578. - Meiri líkur fyrir Geir að halda flokksformennskunni ef hann segir strax af sér

Fór niður í bæ í dag. Fyrst á Austurvöll en þar voru engir mótmælendur. Þeir fundust svo við stjórnarráðið en fóru svo aftur á Austurvöll en ég heim. Hef horft og hlustað á fréttir og þessháttar í kvöld og það er engin ástæða til að vera að blogga mikið um þetta. Ríkisstjórnin mun tæpast lifa þetta af. Geir er þó enn í afneitun.

Langskynsamlegast væri fyrir ríkisstjórnina að semja strax með sæmilega skipulögðum hætti um kosningar og stjórnarfyrirkomulag fram að þeim. Ótrúlegt er að stjórnin lafi framyfir landsfund Sjálfstæðisflokksins og möguleikar Geirs eru meiri á að halda formannssætinu þar ef hann segir af sér núna fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Sjálfstæðismenn eru svo miklir aumingjar að þeir munu kjósa Geir semformann alveg einróma.

Sigurður Þór Guðjónsson, 21.1.2009 kl. 23:00

2 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Ekki meir Geir

Kjartan Pétur Sigurðsson, 22.1.2009 kl. 09:48

3 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Siguður Þór:

Þarna skjátlast þér hrapalega og sjálfstæðismenn eru þegar farnir að undirbúa mótframboð gegn Geir H. Haarde! 

Guðbjörn Guðbjörnsson, 22.1.2009 kl. 18:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband