1173 - Stjórnlagahappdrættið

Síðasta blogg mitt var einum of langt. Svona samtöl eru ekkert sniðug. Ætli sé ekki betra hjá mér að reyna að koma hlutunum frá mér í styttra máli? Þetta hefði getað verið spurning í hundleiðinlegu samtali en er það ekki. Bara fullyrðing útí loftið eins og annað. Já, blogg eru oft einum um of fullyrðingasöm. Besservisserar vaða þar uppi.

Ég sé enga ástæðu til að gefa kost á mér á Stjórnlagaþing þó það sé mjög í tísku meðal bloggara núna. Auðvitað gæti verið að ég skipti um skoðun ef mjög margir skora á mig að gera slíkt en ég á ekki von á því. Auk þess vefst enn fyrir mér hvort kostgefendur megi skora á aðra og mæla með þeim.

Minnir að það sé á Wikipediu sem birtur er listi yfir þá sem þegar hafa gefið kost á sér. Skoðaði þann lista og það olli mér vonbrigðum hve fáa ég kannaðist við. Varla fer ég að kjósa fólk til setu þarna nema ég kannist eitthvað við það.

Um daginn skolaði mér inn á heimasíðu Heimssýnar sem að sjálfsögðu er heimssyn.is. Nei, auðvitað á ég ekki heima þar en heimullega skoðaði ég þar nokkra hluti. Meðal annars komst ég að því sem ég vissi ekki fyrir að í stjórn þessara samtaka eru 40 manns. Eflaust veitir ekki af því. Hugsanlega láta menn þarna illa að stjórn.

Í framhaldinu fór ég svo eðlilega á heimasíðu útibúsins á Suðurlandi og þar rakst ég á þessa gullvægu setningu:

Fram kom í máli Dag Seierstad, sem er norskur sérfræðingur í málefnum Evrópusambandsins, að í samningaviðræðum við Evrópusambandið hafi Norðmenn ekki engar varanlegar undanþágur fengið frá regluverki sambandsins.

Ég er enn að reyna að skilja þessa setningu (réttum skilningi en ekki einhverjum heimabrugguðum ómyndarskilningi) en gengur illa.

Ég hef mestar áhyggjur af því varðandi komandi stjórnlagaþing að öfgaþjóðernisstefnan verði of ráðandi þar. Þjóðerni okkar Íslendinga er samt alls ekki neitt til að leika sér að. Án þess erum við hreint ekki neitt. Áhyggjur mínar af sérhagsmunaklíkum eins og stjórnmálaflokkum og þessháttar eru miklu minni. Vonandi verður sú stjórnarskrá sem útúr stjórnlagaþinginu kemur næstum alveg laus við þá dauðu hönd sem stjórnmálin hafa hingað til lagt á þjóðlífið. Auðvitað kemur þetta allt saman til með að kosta eitthvað en við Íslendingar erum vanir happdrættum og mögulegur ávinningur af þessu uppátæki er verulegur.

IMG 3464Hvaða skepna hefur verið þarna á ferð?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Góðan daginn Sæmundur.

Þessi klausa um Seierstad ætti að vera skrifuð svona:

Fram kom í máli Dag Seierstad, stjórnarmanni í Nei til EU og ráðgjafa Sosialistisk Venstreparti á norska stórþinginu, að í samningaviðræðum við Evrópusambandið hafi Norðmenn engar varanlegar undanþágur fengið frá regluverki sambandsins.

Margir eru ekki enn komnir á þennan wikipedia lista þar sem framboðsfrestur rennur ekki út fyrr en eftir þrjá tíma.  Svo eru sjálfsagt einhverjir sem vilja ekki vera að ota sínu framboði út um allt.  Ég tilkynni um mitt framboð formlega á bloggsíðunni minni seinna í dag eða næstu daga.

Axel Þór Kolbeinsson, 18.10.2010 kl. 08:51

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk Axel. Það verður fróðlegt að sjá listann yfir framboðin þegar hann kemur. Einhver kynning á frambjóðendum hlýtur líka að fylgja.

Sæmundur Bjarnason, 18.10.2010 kl. 09:14

3 identicon

Sæll Sæmi.

Nú munum við sjá galla við einmenningskjördæmi eða hvað á að kalla það.
Atkvæði gefið öruggum manni er ónýtt atkvæði.

Eða verður kannski leift að kjósa fleiri en einn?

Gudmundur Bjarnason 18.10.2010 kl. 12:30

4 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Það má raða upp allt að 25 frambjóðendum.  Sjá hér:  http://stjornlagathing.is/kosningar-til-stjornlagathings/

Axel Þór Kolbeinsson, 18.10.2010 kl. 13:02

5 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Guðmundur, ég var ekkert að tala um einmenningskjördæmi. Svo er líka spurning hvort atkvæði gefið öruggum manni er ekki skárra en misvægi atkvæða eftir landsvæðum.

Sæmundur Bjarnason, 18.10.2010 kl. 14:10

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Axel, já einmitt. Kannski er það bara of mikið að leggja á minnið deili á 25 mannsveskjum.

Sæmundur Bjarnason, 18.10.2010 kl. 14:11

7 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Þá er bara að raða þeim 5 eða fleiri sem manni líst best á.  Atkvæðið nýtist hisvegar illa ef maður velur ekki 3-5 hið minnsta.

Axel Þór Kolbeinsson, 18.10.2010 kl. 16:28

8 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Þetta verður eins og í kaupfélaginu í gamla daga. Maður fer með tossalista í kjörklefann

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 18.10.2010 kl. 19:31

9 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Já, og maður verður bara að treysta því að númerin hafi ekki ruglast hjá manni. Áhugavert og spennandi.

Sæmundur Bjarnason, 18.10.2010 kl. 21:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband