1366 - Heimsendir

hveramörk6Gamla myndin.
Þetta er húsið okkar að Hveramörk 6. Ég man að ég var nokkuð ánægður með þessa mynd þó skugginn af mér sæist á henni. 

Búið er víst að spá heimsendi n.k. laugardag. Held að þessi heimsendaspá sé ósköp lík þeim venjulegu sem sífellt eru að koma frá sértrúarsöfnuðum allskonar. Það sem er einkum frábrugðið núna er að í þetta sinn er það auglýst í sjónvarpi. Einhverjir gera ráð fyrir að krakkar og óharðnaðir unglingar kunni að trúa þessu og því sé varasamt að leyfa auglýsingar af þessu tagi. Tek ekki afstöðu í því efni en ósmekklegt er þetta.

Er að hita mér hafragraut. Því miður kemur hann ekki sjálfur. Jafnvel þó ég gæti gripið skeiðina er ég ekki viss um að hann gerði það. Hann er reyndar ágætur þegar búið er að bæta í hann hunangi, kanel, döðlum, mjólk og fleiru. En afleitt er og alltof dýrt að nota Sólgrjón í hann.

Hef svolítið verið að hlusta og horfa á útsendingu frá Alþingi undanfarið og finnst atkvæðagreiðslur þar um afbrigði vegna þess „að svo háttar til" vera með þeim algengustu.

Það er óttalegur ósiður að láta svona og réttast væri auðvitað að neita slíku alltaf. Að þetta skuli yfirleitt þurfa um ný mál bendir til þess að þingsköp séu mjög gölluð. Enginn reki virðist samt vera gerður að því að laga þetta. Þeim sem á forsetastóli sitja hverju sinni finnst greinilega sjálfsagt að þetta sé samþykkt. Mér finnst þetta samt vera eitt af þeim atriðum sem dregur úr virðingu alþingis.

Sumir þingmenn virðast misskilja það sem sagt er um hálftíma hálfvitanna og halda að það eigi að láta eins og hálfvitar þá. Finnst annars ekki rétt að blanda alþingi mjög í hugleiðingar þær sem hér eru fram bornar.

Þó mér leiðist pólitík get ég ekki að því gert að mér finnst sjálfstæðisþingmenn ganga of langt í LÍÚ-þjónkun sinni.

LÍÚ-menn töpuðu einfaldlega í kvótamálinu. Þeir létu Gylfa og hina Alþýðusambandsmennina snúa á sig áróðurslega. Þar að auki snerust síðustu kosningar ekki bara um Hrunið heldur jafnframt um kvótamálin. Þau eru lengi búin að krauma í þjóðfélaginu en með hruninu varð augljóst hver hugur þáverandi ríkisstjórnar var í því efni.

Mín skoðun er sú að þeir sem eiga 10-11 búðirnar séu þjófar og ræningjar. Fyrir nokkrum vikum keypti ég þar einn lítra af mjólk. Hann kostaði 154 krónur. Það finnst mér of mikið. Ef ég mögulega get reyni ég að komast hjá því að versla við slíka okurbúllu. Núna áðan (um kl 11 í kvöld) keypti ég mjólkurfernu í Nóatúni (sem er líka opið alla nóttina) á 112 krónur. Samskonar fernur er hægt að fá hjá bakaríum á landsbyggðinni fyrir 120 krónur. Ég vorkenni þessum þjófum ekki að hafa verðið svipað.

IMG 5498Hellir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óli minn

Ætli sé ekki best að kveðja samt til öryggis. Og ég hefði getað sagt þér þetta með 10-11.

Óli minn, 20.5.2011 kl. 06:48

2 identicon

Þær eru margar heimsenda og hamfaraspárnar hjá geðveikum og/eða glæpamönnum.
Ég man þá tíð hér á mbl þegar þeir og aðrir MIÐLAR birtu hræðilegar jarðskjálftaspár.. svona eins og í Malasíu, spámiðilinn íslenski seldi að auki jarðsjálftaheld hús upp á 12 á Richter.. svona eins og spámiðillinn í Malasíu sem seldi gáma sem vörn gegn jarðskálftum.
Maðurinn í Malasíu sætir nú lögreglurannsókn... spámiðillinn á íslandi sem mbl studdi sem best þeir gátu... mbl heimtaði að ég bæði hana afsökunar.. já og svo ráku mbl mig af blogginu.. fyrir að benda á hið augljósa, að téður spámiðill væri geðveikur/glæpahundur :)

Svona styður mbl og sjálfstæðisflokkur við heimsku og hjátrú landans.. ekkert annað fær fólk til að kjósa rugl ... eins og hjátrú og heimska.

:)

doctore 20.5.2011 kl. 08:52

3 Smámynd: Óli minn

Satt segirðu Doktor. Það virðist ekki sama hver segir hlutina hjá þeim sem sem sjá um Moggabloggið. Miðað við þinn brottrekstur þá hefðu margir aðrir átt að fá að fjúka fyrir löngu. Hins vegar mega menn passa sig á að viðhafa ekki meiðandi ummæli.

Óli minn, 20.5.2011 kl. 10:34

4 identicon

Íslendingar eru ~fatlaðir þegar kemur að svona málum.
Hlustið td á Þorgeri Ástvalds og co á RVK síðdegis; Þeir hringja í Snorra í Betel, hann er sjálfur svona dómsdagsruglukollur, þeir gagnrýndu EKKERT sem hann sagði, sögðu bar já og amen við þvælunni sem upp úr honum kom.
Einnig ræddu þeir um daginn við Magga Skarp í Geimveru og draugaskólanum, sama mál þar; Þorgeir og meðstjórnandi létu Magga Skarp æla út úr sér þvílíku sorpi.. samþykktu allt, spurðu einskis, bara; Já er það virkilega..
Sorglegt alveg..

doctore 20.5.2011 kl. 12:20

5 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Doctore ég er sammála þér um þetta. Hef sjálfur oft hneykslast á trúgirni fjölmiðla. Nota þá samt ekki mjög mikið. Man hve ósáttur ég var við Bylgjuna þegar á dagskrá voru þar einskonar miðilsfundir og ég var að vinna hjá fyrirtækinu sem átti þennan andskota.

Sæmundur Bjarnason, 20.5.2011 kl. 12:56

6 identicon

Það er klárt mál að þegar Þorgeir og félagi hans tala við hjátrúarfólk, þá slökkva þeir á heilanum í sér.
Ég veit ekki hvers vegna, kannski einhver fáránleg kurteisi/rétttrúnaður, þátturinn þeirra verður allur hinn fáránlegasti fyrir vikið.
Ef þeir ræddu við annað fólk eins og þeir tala við hjátrúarfólkið, þá væri löngu búið að taka þennan þátt af dagskrá.

doctore 20.5.2011 kl. 14:15

7 Smámynd: Óli minn

Kannski þeir líti þannig á að það sé ekki þeirra að dæma um hugðarefni viðmælenda sinna og hvað upp úr þeim kemur heldur hlustenda. Ég hef alla vega litið svo á að þeir séu bara að standa undir því að "miðla" í stað þess að ota eigin skoðunum að.

Óli minn, 20.5.2011 kl. 14:48

8 identicon

En þeir tala ekki á sama máta við aðra, td stjórnmálamenn; Já ok, þeir eru afar linir og lélegir að spyrja yfirhöfuð, þó tekur botninn úr þegar hjátrú og ofskynjanir eru annars vegar.

Segjum að þeir væru með DO og spyrðu hann eins og þeir spyrja hjátrúarfólkið.
SP: Hvað segir þú um hlut þinn í hruninu DO?
DO: Ég bjargaði íslandi með aðra höndina bundna... ísland hefur aldrei staðið betur, án mín og sjálfstæðisflokks myndi ísland sökkva í sæ.
SP: Já er það, frábært hjá þér, takk kærlega.
Þar hafið þið það kæru hlustendur, Davíð er frábærasti maður ever, hann bjargaði íslandi og íslendingum frá því að sökkva í sæ.. án hans værum við öll dauð
Verið þið sæl..

doctore 20.5.2011 kl. 15:09

9 Smámynd: Óli minn

Nei, þeir segja einmitt ekki svona. Reyna að taka enga afstöðu. Það hefur mér a.m.k. fundist.

Óli minn, 20.5.2011 kl. 15:50

10 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Fjölmiðlamenn taka alltaf afstöðu. Þó ekki sé nema með því við hverja þeir tala og hvaða efni þeir hleypa að. Dagskrárefni er samt allt annars eðlis en fréttir. Með vali dagskrárefnis er alltaf tekin einhver afstaða. Útilokað er að sýna allt sem er í boði. Væri það hægt væri samt um afstöðu að ræða með því hvenær sýnt væri. (hvar ef um prentmiðla væri að ræða.)

Sæmundur Bjarnason, 20.5.2011 kl. 18:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband