217. - Pólitík og fyrirsagnir

Ţetta gengur ekki. Ég verđ ađ fara ađ blogga.

Ţó ekki vćri nema til ađ halda mér í ćfingu. Annars hef ég veriđ mjög tímanaumur ađ undanförnu af ýmsum ástćđum.

Mér gengur illa ađ finna tíma til ađ lesa blogg allra minna bloggvina enda eru ţeir orđnir nokkuđ margir. Og ađ ćtla líka ađ lesa önnur blogg ásamt dagblöđum og horfa á sjónvarpsfréttir er bara fullmikiđ međ öllu öđru. Sjáum samt til.

Einhver var ađ blogga um fyrirsagnir. Ég er einn ţeirra sem oft misskil fyrirsagnir. T.d. var ein fyrirsögn á bloggi hjá Ómari Ragnarssyni um daginn sem var svona: „Kallar á sćstreng". Mér fannst mjög einkennilegt ađ heyra um kalla sem hímdu á sćstreng en auđvitađ ţýddi ţetta alltannađ.

Arfleifđ Sjálfstćđisflokksins er ađ hafa aukiđ part ríkisins af ţjóđarkökunni úr 41 prósenti í 48 prósent. Hvernig stendur á ţessu? Er frasinn „Bákniđ burt" fokinn út í veđur og vind? Spyr sá sem ekki veit. Kannski framsóknarmenn geti svarađ ţessu. Ţeir virđast hafa svör viđ öllu ţessa dagana.

Ţađ er ađ verđa spennandi ađ fylgjast međ forkosningum í USA núna. Ţćr verđa víđa á nćstu vikum. Svo verđa flokksţingin og útnefningarnar í sumar og sjálfar forsetakosningarnar í nóvember nćsta haust. Ég er hrćddur um ađ stuđningurinn viđ Íraksstríđiđ verđi frú Clinton ţungur í skauti. Ekki er ótrúlegt ađ svipađ sé ađ gerast međ almenningsálitiđ í ţessu Guđseiginlandi og gerđist hvađ VietNamstríđiđ snerti á sínum tíma.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson


Gunnar Helgi Eysteinsson, 8.1.2008 kl. 08:26

2 identicon

Ţegar ég lćrđi Ameríska sögu í skólanum í Laramie spurđi kennarinn okkur hvernig viđ gćtum vitađ ađ guđ elskađi Ameríku og eitthvađ var fátt um svör. Ţá sagđi hann: ,,God loves America because God gave us Hawaii".

Mér datt ţetta í hug ţegar ţú talađir um Guđseiginland.

Hafdís Rósa 8.1.2008 kl. 11:24

3 identicon

Í gćr rakst ég á "gamlan" nemanda minn á göngunum - stúlkan sú er samt kornung en af ţví ég kenndi henni á haustönninni og ekki núna telst hún gamall nemandi.  Hún bađ mig ađ skila til ţín kćrri kveđju og ţakklćti frá móđur sinni: Ţannig var ađ gegnum íslenskunámiđ komst stúlkan ađ ţćgindum ţeim sem Netútgáfan býđur upp á, t.d. til leitar. Mamma hennar hefur hins vegar notađ útgáfuna til ađ lesa sögur og fornrit af skjá og er víst búin ađ vera ansi iđin viđ ţađ - og er yfir sig ţakklát ţví fólki sem gerđi ţetta kleift!

Stúlkan er frá Gróustöđum, nćsta bć viđ Garpsdal ... ţú veist sjálfsagt miklu betur en ég hvar ţessi bćri er.

Harpa 8.1.2008 kl. 20:01

4 Smámynd: Sćmundur Bjarnason

Nei, ég hef ekki hugmynd um hvar ţessir bćir eru.

En ţađ er alltaf gaman ađ heyra ađ Netútgáfan komi ađ notum. Takk fyrir ţađ.

Henni hefur ekkert veriđ sinnt í mörg ár, en er ţó alltaf á sínum stađ og eitthvađ notuđ.

Sćmundur Bjarnason, 9.1.2008 kl. 01:47

5 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sćll Sćmundur!Ég hef stundum falliđ í gryfju tvírćđna fyrirsagna(ef mađu má komast svona gáfulega ađ orđi)síđast var ţađ mynd af ungri stúlku sem undir stóđ"Syndir á sunnudögum"Nú svona hállfpartinn á elliheimili kominn,gömlum karlfauski eins og mér lék hugur á ađ vita hvađa syndir svona gullfalleg stúlka fremdi á sunnudögum.En međ snarheitum breittust"syndugar hugsanir"(minnugur vísu Ţuru úr Garđi)sem flugu í gegn um jafnsyndugan haus í veruleikan.Ţetta var samtal viđ unga og upprennandi sundkonu sem átti slíkar hugenningar engan veginn skiliđ.Ég var fljótur ađ biđja hana afsökunar í huganum.Kćrt kvaddur

Ólafur Ragnarsson, 9.1.2008 kl. 07:14

6 Smámynd: Kristjana Bjarnadóttir

Já ég sá ţessa kalla í huganum, hangandi á sćstreng, ţegar ég las fyrirsögnina hans Ómars. Gaman ađ ţessu.

Kristjana Bjarnadóttir, 9.1.2008 kl. 20:11

7 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Mér fannst allt of langt á milli blogga hjá ţér núna, Sćmundur... heilir 3 dagar! Ég sakna ţess ef ţú bloggar ekki daglega.

Lára Hanna Einarsdóttir, 9.1.2008 kl. 20:37

8 identicon

Sćll aftur Sćmundur

Alveg glćnýir möguleikar hafa opnast fyrir not Netútgáfunnar eftir ađ hún Ragga komst í spilin. Ragga er vefţula sem les vefsíđur (einfaldar, Röggu hugnast ekki rammar!) og má nálgast af http://hexia.net

Ég sé a.m.k. í ţessu áđur ónýtta möguleika fyrir ţá sem eiga erfitt međ lestur en hafa ekki veriđ greindir međ dyslexiu, sem er forsenda ţess ađ fá hljóđbćkur frá Blindrabókasafninu.

Harpa 9.1.2008 kl. 21:06

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband