3127 - Úkraina

Aldrei í veraldarsögunni hefur stríðshetja orðið til með jafn skjótum og afgerandi hætti og nú á undanförnum dögum. Það getur verið að Rússar leggi undir sig Úkrainu alla og drepi jafnvel Zelensky sjálfan, en með athöfnum sínum síðustu daga hefur hann a.m.k. breytt hugsunarhætti allra Evrópubúa og losað okkur endanlega við svínið Pútín. Sú bylting sem gjörbreytt hefur fjölmiðlun allri á án vafa einhvern hlut að máli, en þáttur Zelenskys er mikill. Hann hefur reynst sannur fulltrúi sinnar þjóðar og engum vafa er undirorpið að varnarviðbrögð Úkraníubúa hafa vakið aðdáun allra Evrópubúa og valdið Pútín og hirð hans miklum vonbrigðum. Margt á að vísu eftir að gerast í þessu stríði en þetta er ljóst nú á þessari stundu, sem er nokkuð snemma á mánudagsmorgni 28. febrúar á Íslandi.

IMG 3988Einhver mynd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Pútín er bara miðaldahugsana þenkjandi óþokki sem hugsar bara um völd í krafti kúgunar,lýgi og sviksemi.Úkraníuforsetinn er orðinn hetja í augum heimsins,vonandi lifir hann þetta af og hinum óþokkanum verði slátrað,heimurinn hefur enga þörf fyrir óþokka og hans líka.Hinn almenni rússi er ekkert verri en aðrir heimsbúar,en vandamálið er Kremlarstjórnin er lítur yfirráðum og skipunum óþokkans.

Sigurgeir Árnason 28.2.2022 kl. 13:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband