265. - Þegar Bláfell brann í desember árið 1951

Í dag er hlaupársdagur og í tilefni dagsins eru vinsældir þessa bloggs að hlaupa frá mér. Ég sá ekki betur núna rétt áðan en ég væri beinlínis kominn í Áttuklúbbinn sem ég hef kallað svo og bloggaði um nýlega.

Af þessu tilefni er ég að hugsa um að hefja endurbirtingar á einhverju af því sem ég hef sett hingað áður. Hófs mun ég reyna að gæta í því og ávallt geta þess fremst í hverju bloggi ef ég geri slíkt. Þetta efni sem hér fer á eftir setti ég upphaflega á bloggið í fernu lagi í apríl síðastliðnum og þá voru lesendur minir mun færri en nú er.

ÞEGAR BLÁFELL BRANN

Þegar níu ára gamall drengurinn kom út fór hann strax að brunarústunum. Þarna hafði heimili hans verið þangað til í nótt. Hann hafði fæðst í þessu húsi og alið þar allan sinn aldur. Nú var allt brunnið til kaldra kola. Ekki einu sinni flekkóttir veggir uppistandandi, því þetta hafði verið timburhús. Alveg ný viðbygging hafði þó verið klædd að utan með asbesti og um nóttina þegar mest gekk á höfðu smellirnir í asbestinu verið eins og vélbyssuskothríð. Ja, allavega hafði mikið gengið á. Nú var þetta allt saman kolsvart og ólögulegt, hálfbrunnar sperrur, upprúllað járn af þakinu, brunnin húsgögn og hvaðeina allt í einni bendu. Yfir öllu gnæfði samt svartur og sótugur klósettkassi úr járni eða einhverjum málmi á sínu járnröri. Keðjan sem togað var í til að sturta niður með var meira að segja á sínum stað.

Hann fann eiginlega ekki til neinna sérstakra tilfinninga, eiginlega kom honum þetta ekki svo mikið við. Foreldrar hans myndu ráða framúr þeim vandamálum sem við blöstu og það var svosem ekkert sérstakt sem hann saknaði. Engin áhugaverð föt eða merkileg leikföng. Vinir hans og félagar mundu áfram verða til staðar, systkinin og foreldrarnir einhvers staðar nálægt eins og venjulega, skólinn á sínum stað o.s.frv. Eiginlega var ekki til neins að vera að hanga yfir þessu. Nær að reyna að fara eitthvað. Nú var hann með alveg pottþétta afsökun fyrir því að læra ekki neitt. Ekki það að hann þyrfti yfirleitt mikið að læra heima. Honum gekk alveg prýðilega í skólanum án þess. Hann nennti ekki einu sinni að gá að því hvort nokkuð nýtilegt eða merkilegt væri að finna í rústunum heldur rölti af stað upp að Reykjafossi og Kaupfélaginu, þar mundi hann eflaust hitta einhverja af félögum sínum.

Upp við Reykjafoss hitti ég Jósef Skaftason sem þar var á gangi með Auði systur sinni. Við fórum öll þrjú í áttina að bakaríinu og við Jósef höfðum um margt að tala. Ekkert var þó minnst á atburði næturinnar. Fyrir framan bakaríið heyrði ég að Auður var að spyrja Jósef bróðir sinn um eitthvað en hann sagði henni að þegja og hætta þessu rövli. Ég var forvitinn og spurði hvað hún hefði verið að segja.

"Hún var eitthvað að tala um að húsið heima hjá þér hefði brunnið í nótt", sagði Jósef.

"Af hverju viltu ekki leyfa henni það?" spyr ég steinhissa.

"Ég hélt að það mundi kannski særa þig", svarar Jósef.

Ég er alveg gáttaður. Hvernig getur honum dottið slík fjarstæða í hug. Eins og mér sé ekki sama þó húsið hafi brunnið. Það er frekar að ég geti miklast af því að hafa lent í sögulegum atburðum. Þetta er alveg stórmerkilegt. Að aðrir skuli hafa áhyggjur af því hvernig mér líður, þegar mér líður einmitt prýðilega. Ekki hef ég misst nokkurn hlut sem merkilegur getur talist. Ég þarf að vísu sennilega að sofa einhvers staðar annars staðar næstu nætur og eignast eflaust nýtt heimili von bráðar. En hvað með það? Kannski verður það einmitt bara betra en það gamla. Engin ástæða til vera að væla.

Við Jósef erum góðir félagar og ásamt með Jóhannesi bróður hans leikum við okkur oft saman. Jósef er einu ári yngri en ég og Jóhannes einu ári eldri. Stundum leikum við okkur í fótbolta á túninu hjá Grund og þá er venjulega einn í marki og hinir tveir þykjast vera einhver tiltekin landslið. Eitt sinn kemur Jóhannes okkur mikið á óvart. Hann segist vilja spila fyrir landslið Uruguay. Uruguay? Hver fjandinn er það nú?

"Vitið þið ekki að Uruguaymenn eru heimsmeistarar í fótbolta?" segir Jóhannes þá.

"Heimsmeistarar peimsmeistarar. Þú veist ekki hundaskít um Uruguaymenn", segjum við Jósef, annarhvor eða báðir eða hugsum a.m.k. eitthvað á þá leið.

Í garðyrkjustöð Skafta pabba þeirra Jósefs og Jóhannesar leikum við okkur líka oft. Þar eigum við fullt af merkilegum köllum sem flestir eru hvítir og með stafina Champion um sig miðja. Sumir heita reyndar einhverjum öðrum skrítnum nöfnum og fáeinir eru af öðrum lit en hvítum. Til dæmis eru mjög verðmætir og sjaldgæfir kallar í bleikum lit og við rífumst jafnvel um að eiga þá. Fullorðið fólk segir að allir þessir kallar séu bara bílkerti en við tökum lítið mark á því og látum kallana okkar lenda í ýmsum merkilegum og hættulegum ævintýrum.

Ég hafði vaknað skyndilega um nóttina á dívaninum mínum inni í svefnherbergi hjá pabba og mömmu. Bræður mínir tveir, Vignir 6 ára og Björgvin 2 ára, sváfu líka í herberginu. Í sömu mund og ég vaknaði hafði mamma þotið fram úr hjónarúminu.

Þetta var í öðru af þeim tveimur stóru herbergjum sem voru í viðbyggingunni sem lokið hafði verið við um sumarið. Stelpurnar, Sigrún og Ingibjörg voru í hinu herberginu en Unnur var farin að heiman. Jórunn amma var einnig í húsinu en ekki fleiri.

Ég hljóp fram úr rúminu á eftir mömmu en hún sneri sér við þegar hún hafði opnað fram á gang og sagði við mig:

"Farðu og vektu hann pabba þinn og segðu honum að það sé kviknað í húsinu."

Ég hlýddi umyrðalaust enda var eitthvað skrýtið um að vera frammi á ganginum. Snark og læti ásamt einkennilegri birtu.

Ég flýtti mér að fara hinum megin við hjónarúmið og ýtti á öxlina á pabba:

"Pabbi, pabbi. Vaknaðu. Vaknaðu, það er kviknað í húsinu."

Pabbi var ekki lengi að vakna og þegar við komum fram að svefnherbergisdyrunum kom mamma til baka eftir að hafa vakið aðra í húsinu. Stelpurnar þær Sigrúnu og Ingibjörgu og Jórunni mömmu sína. Þegar hún sá að við vorum komnir að dyrunum sagði hún við mig:

"Hlauptu út með stelpunum, við komum svo á eftir með litlu strákana."

Ég hljóp yfir ganginn rétt á eftir stelpunum sem ég sá í þessu hlaupa út. Þó leiðin væri ekki löng var einhver geigur í mér. Undarleg birta var á ganginum og snark og hiti fyrir ofan mig. Ég þorði þó ekki að líta upp því ég óttaðist að það mundi tefja mig. Þegar komið var yfir ganginn tók við opin dyragætt og eitt þrep niður og þá var komið í bíslagið og útidyrahurðin til vinstri.

Þegar ég kom út stóðu stelpurnar þar og horfðu inn um opnar útidyrnar og á dyragættina innaf bíslaginu. Ég tók mér stöðu við hlið þeirra og saman stóðum við þarna og biðum eftir því að foreldrar okkar og bræður kæmu út úr brennandi húsinu.

Það var fremur kalt í veðri enda komið fram í desember, örlítil snjóföl yfir öllu og jörð frosin. Þó við systkinin værum berfætt og aðeins klædd náttfötum varð okkur ekki kalt. Að minnsta kosti var ekki um það rætt. Reyndar var ekki rætt um neitt. Við stóðum bara þarna og biðum án þess að segja eitt einasta orð.

Ég man að ég stóð syðst og næst kálgarðinum, Ingibjörg í miðjunni og Sigrún næst veginum. Við stóðum dálítið á ská miðað við húsið og störðum í eldinn.

Eftir nokkra stund tóku eldtungur að standa út um opna dyragættina sem við horfðum eins og dáleidd á. Eldurinn magnaðist smátt og smátt og eldtungurnar breiddust fljótlega út um alla ofanverða dyragættina. Drengurinn níu ára gamall og systur hans tvær sem voru nokkrum árum eldri stóðu þarna í umkomuleysi sínu og horfðu á eldinn magnast og æsast og fylla að lokum alla dyragættina.

Hugur drengsins var sem lamaður. Þarna voru foreldrar hans og tveir bræður inni í eldinum og hann gat ekkert gert. Það væri óðs manns æði að ætla sér að fara aftur inn í húsið enda datt engu þeirra það í hug. Þau stóðu bara þarna sem lömuð og gátu hvorki hreyft legg né lið. Hann reyndi að gera sér í hugarlund hvernig lífið mundi verða uppfrá þessu. Hann og systur hans munaðarlaus og mundu hvergi eiga öruggt skjól. En hugur hans var fastur og hann gat ekki hugsað um neitt nema þetta sama fram og aftur.

"Nú verð ég munaðarlaus, mamma og pabbi dáin og bræður mínir ekki lengur til. Þetta er hræðilegt. Ég veit ekki hvað ég á að gera. Ég get eiginlega ekki gert neitt. Bara staðið hérna og starað í eldinn." Aftur og aftur þyrluðust þessar hugsanir í huga hans. Engin niðurstaða fékkst, bara þetta sama aftur og aftur. Hann hafði enga hugmynd um hve lengi hann stóð þarna. Stelpurnar stóðu við hliðina á honum og hugsuðu sennilega eitthvað svipað. Ekkert þeirra sagði þó eitt einasta orð. Það eina sem þau gátu gert var að stara í þögulli skelfingu í eldinn. Þau voru yfirkomin af ógn þess sem var að gerast. Gersamlega lömuð. Ógnin lagðist yfir þau og kom í veg fyrir að þau fyndu til hita frá eldinum eða kulda frá umhverfinu.

Skyndilega kom Vignir blaðskellandi fyrir hornið á húsinu og sagði: "Hvað er þetta? Ætlið þið ekki að koma?"

Álögin runnu af okkur systkinunum á augabragði og við eltum Vigni sem sneri strax við og fór aftur bak við hús. Þar voru foreldrar okkar og Björgvin og höfðu þau öllsömul komist út úr húsinu með því að brjóta rúðu í glugganum á svefnherberginu, því þegar búið var að finna Vigni sem hafði falið sig undir rúmi í öllum ósköpunum, var eldurinn á ganginum orðinn svo magnaður að ekki var fært þar út úr húsinu.

Við fórum nú öll sjö yfir til Steinu og Tedda í næsta húsi og vöktum upp. Amma hafði víst farið til Stefáns hreppstjóra og vakið upp þar. Hjá Steinu og Tedda var okkur að sjálfsögðu vel tekið. Pabbi hafði skorið sig illa á hendinni við að brjóta gluggann og mamma hafði ekki haft tíma til að taka fölsku tennurnar sínar með sér, en að öðru leyti amaði svosem ekkert að okkur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þetta er heilmikil lífsreynsla fyrir 9 ára gamlan gutta.

Anna Einarsdóttir, 1.3.2008 kl. 09:55

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Þú ert góður sögumaður. Ég man eftir að hafa lesið þessa sögu í fyrra en það er betra að fá hana svona í einu lagi. Samhengið heldur sér einhvern veginn betur.

Mér finnst ég sjá þig vel í rólyndi þessa 9 ára drengs sem kippir sér ekki mikið upp við það sem aðrir færu á límingunum yfir.

Lára Hanna Einarsdóttir, 1.3.2008 kl. 12:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband