár, skólabróđir, og ţakka ţér skemmtileg blogg á liđnum árum.

Tek undir međ ţér međ sprengingar og áramótabrennur, sem eru eins og margt annađ komiđ hvorttveggja út yfir alla skynsemi eins og fleira hér á landi fyrir löngu. Vonast til ađ okkar röggsami umhverfisráđherra taki á ţessu og takmarki skotelda og helst banni alveg opinn eld utan dyra. Í Evrópu er ţađ víđa ţannig, ađ almenningur getur ekki fengiđ ađ kaupa og brenna skotelda, ţađ fá einungis ţeir, sem hafa fengiđ til ţess sérstök leyfi. Ekki kaus ég Ólaf Ragnar, en nú finnst mér ađ hugsandi og félagslega međvitađ fólk ţurfi ađ koma sér saman um forsetaefni, sem er bćđi trúverđugt gagnvart ţjóđinni og nýrri stjórnarskrá og ekki međ ţessa forpokuđu Jóns Bjarnasonarstefnu gagnvart Evrópusamstarfinu.

Ellismellur 2.1.2012 kl. 13:02

2 Smámynd: Sćmundur Bjarnason

Takk Ellismellur og gleđilegt ár sömuleiđis.

Sćmundur Bjarnason, 2.1.2012 kl. 21:26

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband