1168 - Bætt heilsa

Stóri gallinn við Netflakk í óhófi er hvað það er fitandi. Haraldur Á. Sigurðsson sagði einhverntíma að allt sem einhvers virði væri í lífinu væri annaðhvort ósiðlegt eða fitandi. Hann var þó ekki að tala um Internet flakk. Útaf þessu tölvueðli er ég að hugsa um að minnka Netflakk og taka upp hollari lífshætti. Gönguferðir eru ágætar. Óþarfi er að borga stórfé fyrir það eitt að fá að reyna á sig. Ég stunda göngur nokkuð. Er ekki erfitt hér í Kópavoginum. Enda er gott að búa hér eins og allir vita. Jæja, bless í bili þá.

Heim er ég kominn og halla undir flatt. Svona byrjar eitthvert vísukorn ef ég man rétt. En nú er gönguferðinni lokið og ég bráðlifandi. Endurnar átu brauðið með bestu lyst. Helga þetta blogg bættri heilsu og næst þegar ég fæ mér kött þá er ég að hugsa um að fá mér hídroxíkött, þeir eru svo mikið auglýstir að þeir hljóta að vera nokkuð góðir.

Engir blogga eins léttilega um skák og þeir Goðamenn. Ráðlegg öllum sem gaman hafa af skák að fylgjast með blogginu godinn.blog.is. Auðvitað er líka rétt að fylgjast með skak.is og skákhorninu en skákpistlar eru næstum alveg hættir að birtast í dagblöðunum eins og einu sinni var. Svo má auðvitað gúgla skák og tengd málefni.

Nú er ég farinn að safna fésbókarvinum og er þegar kominn í 87. Margir eru í hundruðum og þúsundum og nú er ég farinn að elta þá. Hægra megin á fésbókarsíðunni minni eru alltaf einhverjar tillögur um vini og ég klikka jafnan á þá. Fylgist svo ekki vel með hvort þeir samþykkja en það gerir ekki mikið til. Þetta er einskonar hobbý hjá mér að verða. Auðvitað er ég að miklu leyti búinn að eyðileggja fésbókina með þessu og hættur að fylgjast nokkurn skapaðan hlut með því sem þar er skrifað nema því sé sérstaklega beint til mín.

Pennastriksniðurskurður í heilbrigðismálum eins og Guðbjartur Hannesson er að reyna núna er ekki gæfulegur. Á sama hátt og óskynsamlegt var á sínum tíma að reisa fullkomin frystihús í hverju smáþorpi úti á landi er ekki skynsamlegt nú  á tímum verulega bættra samgangna að hafa fullkomin og fullmönnuð sjúkrahús mjög víða. Að endurbótum á þessu er hægt að stefna en allt verður það ekki gert í einu kasti. Þessvegna er líklegt að þessi áform verði endurskoðuð.

IMG 3401Hér er ýmislegt á seyði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heim er ég kominn og halla undir flatt/ því hausinn er veikur og maginn./ Ég drakk mig svo fullan, ég segi það satt,/ að ég sá hvorki veginn né daginn.

Höfundur mun vera Páll Ólafsson, sá hinn sami og var að leggja "árefti" milli bita í torfhúsþaki, stóð á vegglægjunni og lét vinnukonu rétta sér aðföngin. Hún stríddi honum með því að kippa að sér aftur grannvöxnum rekaviðarbút. Þá er mér sagt að Páll hafi ort:

Gaman væri að vaka í nótt og vera á ferli./ Og vita hversu vel þér félli/ að vera svikin svona á belli.

Mér er einnig sagt að Páll hafi um skeið búið í Loðmundarfirði og farið í árangurslítinn róður. Þá skilst mér að hann hafi ort þetta:

Það er ekki þorsk að fá í þessum firði./ Þurru landi eru þeir á/ og einskis virði.

Aðrar vísur Páls eru þekktari, einkum brennivíns- og hestavísur og ég hygg að þú kunnir þær.

Um sjúkrahús á landsbyggðinni er ég svo misjafnlega sammála. Á eftir að skrifa pistil um það efni.

Með bloggvinarkveðjum - Jón Dan

Jón Daníelsson 13.10.2010 kl. 01:48

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Skemmtilegar sögurnar af Páli Ólafssyni. Það fór oft saman að vera hestamaður, drykkjumaður og kvennamaður. En það sem gerir sögurmar lifandi er náttúrulega þessar góðu vísur. Um sjúkrahús á Húsavík nennir enginn að yrkja vísu

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 13.10.2010 kl. 08:57

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk, Jón. Ég er viss um að ég kann einhverjar vísur eftir Pál Ólafsson. Kannast við sumar sem þú minnist á hér.

Sæmundur Bjarnason, 13.10.2010 kl. 08:57

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk, Jóhannes. Stundum er sagt að þar vísnagerð Íslendinga rísi hæst í hestavísum og klámvísum. Kannski er eitthvað til í því.

Sæmundur Bjarnason, 13.10.2010 kl. 09:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband