1036 - Kosningum lokið - Allir þreyttir

Einhverntíma var sagt: „Er nokkuð til eldra en dagblað frá í gær?" Nú sé ég að hér eru eldri og ómerkari hlutir. Nefnilega bæklingar með kosningaáróðri sem eftir á að henda. Get ekki ímyndað mér úreltari hluti.

Merkilegt hvað allir stóðu sig vel í nýafstöðnum kosningum. Unnu yfirleitt á eða töpuðu að minnsta kosti afar litlu ef viðmiðin eru höfð rétt. Einstaka eru samt svo slæmir að þeir fara bara í fýlu og segja af sér. Jón Gnarr tapaði reyndar engu og hafði engu að tapa.

Fyrir mér sýna kosningaúrslitin um helgina einkum það að hlutirnir geta breyst þó erfitt sé að gera ráð fyrir slíku. Vonandi gengur einhver gnarrlegur fram fyrir skjöldu í næstu þingkosningum. Það er að segja ef Jón og félagar standa sig bærilega.

Best að skrifa sem minnst ef maður hefur ekkert að segja. Þessvegna þagna ég núna en set inn fáeinar myndir.

IMG 1934Ghostbusters á Akureyri. Ætli það séu ekki draugafælur sem þeir eru með á bakinu?

IMG 1943Galleríið hjá Jónasi Braga. ÓRG fékk glerlistaverk hjá honum til að gefa Margréti Þórhildi þegar hún átti afmæli eða eitthvað.

IMG 1953Tálbeita fyrir býflugur.

IMG 1957Og hér er ein að reyna að komast út.

IMG 1964Bíóhöllin á Akranesi. Fædd 1942 eins og fleiri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Sæll Sæmundur, verst að ekki skuli vera hægt að henda úreltum stjórnmálamönnum með kosningapésunum . Og ekki var búið að skipta út kosningaáróðrinum á auglýsingaskiltum strætóskýlanna í gær. Flögguðu ennþá Hönnu Birnu (hinum óháða frambjóðanda!) Líklega eru þessar auglýsingar hið næsta sem sú ágæta kona hefur komist að nýta sér þjónustu Strætó BS. Ekki veit ég hvort Besti flokkurinn skilar okkur einhverjum gæðum, en þeir standa okkur alla vega nær en gæðingar fjórflokksins og um það snýst gagnrýnin á fjórflokkinn þótt margir skilji það ekki og kjósi að snúa útúr

p.s hvað varð um Steina Briem?  Hann er líka hættur að athugasemdast hjá Ómari...

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 1.6.2010 kl. 09:51

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Sæll Jóhannes. Gaman að heyra í þér. Já, stjórnmálin eru manni alltaf hugleikin þó maður reyni að láta þau ekki stjórna öllu.

Steini Briem er a.m.k. aktívur á Facebook sýnist mér. Heitir þar reyndar Oliver Twist og er vinur minn þar þrátt fyrir allt.

Sæmundur Bjarnason, 1.6.2010 kl. 11:40

3 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Sæll.

Besti Flokkurinn er frjálslyndur og heiðarlegur lýðræðisflokkur sem vinnur að stöðugum umbótum á samfélaginu og lausn sameiginlegra viðfangsefna þjóðfélagsins á jafnréttisgrundvelli, með víðsýni að leiðarljósi.

Við lofum að stöðva spillingu. Við munum gera það með því að stunda hana fyrir opnum tjöldum. Við viljum opna Kvennastofu þar sem konur geta komið og fengið sér allskonar kaffi með bragðefnum eins og vanillu og kanil. Og svo mega þær tala eins og þær vilja og það verður allt tekið upp og geymt. Við ætlum að skipuleggja óvissuferðir fyrir gamalmenni. Í rauninni erum við samt ekki með neina stefnu en við þykjumst vera með hana. Við hlustum á þjóðina og gerum eins og hún vill því þjóðin veit best hvað er sér fyrir bestu. Við getum boðið meira af ókeypis en allir aðrir flokkar því við ætlum ekki að standa við það. Við gætum haft þetta hvað sem er, til dæmis ókeypis flug fyrir konur eða ókeypis bílar fyrir fólk sem býr útá landi. Það skiptir ekki máli.

Besti Flokkurinn er besti vettvangurinn undir lýðræðislega umræðu, Besti flokkurinn er bestur fyrir þig!

Ég stofnaði Besta flokkinn af því að mig langar að fá vel launað starf og að komast í áhrifastöðu þar sem ég get hjálpað vinum og vandamönnum með ýmislegt. Mig langar líka að vera með aðstoðarmann.

Er ekki þetta meðal annars það sem við viljum?

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 1.6.2010 kl. 20:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband