547. - Áframhaldandi pælingar um DV-málið og ýmislegt fleira

Fæ oftast ekki mikið af athugasemdum með gagnrýni á mig og mín skrif. Við BenAx ( líklega Benedikt Axelsson) vil ég bara segja að ég veit ekkert hvernig kaupin gerast á DV-eyrinni. Bara að spögulera. 

Sisi sem ég veit ekkert hver er skilur mín skrif á sinn hátt og ég get ekkert að því gert. Hef áður skrifað um sjálfsgagnrýni á fjölmiðlum og held að hún sé jafnvel verri en önnur. Miklu algengari líka. Baldur fullyrðir líka eitthvað sem ég held að hann viti ekki fyrir víst.

Eitthvað er að breytast varðandi mótmæli og þessháttar. Fréttir eru líka orðnar talsvert öðruvísi en var. Ég er ekki frá því að alvarleiki fjármálakreppunnar sé farinn að renna upp fyrir fjölmiðlungum. Stórlega skertum lífskjörum almennings næstu árin er ekki hægt að stinga undir stól.

Þegar íslenska sjónvarpið hóf göngu sína árið 1966 spáðu margir illa fyrir öðrum fjölmiðlum. Það hefur ekki nema að hluta komið fram. Bækur virðast til dæmis halda hlut sínum allvel og gera ef til vill líka gagnvart Netinu. Að fólk borgi peninga fyrir að fá fréttir og að njóta froðuskemmtunar er alveg fráleitt. Auglýsendur eru smám saman að uppgötva Netið og þegar fjármagn þeirra er farið frá hinum miðlunum er lítið eftir.

Ástandið í Zimbabwe er skelfilegt. Öðru hvoru birtast tölur um verðbólguna sem þar ríkir. Þær tölur breytast ört og segja í rauninni lítið. Um daginn var í ríkissjónvarpinu enn og aftur sagt frá ástandinu þar. Þar kom fram að einn maður af hverjum tíu hefði atvinnu. Það finnst mér vera nokkuð sem betra er að átta sig á en verðbólgutölunum.

Einu sinni var það svo að þegar komið var í Tíðaskarð á leiðinni að norðan blasti ljósadýrðin í höfuðborginni við. Nú fara næstum allir í gegnum rörið undir fjörðinn. Við borun ganganna var gert ráð fyrir að sumir þyrðu ekki að fara í þau og færu frekar fyrir Hvalfjörð. Í eldgamla daga lá vegurinn fyrir Hvalfjörð rétt hjá Staupasteini sem hlýtur að vera þarna ennþá. Mig minnir endilega að hann sé ekki langt frá Tiðaskarði.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

Já, það er óhætt að segja að þú skrifar öðruvísu enn flestir aðrir og það er jákvætt í mínum augum.

Ég sjálfur er herskár, ruddi, skemmdur eftir að hafa unnið í kringum afbrota- og glæpamenn, sem er sitthvor tegundin. Í Svíþjóð í 20 ár í mörgum fangelsum.

Hef ekki verið á á Íslandi síðan 1988 nema rúm 2 ár sem ég kom til Íslands að sinna móður minni "í góðærinu" sem var bara biðröð fyrir aldraðra. Fór  frá Íslandi þegar hún dó.

Vann 4 tíma tíma í viku á Litla-Hrauni og hef aldrei upplifað annað eins.

Ég ætla nú ekkert að krítisera Ísland, nema með því að segja að mér líkar ekki þetta land. Skúrkar eiga það, sjórna því, margir glæpamenn eru háttsettir í Ríkisstjórn, enn landið missir ekki fegurð sína á því. Intresant að lesa pistlana þína.

Ég hélt að að allt vit væri farið til andskotans, enn svo koma menn eins og þú og sannar að svo er ekki.

DV bullið hefur ekki vakið neinn áhuga hjá mér. Hvcort maðurinn heitir Reynir eða Greynir, er mér nákvæmlega sama um.

Takk fyrir vel orðaðan pistil, ég sjálfur er að verða slappur í íslensku..

 PS. Staupasteinn er á sínum stað! Engar áhyggjur af því...

Og í guðana bænum farðu ekki að setja út á stafsettningunna, þá vittna ég bara í Laxness..

Óskar Arnórsson, 19.12.2008 kl. 17:42

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Þakka hrósið. Ef ég skrifa öðruvísi en aðrir er það eflaust vegna þess að ég hugsa öðruvísi.

Ég er oft að velta fyrir mér hversvegna fólk les bloggið mitt. Þessvegna er ég mjög ánægður með þetta innlegg þitt.

Sjálfur er ég alltof latur við að kommenta á annarra manna blogg þó ég lesi ókjörin öll af slíku.

Sæmundur Bjarnason, 19.12.2008 kl. 18:55

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ég ætti eiginlega að taka þig til fyrirmyndar. Hef engar og aldrei haft. Ól mig upp sjálfur og það tókst ekkert of vel..

Óskar Arnórsson, 19.12.2008 kl. 23:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband