1145 - Leikrit í einum þætti

B = Bloggarinn mikli; M = Myndasmiðurinn óviðjafnanlegi.

M: Kjörorð mitt er: Ein mynd á dag kemur skapinu í lag.

B: Nú, er ritað blogg þá einskis virði?

M: Segi það kannski ekki. En minna virði er það örugglega en almennilegt myndablogg. Getur þetta ekki bara verið svoleiðis blogg?

B: Ha? Myndablogg? Bloggið mitt?

M: Já, eða eitthvað svoleiðis.

B: Frekar blogg með myndum.

M: Eða myndir með viðfestum bloggum.

B: Jæja. Ég er nú hræddur um að ég hafi byrjað talsvert á undan þér hérna. Myndunum var bara bætt við seinna til skrauts.

M: Það getur vel verið. En hvort heldurðu að fólk komi hingað til að skoða myndirnar eða lesa ruglið úr þér?

B: Örugglega frekar til að lesa. Það veður allt allsstaðar í myndum. En úrvalsskrif eru ekki á hverju strái.

M: Góður þessi. Myndirnar eru það sem heldur þessu bloggi uppi.

B: Þú mátt halda það.

M: Það geri ég alveg hikstalaust.

B: Eigum við ekki frekar að ræða um eitthvað annað? T.d. Moggabloggið eða fésbókina.

M: Þú hugsar ekki um annað. Mér finnst Flickr mun merkilegra en fésbókin.

B: Flickr, hvað er nú það? Eitthvað um myndir geri ég ráð fyrir.

M: Já, svo sannarlega og það eru sko engar slormyndir.

B: Jæja, en þú vilt ekkert tala um hitt af því þú hefur ekkert vit á því.

M: Vit á bloggrövli. Það hafa allir. En það skilja ekki nema sumir myndasmiði eins og mig.

B: Já, það er satt. Þú ert frekar torskilinn.

M: Jæja, er það?

B: Já, það finnst mér.

M: Það geta bara sumir hugsað í myndum.

B: Nú?

M: Já, sumir hafa myndskynjun en aðrir ekki.

B: Og ég hef semsagt ekki slíka skynjun?

M: Jú, kannski smá.

B: Mér finnst nú tíðarandinn ráða þessu að talsverðu leyti. Nútildags er til siðs að segja allt í myndum eða hreyfimyndum. Sama hvaða bull er um að ræða. Aðallega er það vegna leti.

M: Jæja. Þetta segirðu bara af því að þú skilur illa myndmál. Jú, tíðarandinn ræður nokkru. Menn skilja myndmál miklu betur nú en áður. Það er framför en ekki leti.

B: Mér finnst það bara leti að geta ekki tjáð hugsanir sínar nema með því að ýta á takka og láta einhverja vél ákveða hvað er sagt. Halda því svo fram í fullri alvöru að ein mynd segi alltaf meira en þúsund orð. Gott ef það er ekki mest misnotaði málshátturinn ever.

M: Nú?

B: Já. Það er alveg eins hægt að segja að eitt orð segi stundum meira en þúsund myndir. Þetta er allt undir svo mörgu komið.

M: Það er nú oft miklu betra að lýsa einhverju með mynd en orðum.

B: Bara stundum. Nokkur hnitmiðuð orð geta sagt meira en hægt er að segja með þúsund myndum.

M: Það er óþarfi að rífast um þetta. Fólk ákveður svona lagað bara sjálft. Það er mjög ólíkt að þessu leyti.

B: Það getur vel verið. Mér finnst orð bara merkilegri en myndir.

M: Myndir eru miklu listrænni.

B: Huh. Sér er nú hver listrænan.

M: Já. Ljós og skuggar. Litir og litbrigði. Myndbygging og ótal atriði önnur hafa áhrif.

B: Geta skrif ekki verið listræn?

M: Jú, kannski. Stundum.

B: Eiginlega alltaf. Finnst mér.

M: Það er nú misskilningur.

B: Jæja. Sleppum listrænunni. Sleppum lýsingunni og litbrigðunum. Það geta allir tekið ljósmyndir.

M: Það geta líka allir skrifað.

B: Nú. Er það? Ég kalla það nú varla skrif. Bablið í sumum.

M: Eins er það með myndir. Þær eru nú ekki allar merkilegar.

B: Mér finnst þær allar vera eins.

M: Nú. Þú ert þá svona vanþroskaður.

B: Já einmitt. Eins og fleiri. Þroskaheftur kannski?

M: Já. Hvað myndir snertir.

B: Af hverju ertu þá að tala við mig. Ef ég er svona þroskaheftur.

M: Þú ert það ekki neitt.

B: Nú? Þú sagðir það samt.

M: Nú ertu orðinn reiður og þá er ekkert hægt að tala við þig.

B: Jæja.

Löng þögn.

M: Mér finnst nú samt gaman að taka myndir.

B: Og þú ert svosem ágætur í því.

M: Má ég þá kannski hafa tvær í hverju bloggi hjá þér?

B: Kemur ekki til mála.

M: Kannski eina á hver þúsund orð.

B: Ha?

M: Já. Svona eina mynd á hver þúsund bloggorð.

B: Þú meinar það.

M: Já, einmitt.

B: Ég reyni alltaf að hafa bloggin stutt. Það er þá helst í svona leikritum eins og þessu sem þau verða svolítið löng því greinaskilin eru svo mörg og setningarnar stuttar.

M: Ég skil.

B: Við skulum segja að það megi íhuga að leyfa þér að hafa fleiri myndir en eina ef bloggin hjá mér eru óhóflega löng.

M: Segjum það þá.

B: Já, já.

IMG 3010Hér er stokkið af mikilli list og lendingarstaðurinn athugaður um leið.

IMG 2988Jæja, en er hegningarhúsið kannski til sölu?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki les ég þig vegna myndanna, en þær lífga upp á skrifin. Ætla samt ekki að taka afstöðu til listræns gildis þeirra, enda hef ég enga þekkingu á síku.

Skorrdal 20.9.2010 kl. 02:08

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Að blogga um bloggið er bærileg iðja
og bezt þykir Sæma ef myndir það styðja
en viðræður sjálfs hans þær segja  oss núna
að Sæmi er farinn að þurrmjólka kúna

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 20.9.2010 kl. 05:33

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Þurrausið í þetta sinn
og þrotið kröftum skáldið.
Laxdalinn í leirnum finn
og langar þangað dáldið.

Sæmundur Bjarnason, 20.9.2010 kl. 08:10

4 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Maður ætti kannski líka að taka svona viðtal við sjálfan sig við tækifæri eða skrifa leikrit. Enda hef ég enga trú á að nokkur annar muni boða mann í viðtal.

Emil Hannes Valgeirsson, 20.9.2010 kl. 12:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband