1854 - Davíð

Mér finnst viss skaði að það skuli ekki lengur vera útrásarvíkingarnir sem eru helsta bitbein hinnar pólitísku rétthugsunar. Það eru greinilega barnaníðingar sem hafa stolið glæpnum af þeim. Alla sem hugsa öðruvísi en ég kalla ég pólitískt rétthugsandi. Einkum þá sem eru til vinstri. Þá sem eru hægra megin við mig kalla ég yfirleitt öfga-hægrimenn. Þannig er það bara. Allir verða að fara í réttar skúffur. Annars er á illu von. Pólitískt séð virðast margir hugsa svona. Þessvegna er svona leiðinlegt að skrifa á þennan hátt. Gaman að lesa skrifin samt. Einkum ef skrifarinn er með svipað skúffusystem og maður sjálfur.

Ekki það að barnaníðingar eigi ekki skilið flest þau óvægnu skrif sem á þeim dynja þessa dagana. Ég er hræddastur um að þetta valdi því að hætt verði (nema af sérstökum) að elta ólar við víkingabesefana. Þeir eru líka svo margir og afbrot þeirra svo illskiljanleg að best er að hætta þessu veseni. Blöð eins og DV mega ekki orðinu halla þá eru þau lögsótt. Kærurnar dynja á þeim og sumar eru staðfestar af dómstólunum, enda er blaðið nánast á hausnum.

Svo fara kosningar víst að nálgast. Æ, þetta er hálfleiðinlegt. Vildi að það væru bara nokkrir dagar í kosningar. Það sem líklega verður mest spennandi núna á næstunni er formannskjörið í Samfylkingunni. Held samt að Guðbjartur vinni þó þeir sem um þetta skrifa virðist flestir vera á bandi Árna Páls.

Vont er að skrifa um það sem maður á að skrifa um og hefur verið sagt að skrifa um. Óvíst er að það skipti nokkru máli þó maður hafi sagt sér það sjálfur. Það þýðir nefnilega ekkert að ákveða fyrirfram hvað maður ætlar að blogga um. Langbest er að blogga bara um það sem manni finnst skemmtilegt að skrifa um. Eftir að búið er að skrifa er ágætt að lesa það yfir sem skrifað hefur verið. Þá má alltaf stroka það út sem heppilegra er að sleppa. Greinilega er ómögulegt að skrifa of mikið. Alltaf er hægt að eyða því sem maður hefur skrifað um of eða fela það ef maður er hræddur um að enginn nenni að lesa það.

Við ellilífeyrisþegarnir erum áreiðanlega talsvert öfundaðir af þeim sem þurfa að vinna uppá næstum hvern einasta dag. Það er samt margt sem kemur á móti þessum ímynduðu gæðum lífsins. Allt gengur miklu hægar og í ofanálag þurfum við svo að horfa framá það að æfin styttist sífellt. Kannski eru líka allskyns sjúkdómar að hrjá okkur og við erum ekki nærri eins fljót og áður að hrista veikindi og þessháttar af okkur. Margt fleira mætti tína til og það er ekkert sérstakt að mega sofa út á hverjum degi. Það hættir undireins að vera eitthvað spennandi. Ef heilsan er góð og ekkert amar að er þó auðvitað hægt að nýta sér þetta seinfengna happ sem fólgið er í því að þurfa ekki að vinna. Eiginlega eigum við það alveg inni að slappa svolítið af .

Já, ég er orðinn gamall og hef mest gaman af því að skrifa um allan fjandann. Réttara sagt samt að blogga því ég get ekki hugsað mér að vera að fást vikum og mánuðum saman við sama textann.

Skilst að Davíð Oddsson hafi haft eitthvað við stjórnarskrárfrumvarpið að athuga. Það er hugsanlega sumt rétt hjá honum. Mér finnst farið með of miklum látum í það mál. Verst að enginn tekur, að ég held, mark á Davíð lengur. Hef ekki trú á að stjórnarskrármálið komist samt í gegn á þessu þingi. Ekki verður heldur neitt ákveðið varðandi ESB fyrir kosningar. Steingrímur virðist svo ætla að sjá til þess að útvegsmenn fái allar sínar kröfur uppfylltar í kvótamálinu. Sorglegt.

IMG 2404Hvað er þetta?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er augljóslega körfuboltaspjaldssúlufótstykki :)

Benni 17.1.2013 kl. 14:39

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Já, þetta er alveg rétt, en orðið hafði ég ekki á hreinu.

Sæmundur Bjarnason, 17.1.2013 kl. 15:31

3 identicon

Nú er ég aðeins eldri en þú, Sæmundur (eins og þú sjálfsagt veist) og verð að taka undir með þér með að það er ekkert skemmtilegt að vera gamall. Ég er nú samt að bögglast við að reyna að fara á lappir á þokkalegum tíma, svona eins og ég hef alla tíð þurft að gera. En þetta var ekki það sem ég ætlaði að kommentera um heldur nokkuð sem hefur aðeins örlað á í Netheimum, en það er að birta myndir af nafngreindum mönnum og fullyrða að viðkomandi sé barnaníðingur og biðja fólk um að deila. Íslendingar eru svo sympatískir þegar kemur að svonalöguðu að fólk nánast rýkur til og deilir eins og enginn sé morgundagurinn, þótt viðkomandi deilarar viti ekki haus né sporð á viðkomandi, hvorki upphafsfólki né objektívunum. Nú er ekkert líklegra en einhverjum geti dottið í hug af annað tveggja prakkaraskap ellegar hreinni illgirni að setja svona hring af stað. Ef og þegar slíkt gerist, er nánast ómögulegt fyrir viðkomandi að þvo barnaperrastimpilinn af sér, hvort sem ástæða er til eða ekki. Því er ástæða til að biðja fólk að hugsa sig aðeins um og kanna bakgrunninn áður en það ýtir á "share".

Ellismellur 17.1.2013 kl. 17:17

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Alveg rétt, Ellismellur.

Sæmundur Bjarnason, 17.1.2013 kl. 23:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband