1975 - Um strámenn og margt fleira

Sagt er að Sigmundur Davíð tali um strámenn. Það er hættuleg einföldun. Á margan hátt var kosningabarátta framsóknarflokksins einn allsherjar strámaður. Hann (Sigmundur Davíð) vann í Icesave happdrættinu. Það þarf ekki að þýða að hann hafi alltaf rétt fyrir sér. Þetta með skuldir heimilanna og verðtrygginguna held ég að sé mun flóknara fyrirbrigði en hann heldur. Hinsvegar er ekki víst að lækkun veiðigjaldsins sé neitt flókin aðgerð. Sumarþingið gæti alveg afgreitt hana fljótt og vel, þó það geri kannski ekki mikið meira.

Sennilega verður ESB-málið látið malla áfram, ekki slitið formlega heldur frestað um óákveðinn tíma. Evrópusambandið getur hæglega beðið og vill það sennilega helst. Hugsanlegt er að einhverjir óþægir stjórnarliðar flytji frumvarp um það mál. Jafnvel að Vigdís Hauksdóttir geri það. Búast má við að stjórnarskrármálið verði sömuleiðis saltað.

RÚV-ið fer í ítarlegt 3ja mánaða sumarfrí (eða sumardvala) sem er að byrja. Og ég sá á fésbókinni, líklega hjá Láru Hönnu, umræðu um það. Skemmtilegasta skýringin á því var í sambandi við birtuna (þyrfti ekkert kastljós hennar vegna). Aðalspurningin hjá mér varðandi þá kenningu var hvort maí væri ekki í rauninni bjartari en ágúst.

Var að enda við að lesa enn eina greinina um geðlækna eftir Hörpu Hreinsdóttur. Greinar hennar eru flestar hnífskarpar og ótrúlegt að ummælum hennar skuli að mestu ósvarað. Þekkingu hennar á málefninu er erfitt að draga í efa. Eftir að henni sinnaðist við manninn frá Bakka í Ölfusi er hún á móti geðlæknum. Sálfræðingar sleppa.

 Af hverju er feministi samasem jafnréttissinni? Já, ég er dæmigerður orðhengill og finnst ekki að sannir jafnréttissinnar þurfi að sætta sig við svo „kynbundið“ orð.

Mér finnst dálítil fljótaskrift á því að tala um „rigningasumarið mikla 2013“. Vissulega er útlitið rigningarlegt hér í Kópavogi akkúrat núna, en það hlýtur að vera eitthvað eftir af sumrinu. Ég man vel eftir rigningarsumrinu 1955. Kannski er það mest útaf umtali annarra. Man eftir að hafa séð myndir af mönnum að slá (með vélum þó) á milli sáta. (Á kannski að segja sátna.) Ef sumarið í sumar verður eitthvað því líkt þá verður bændabarlómurinn mikill, þó heyverkunaraðferðir séu gjörbreyttar núna. Undanfarin sumur hafa verið okkur góð.

Sumarþingið er komið á matseðilinn. Svo er a.m.k. að skilja á fréttum. Sumum finnst slæmt að frétta bara af því svona utanað sér, en mér er sama. Bara það verði ekki leynilegt. Öfunda ekki alþingismenn og ríkisstjórn af ábyrgðinni. Hægt verður að kenna þeim um allt sem miður fer og það verður margt.

IMG 3197Gulur bíll.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Að grufla yfir eigin geði
er ei til neins
Eigin heilsu hafð' að veði
Harpa Hreins

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 4.6.2013 kl. 13:59

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Eiginlega jú, Jóhannes.
jafnvel grufl um geðið sitt
getur orðið þetta og hitt.

Sæmundur Bjarnason, 4.6.2013 kl. 20:28

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Ekki skil eg neitt í þessum svonefnda forsætisráðherra. Hann telur sig e.t.v. vera forsætisráðherra þjóðarinnar en svo er ekki.hann er forsætisráðherra braskara og stóriðjunnar og þeirra hátekjumanna sem vilja lækka sem mest skatta.

Bröttustu kosningaloforðin komu frá þessum manni. Nú má lesa eitthvað það furðulegasta sem sést hefur í röksemdarfærslum tengdum stjórnmálum á Íslandi, forsætisráðherra Framsóknar býr til nýyrði sem ekki hefur sést áður á prenti að eg best veit: „strámaður“ hvað svo sem þessi íslenska útgáfa af Berlúskóni leggur í hana. Um allt þetta má lesa á heimasíðu kappans: http://sigmundurdavid.is/ad-berjast-vid-eigin-fuglahraedur/

Góðar stundir en helst án fyrirhyggju Framsóknar.  

Guðjón Sigþór Jensson, 9.6.2013 kl. 16:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband