719 - Á hverfanda hveli

Okkur bloggurum hættir til að sýna málum sem tengjast bankahruninu fullmikla léttúð. Dæmið um manninn á Álftanesinu sýnir að þetta er dauðans alvara. Íslenskt þjóðfélag er breytt eftir bankahrunið. Bankar njóta ekki trausts. Stjórnvöld njóta ekki trausts. Stjórnmálaflokkar njóta ekki trausts. Fjölmiðlar njóta ekki trausts. Í stuttu máli sagt þá er traust orðið að sjaldgæfum munaðarvarningi hér á landi. 

Sjálfur fjármálaráðherrann og formaður Vinstri grænna nýtur ekki einu sinni trausts meðal sinna eigin þingmanna. En því miður, alþingismenn njóta ekki trausts frekar en aðrir. Þegar fólk treystir ekki lengur sínum nágrönnum og sinni fjölskyldu þá er stutt í byltinguna. Og hún étur börnin sín. Þeir sem ofaná fljóta eru einkum þeir sem afskiptalausastir eru.

Ég er hræddur um að ástandið hér á landi eigi eftir að versna enn áður en það fer að batna. Dómharka og ábyrgðarleysi vex, stjórnmálastarfsemi er í lamasessi, Lög og regla eru á undanhaldi og margt á fallanda fæti. Grunnstoðir samfélagsins halda þó enn.

Látum ekki etja okkur út í algjört stjórnleysi.

Var að enda við að lesa grein Guðbjörns Guðbjörnssonar sem hann birtir á bloggi sínu í dag (17. Júní) og kallar: Er þjóðin samdauna spillingu, valdhroka, óbilgirni, valdníðslu, siðleysi, kúgun , klíkuveldi og ættdrægni? Þetta er góð grein. Verulega góð og ég hvet alla til að lesa hana.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eygló

Það tóku krumlur um hjartað í mér þegar ég sá fréttina um niðurrif hússins.  Samt leið mér þannig að hugur minn og samúð var öll hjá manninum. Ég hef ekki hugmynd um forsögu þessa máls en auðvitað flökrar að manni að hún hafi verið þung og sársaukafull.

Eygló, 18.6.2009 kl. 00:21

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mest kvíði ég því ef maðurinn verður dæmdur. Það væri ranglæti svo hrikalegt að bylting væri betri.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 18.6.2009 kl. 19:37

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, og í þeirri byltingu ætti að afhöfða sem flesta!

Sigurður Þór Guðjónsson, 18.6.2009 kl. 19:38

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Sigurður, þarna finnst mér þú nú vera ansi mikið á mörkunum. Moggaguðirnir gætu lagt þetta út á versta veg.

Sæmundur Bjarnason, 18.6.2009 kl. 22:21

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Moggaguðirnir eru tvímælalaust meðal þeirra sem fyrst ætti að afhöfða.

Sigurður Þór Guðjónsson, 18.6.2009 kl. 22:32

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Moggabloggsguðirnir ætlaði ég að segja. Skiptir kannski ekki miklu máli. Ekki ætla ég að fara að munnhöggvast við þig, Siggi. Kannski best að fara bara í felur.

Sæmundur Bjarnason, 18.6.2009 kl. 23:33

7 Smámynd: Eygló

Ég samþykkti að þessi maður sæti inni um tíma........ EF jafnframt auðrónarnir færu bak við lás og slá!!!!!

Eygló, 18.6.2009 kl. 23:53

8 identicon

Það er uppi á mönnum typpið hérna!

Malína 19.6.2009 kl. 21:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband