1940 - Þau tíðkast nú hin breiðu spjótin

Ráðist er á Pírata-greyin af mikilli heift, að mér finnst. Þeir geta þó huggað sig við það að fleiri hafa brogaða fortíð en þeir einir. Gísli Ásgeirsson birtir t.d. eftirfarandi grein á sínu vinsæla bloggi: http://malbeinid.wordpress.com/2013/04/14/amnesty-asgerdar-jonu/

Svo má auðvitað minna á Árna Johnsen, en það verða áreiðanlega margir til þess.

Auðvitað er það slæmt að lög séu brotin, http://www.ruv.is/frett/telur-brot-valitors-framin-af-asetningi eins og Valitor eða réttara sagt Visa virðist hafa gert samkvæmt þessari frétt. Mesta athygli mína vekur samt hve langt er síðan brotin voru framin. Ef afsökunin er sú að of mikill málafjöldi hafi verið hjá samkeppniseftirlitinu mætti benda á að forgangsraða þar betur. Trúi illa að um mörg jafn umfangsmikil mál hafi verið að ræða þar.

Já, ég er sammála Jóni Steinari Gunnlaugssyni um að fjölga beri dómsstigum hér á landi. Það er ekki við hæfi að hæstaréttardómarar séu að vasast í svona mörgum málum. Auðvitað mundi það kosta eitthvað en traustið á dómstólunum er það sem heldur þjóðfélaginu saman. Það finnst mér a.m.k. Þegar traustið á þeim er að mestu þorrið er fátt eftir.

Satt að segja er öll þessi umræða um fjármál heimilanna og verðtrygginguna að verða dálítið þreytandi. Líklega fælir þetta bull allt venjulegt fólk frá stjórnmálunum. Kannski er það bara ágætt. Stjórnmálastéttin sameiginlega ber ein og sér ábyrgð á Hruninu og henni verður aldrei treyst framar. Áhuginn allur sem t.d. olli búsáhaldabyltingunni (ég er persónulega sannfærður um að hún var algjörlega sjálfsprottin – og ekki stjórnað af neinum samtökum.) kemur núna einkum fram í fjölda flokka (sem ekki er útaf fyrir sig neitt fagnaðarefni) og versnandi lífskjörum.

Eiginlega er það best að reyna að leiða þessa svokölluðu stjórnmálaumræðu sem mest hjá sér. Vissulega rata atriði úr henni í almennar fréttir en við því er ekkert að gera. Margt fólk hagar sér eins og örgustu kjánar í baráttu sem þessari. Leyfum þeim það bara.

Ég er að komast meira og meira á þá skoðun að það komi ekkert vorhret hér á Reykjavíkursvæðinu. Gott væri að vorið kæmi bara svona hægt og hægt. Hunangsflugurnar (sem villast inn um glugga) og geitungarnir eru það eina neikvæða við vorið. Fuglasöngurinn, birtan og hitinn er það sem maður á að hlakka til að komi.

IMG 2990Í Kópavogi. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hver var/Hverjir voru að "ráðast á Pírata-greyin af mikilli heift"?

Þetta fór alveg fram hjá mér, nema þú eigir við umtal vegna 2-3 manna á listum þeirra, sem höfðu eitthvað brotið gegn lögunum.

Þeir, sem hugleiða að kjósa Pírata, geta hins vegar af fáu haft meira gagn en að verða upplýstir um stefnu þeirra í ESB-málinu. Þar vill þessi flokkur cópera Össurar-umsóknar-stefnu Samfylkingar (og einnig nú orðið Vinstri grænna, "Lýðræðisvaktarinnar", Flokks heimilanna og "Bjartrar framtíðar"), en mikið af fylgisfólki Pírata vill einmitt EKKI frítt spil fyrir auðhringa og stórauðvald (evrópskt eða amerískt, býttar ekki máli) og er þess vegna ekki ginnkeypt fyrir Evrópusambandinu, en tekur kannski ekki eftir meðvirkni foringja Pírata í því máli : að vilja halda áfram Össurarumsókninni, jafnvel eftir að Össur sjálfur virðist vera orðnn henni afhuga!!

Já, Píratarnir eru enn einn ESB-umsóknarflokkurinn!. Samt þykjast þeir á móti auðhringum!

En Alþýðufylkingin vill hætta viðræðunum -- ánægjulegt.

Jón Valur Jensson, 16.4.2013 kl. 23:25

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Skil ekki hvers vegna þú ert að kommenta hjá mér, Jón Valur. Hefði haldið að þú hefðir nóg annað að skrifa á. Ég álít þín pólitísku orð ekki vera neitt Guðspjall. Frekar að það beri vott um þínar öfgar. Annars hef ég dálitlar áhyggjur af því (akkúrat núna) hvernig vinsælir fjölmiðlar (ekki þú) nota áhrif sín til framgangs pólitískra skoðana, sem ég aðhyllist alls ekki.

Sæmundur Bjarnason, 17.4.2013 kl. 09:35

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég hef sömuleiðis harla lítið álit á því, Sæmi, að viss fjölmiðill, Útvarp Saga, sé notaður til að boða sýknt og heilagt: "Og svo kjósum við xI !"

Og ekki álít ég mín pólitísku orð vera neitt guðspjall, sammála þér aftur!

En að orð mín hér ofar eða annars staðar um stjórnmálin "beri vott um ... öfgar", hefur þú aðeins FULLYRT hér, en ekki leitt nein rök að því. Glímirðu svona við gagnröksemdir? Varstu bara að spara þér ómak með þessari frjálslegu alhæfingu?

Jón Valur Jensson, 17.4.2013 kl. 15:09

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Nei, Jón ég var ekki að því. Alhæfingar eru ekkert einkamál mitt. Annars dáist ég stundum að dugnaðinum í þér. (Við öfgarnar auðvitað). Ég var nú ekki bara að tala um Útvarp Sögu þegar ég var að tala um fjölmiðla. Varstu bara að spara þér (eða mér) ómak með því að gera ráð fyrir því?

Sæmundur Bjarnason, 17.4.2013 kl. 17:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband