599. - Það er tungunni tamast sem er hjartanu kærast

Geir Haarde var í imbakassanum í kvöld og sagði óvart að allt snerist um kosningabaráttu hjá Sjálfstæðisflokknum. Meinti reyndar stjórnarandstöðu og leiðrétti sig. Allir stjórnmálaflokkar eru komnir í bullandi kosningabaráttu. Ekki síður Samfylkingin en aðrir. Kannski vilja þeir gera eitthvað almennilegt líka en kosningabaráttan er númer eitt.

Það er enginn vafi í mínum huga að bloggið er komið til að vera. Það getur þó eflaust breyst og mun gera það. Áfram munu margir vilja tjá sig á þennan hátt. Sumir þykjast aldrei lesa blogg en flestir bloggarar finna að minnsta kosti fáeina lesendur. Annars væru þeir ekki að þessu.

Hvernig á að blogga? Það er spurningin. Sjálfur er ég alltaf í vafa. Á ég að linka? Á ég að myndskreyta bloggið og reyna að láta það líta sem best út? Á ég að blogga langt eða stutt? Um hvað á ég að blogga?

Sumir blogga bara fyrir fjölskyldu og nána vini og þá gjarnan ekki nema öðru hvoru. Aðrir eru alltaf að þessu. Jafnvel oft á dag.

Já, spurningarnar eru endalausar. Lausnirnar sem ég hef fundið eru einkum þær að blogga frekar stutt í hvert skipti. Blogga reglulega og frekar oft. Um það bil daglega. Linka aldrei í fréttir. Og svo framvegis.

Allt er þetta samt breytingum undirorpið. Einu sinni notaði ég ekki einu sinni fyrirsagnir. Ég númera bloggin mín alltaf og hef ekki séð aðra gera það. Sérviska í sérflokki. En hefur þetta áhrif? Ég veit það ekki. Kannski. En meðan mér finnst gaman að þessu og það truflar mig ekki við annað held ég því áfram.

Að koma hugsunum sínum í orð með sæmilegum hætti er fyrst og fremst æfing. Að kalla lesendur sína fávita eins og sumir gera er oflæti. Pólitík snýst um skoðanir. Sínar eigin og annarra. Stjórnmál eru trúboð. Stjórnmálamenn og útrásarvíkingar hafa svikið okkur illilega undanfarin ár. Góð hugmynd er að gefa öllum þeim sem um stjórnmál og efnahagsmál hafa vélað að undanförnu langt frí.

Hvað stjórnmálamennina varðar getum við gert það í komandi kosningum. Ekki með því að kjósa réttan flokk. Heldur með því að kjósa ný öfl. Stuðla að því að stjórnlagaþing verði haldið fyrr en seinna og að það fái raunveruleg völd. 

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæmundur þetta er fínt eins og þú hefur það.  Of langt blogg er þreytandi.  Oft finnst mér nothæft þó að geta farið beint inn í frétt sem vitnað er í .

EE elle

EE 10.2.2009 kl. 05:54

2 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Góð færsla hjá þér um Bloggið, Hjá mér er þetta tómstunda gaman í vetur(orðinn löggiltur)Maður hugsar svo margt og stundum langar mig að deila þeim með öðrum,er latur að lesa langa pistla.Þetta er góð æfing að koma hugsunum sínum á fram færi og jafnvel í sem fæstum orðum.

Ragnar Gunnlaugsson, 10.2.2009 kl. 08:57

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Næstum því öll blogg eru bara píp og kjaftæði! Og það er í fínu lagi.

Sigurður Þór Guðjónsson, 10.2.2009 kl. 12:08

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Siggi: Margt fleira en bloggin eru bara píp og kjaftæði. Stundum finnst mér þau vera með því skásta.

Varðandi linka í fréttir þá eru fréttirnar oft orðnir bæði úreltir og illfinnanlegir þegar ég hef loksins eitthvað um þær að segja.

Sæmundur Bjarnason, 10.2.2009 kl. 18:22

5 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Þetta með linkana sýnir vel hvað varasamt er að skrifa af fingrum fram og flýta sér of mikið. Beygingar og annað fer í hund og kött en ég held að þetta skiljist.

Sæmundur Bjarnason, 10.2.2009 kl. 18:25

6 identicon

Ég tók ekki einu sinni eftir þessu með linkana fyrr en þú dyggilega bentir á það. 

EE

EE 10.2.2009 kl. 22:32

7 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Það skiptir blessaða þjóðina minnstu máli hvernig á að róa lífróðurinn, heldur hvernig prófkjörin fara.

Eins gott að hafa forganginn á hreinu.   Ekki satt ?

Hildur Helga Sigurðardóttir, 10.2.2009 kl. 23:14

8 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Jú, jú. En mikil afglöp í prófkjöri væri hægt að leiðrétta í kosningum. Prófkjörin og hverjir bjóða fram á hverjums stað er byrjunin og það má eiginlega engan tíma missa.

Sæmundur Bjarnason, 10.2.2009 kl. 23:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband