983 - Bloggábyrgð

Ég finn til ábyrgðar. Það eru svo margir sem lesa þessa síðu á hverjum degi. Hvað veit ég nema einhverjir taki mark á því sem ég segi og fari jafnvel eftir því. Sérstaklega þarf ég að fara varlega þegar um pólitísk og umdeild mál er að ræða. Það geri ég samt ekki. Eftirá finnst mér oft að ég hefði getað verið varkárari. 

Brjánn Guðjónsson (brjann.blog.is) talar um bloggara sem ekki leyfa athugasemdir við skrif sín og nefnir ýmis nöfn. Mikið er ég sammála honum. Til hvers er að blogga ef ekki má gera athugasemdir en bloggarinn vill bara messa yfir öðrum. Flestir vefmiðlar hafa opið fyrir athugasemdir. Veit ekki hvort nokkrir lesa þær en það er önnur saga. Mbl.is (Mogginn) kallar þessar athugasemdir reyndar blogg og meðhöndlar þær þannig.

Á dv.is þarf maður að passa hvar maður flækist með kursorinn því vissar auglýsingar eru þannig að þær taka fyrirvaralaust til máls ef farið er með hann yfir þær. Hrekkur maður þá í kút. Finnst það heldur ekki til fyrirmyndar hjá vefmiðlum að ef maður vill skoða fréttir þar í ró og næði þá er ekki að vita nema einhver auglýsingaræpa hellist yfir mann óforvarendis með hávaða miklum. Lágmark ætti að vera að leyfa manni að lesa frétt án hávaða vilji maður það. Kannski er ég bara svona viðkvæmur fyrir hljóðum og óhljóðum hverskonar.

Margt er það sem miður fer
hjá manna sonum.
En minnisstæðast alltaf er
að unna konum.

Minnir að ég hafi gert þessa vísu en er ekki viss. Gömul er hún áreiðanlega. Hef kannski prjónað hluta hennar við eitthvað sem ég hef heyrt eða lesið. Slíkt geri ég oft.

Minntist á hafragraut í færslu um daginn. Með því vinsælla sem ég hef skrifað. Uppskrifin góð. Matargerð er mér ekki lagin. Betri við skriftir. Var ekki vaninn á að nota sykur útá hafragraut þegar ég var lítill. Hafragrautur var skárri en hræringur (skyr og hafragrautur hrært saman - ógeðslegt) Tómt skyr var samt best. (Með sykri). Já, og meðal annarra orða, er búinn að prófa að setja kanel og hunang útá eða útí hafragrautinn eins og mér var ráðlagt í athugasemdum. Það er ágætt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hlægilegt að leyfa ekki athugasemdir, eða að ritskoða þær... ömurlegasta sem hægt er að gera á blogginu.

Og já þessar auglýsingar með hljóði... aldrei að kaupa neitt af mönnum sem auglýsa svoleiðis.

DoctorE 7.4.2010 kl. 09:29

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Hunang út á hafragraut,
hann þar lífsins skamma naut,
en út af diski allt það flaut,
og önnur buxnaskálmin blaut.

Þorsteinn Briem, 7.4.2010 kl. 09:34

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Hunang út á hafragraut
hafði Steini í tösku.
Ljómandi þar lífsins naut
og lýsið drakk úr flösku.

Sæmundur Bjarnason, 7.4.2010 kl. 10:24

4 identicon

Aldrei heldur að kaupa neitt af neinum sem misnotar athugasemdir á annarra manna bloggsíðum með því að auglýsa eitthvað, t.d. Nýju Karlakrækjuna sem ég var að fá til landsins.

Svoleiðis fólk er til skammar. Susssss ....

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! 7.4.2010 kl. 12:43

5 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Það er mjög auðvelt að losna við allar þessar auglýsingar og pop-up glugga sem eru útum allt. Bara nota Firefox vafrann og addon sem heitir noscript . Þetta er mun áhrifaríkara heldur en að blokkera eða disable java/flash. Með Firefox+NoScript getur maður stjórnað hvaða síður mega keyra script og hverjar ekki. Munum að sumir ósvífnir hakkarar hafa notað scrpt til að sýkja tölvur saklausra netverja.

Þeir sem nota athugasemdakerfið til að auglýsa sjálfa sig ættu nú bara að vera hjá hinum perrunum á Barnalandi   Og þeir sem ekki geta sýnt almenna kurteisi í athugasemdum ættu náttúrulega ekki að skrifa athugasemdir á netið. Því menn verða að hafa í huga að athugasemdir jafnt sem aðalfærzlurnar lifa sjálfstæðu lífi á leitarvélum eins og Google.  Örsjaldan hafa athugasemdir mínar verið fjarlægðar, sem sýnir náttúrulega lágan tilfinningaþröskuld viðkomandi bloggara en er að sjálfsögðu ekki vegna ruddaskapar af minni hálfu   en samt veit maður aldrei hverja,  maður hittir á fleti fyrir á blogginu. Stundum fara líka sárasaklausar athugasemdir þversum í fólk, vegna þess að þær eru misskildar..  En þegar allt kemur til alls ættu allir að hafa þessa heilræðavísu meistara Einars Ben að leiðarljósi við bloggskriftir

-------------------------------------

Það smáa er stórt í harmanna heim –
höpp og slys bera dularlíki – ;
og aldrei er sama sinnið hjá tveim,
þótt sama glysi þeir báðir flíki. –
En mundu, þótt veröld sé hjartahörð,
þótt hrokinn sigri og rétturinn víki,
bölið, sem aldrei fékk uppreisn á jörð,
var auðlegð á vöxtum í guðanna ríki.

Eitt bros – getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Svo oft leyndis strengur í brjósti sem brast
við biturt andsvar, gefið án saka.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast,
sem aldrei verður tekið til baka.

Úr Einræðum Starkaðar eftir Einar Benediktsson

Er þetta ekki alger snilld?

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 7.4.2010 kl. 13:26

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Ef Bill Gates heimtar að ég noti Windows, þá nota ég Windows og eftir að hann gekk af Nescape dauðu þá notar maður Explorerinn bara af því að honum er haldið að manni. Svona er maður nú leiðitamur.

Athugasemdin hjá Grefli er stutt og fyndin. Það bjargar honum.

Það er til of mikils ætlast af Bloggverjum að þeir séu á borð við Einar Ben.

"Aðgát skal höfð í nærveru sálar." Betur verður ekki komist að orði.

Sæmundur Bjarnason, 7.4.2010 kl. 13:57

7 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Sá biskupinn útí Bónus áðan og datt þetta í hug á leiðinni heim

Biskupinn verslar í Bónusi
-breizk eru mannanna börn-
því er ég að þessu þusi?
þegar hann pakkar í vörn

e.s Bónusi er skáldaleyfi, rímsins vegna

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 7.4.2010 kl. 18:15

8 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Hafragraut og heilsufæði
hita Sæmi kann
Þótt örbylgjur og eðlisfræði
ekki skilji hann

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 7.4.2010 kl. 18:26

9 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Biskupinn í Bónus fór.
Bregðaði Jóa mikið.
Útí búð hann sterkur stór
staulaðist með prikið.

Sæmundur Bjarnason, 7.4.2010 kl. 19:35

10 Smámynd: Hrannar Baldursson

Sæmundur, þetta er rétt hjá Jóhannesi. 

Að fá sér ekki Firefox sem vafra er eins og að þvertaka fyrir að nota bílskúrshurðaropnara, og opna þá bara með handafli. Þetta virkar á öll stýrikerfi. Ferð bara á Firefox.com, sækir forritið, keyrir það upp og bætir við þeim forritum sem þér finnst auka þægindin á netinu. 

Það er líka til góð viðbót fyrir Firefox sem kallast Adblock. Það hefur linað miklar þjáningar.

Hrannar Baldursson, 7.4.2010 kl. 21:53

11 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Hrannar, þetta eru engar sérstakar þjáningar þó explorerinn virki ekki alltaf eins og til er ætlast og hægt væri að hugsa sér að hann gerði. Ég hef prófað Firefox og satt að segja er nánast enginn munur á honum og explorernum eins og ég er vanastur að nota vafra. Í sumum tilfellum getur vel verið að það muni heilmiklu. Sumir eru líka bara á móti öllu sem kemur frá Microsoft. Einu sinni var deilt mikið um Pésa og Makka, nú eru það frekar Explorer og Firefox eða Windows og Linux. Ef tölvur eru aðaláhugamál fólks er eðlilegt að það skoði þessi mál en almennur notandi þarf ekki að velta þessu mikið fyrir sér.

Sæmundur Bjarnason, 7.4.2010 kl. 22:34

12 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég held úti fullkomlega ábyrgðarlausri bloggsíðu en nenni samt varla að blogga um neitt nema veðrið!

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.4.2010 kl. 23:23

13 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Ég tek samt alltaf mark á því sem þú segir um veðrið, Sigurður. Það þýðir ekkert að koma núna og segja að þetta sé ábyrgðarlaust. Ég tek meira mark á því sem þú og Einar Sveinbjörnsson segið um veðrið en því sem Veðurstofan segir. Kannski ertu svolítið svartsýnni en aðrir í langtímaspám en þá er hægt að svissa yfir í Veðurklúbbinn á Dalvík eða kálfsmaga ef þeir fengjust.

Sæmundur Bjarnason, 7.4.2010 kl. 23:49

14 Smámynd: Hrannar Baldursson

Sæmundur. Ég hef ekkert á móti Microsoft. Það er margt frábært sem kemur frá þeim. En reynsla mín af vöfrum er að stundum hentar Firefox betur og stundum Explorer. Þeir virka einfaldlega ekki alveg eins, enda hefur Microsoft sína eigin staðla.

Hrannar Baldursson, 8.4.2010 kl. 06:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband