1202 - Stjórnlagaþing og ESB

Svo virðist sem ESB-deilan sé að komast á nýtt stig. Andstæðingar inngöngu eru margir orðnir hálförvæntingarfullir og úthúða öllum þeim sem ekki taka undir kröfu um þjóðaratkvæðagreiðslu strax. Flestir bíða þó eftir marktækri skoðanakönnun og víst er að viðsjár milli manna fara vaxandi frekar en hitt. Ég hef áður skrifað um að slæmt sé að ESB-deilan hafi áhrif á fulltrúa á komandi stjórnlagaþingi. Sú hætta er samt fyrir hendi. Ég get ekki annað en endurtekið það sem ég hef áður sagt. Það mál má á engan hátt skemma þar fyrir og þarf ekki að gera það.

Í bloggum mínum að undanförnu hef ég skrifað heldur illa um fésbókina sem margir stunda grimmt um þessar mundir. Viðurkenni þó alveg að þegar fésbókarvinum tekst hvað best upp er það sem þar fer fram á við ágætt samtal. Aldrei getur það samt orðið eins og blogg-grein, hvað þá blaðagrein.

Kannski eru stærstu gallar þess sem þar er skrifað hve fljótt það hverfur og stuttaralegt það er jafnan. Ef menn hafa komið sér upp sæmilega mörgum fésbókarvinum skrunar allt svo hratt í burtu að maður missir af flestu eða hefur það að minnsta kosti á tilfinningunni. Vonlaust er að ætla sér að skoða gömul fésbókarinnlegg. Það finnst mér þó hægt að gera varðandi bloggið. Athugasemdirnar þar geta orðið eins og nokkurs konar fésbókarumræða.

Mér þykir langmerkilegast varðandi komandi stjórnlagaþing hve lítið er um það talað. Fjölmiðlar minnast varla á það og það eru þá helst einstaka frambjóðendur sem virðast með lífsmarki. Það er alls ekki langt þangað til kosningin á að fara fram og ekki hef ég orðið var við marktækan áhuga stjórnvalda á því að kosningarétturinn verði notaður.

Þetta er einkennilegt. Stjórnlagaþingið er einhver markverðasti atburður í samanlagðri stjórnmálasögu landsins og fáum finnst ástæða til að minnast á það. Hvar endar þetta áhugaleysi? Tekst þeim öflum sem af einhverjum ástæðum eru mótfallnir þinginu að drepa það áður en kosið er? Verði kjörsókn lítil mun þingið örugglega ekki öðlast þann sess í þjóðarsálinni sem það á skilið.

Það er ansi hart að fjölmiðill eins og RUV sem við erum öll neydd til að borga fyrir skuli ekki sjá sóma sitt í að gera eitthvað svipað og þegar aðrar kosningar eru. Aðra miðla má kannski afsaka að einhverju leyti.

IMG 3735Hann er kominn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

þetta stjórnlagaþing er aðeins til þess að beina athigli manna frá ESB umsókninni það er sama hvað útkoman ver'ur á þessu þingi hún fer undir alþingi.

Valdimar Samúelsson, 16.11.2010 kl. 19:44

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

En Valdimar, það eru litlar líkur til þess að alþingi hunsi niðurstöðu stjórnlagaþingsins ef samstaða verður góð um niðurstöðuna.

Sæmundur Bjarnason, 16.11.2010 kl. 20:25

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

´Já ég vona það sannarlega

Valdimar Samúelsson, 16.11.2010 kl. 21:30

4 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

En hvernig væri að hleypa öllum 523 á stjórnlagaþingið? Fyrst hægt er að halda 1000 manna þjóðfund þá ætti að vera leikur einn að skipuleggja 500 manna stjórnlagaþing. Það er líka erfiðara fyrir Alþingi að hunza vilja 523 heldur en 25

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 16.11.2010 kl. 22:37

5 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Jóhannes, mér finnst rangt að vera að tala stjórnlagaþingið niður. Þjóðfundurinn svokallaði var fremur marklaus nema nema hvað þátttakendur og fundarboðendur töluðu vel um hann. Stjórnlagaþingið þarf alls ekki að vera þannig. 

Sæmundur Bjarnason, 16.11.2010 kl. 23:11

6 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Hvernig færðu það út að ég sé að tala stjórnlagaþingið niður? Þvert á móti þá hef ég lengi talið þetta einu leiðina til að bæta stjórnarskrána. Mér finnst bara framkvæmdin ekki nógu góð. Starfstíminn of stuttur og fulltrúarnir of fáir. 523 er kannski of mikið en hvernig væri að afhenda þeim vald til að kjósa úr sínum hópi í það minnsta 63 fulltrúa? Þessi kosning þar sem þjóðin á að velja 25 fulltrúa er tæknilega flókin og ég óttast litla kosningaþáttöku. En ef framkvæmdin tekst vel þá skal ég með glöðu geði éta allt ofan í mig og hætta að blogga í 30 daga

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 16.11.2010 kl. 23:33

7 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Jóhannes, mér finnst þú vera að gera lítið úr stjórnlagaþinginu með því að líkja því við þjóðfundinn. Þarna er ólíku saman að jafna. Líka finnst mér þú gera það með því að kalla framkvæmdina lélega og fjöldann of lítinn (kostnaðinn samt líklega ekki) Menn fá aldrei allt sem þeir vilja!! En sjáum til hvernig til tekst og vonum það besta. Dreg ekki í efa að þeir sem finna þinginu ýmislegt til foráttu voni líka að það takist vel.

Sæmundur Bjarnason, 17.11.2010 kl. 00:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband