979 - Dómharka og fávitaskapur

Gaman er að lesa blogg annarra. Mikið er skrifað og væntanlega lesið líka. Sölvi talar um dómhörku og Grímur Atlason, eða einhver annar, talar um fávitaskap. Líka um Jónas Kristjánsson sem kallar alla fávita og er naskur á að finna dæmi um slíkt hjá öðrum. Hrannar Baldursson talar um hvernig komast eigi í efstu sætin á Moggalistanum. Svo birta menn myndir af síðum á Facebook bara til að ergja mig því ég hef aldrei viljað skrá mig þar. 

Best er að reyna að vera svolítið öðruvísi en aðrir. Mér líður best þannig. Stundum finnst mér raunar að ég sé ekki nærri nógu ólíkur öðrum en það er önnur saga. Einu sinni þóttist ég vera betur að mér um flesta hluti en allir aðrir. Það er liðin tíð. Núna berst ég við að vera ekki asnalegri en aðrir.

Eins og mig minnir að ég hafi sagt í kommenti hjá Hrannari þá er mín leið til ímyndaðra vinsælda sú að skrifa daglega og númera færslurnar. Svolítið í Ómars Ragnarssonar stílnum. Þó blogga ég ekki eins oft og hann, sem nú þegar bloggar á tveimur stöðum en þyrfti mun fleiri.

Framboð Jóns Gnarr og árangur þess eru merkilegustu tíðindin í þessu tíðindalausa landi. (Tel ekki eldgos og kreppur með). Borgarahreyfingin var eini kosturinn fyrir óánægjuöflin í síðustu Alþingiskosningum en er nú búin að spila rassinn rækilega úr buxunum og sennilega þurfum við einhvern svipaðan og Jón Gnarr í næstu Alþingiskosningum. Fyrirfram er ég alls ekki viss um að hann sé verri en aðrir þó þetta sé auðvitað grínframboð hjá honum. Sumum finnst kannski verst hvað hann er Jesúsinnaður.

Alvöruframboð eru nefnilega alltof alvörugefin. Sérstaklega hjá fjórflokknum sem mætti alveg taka sér ítarlegt frí mín vegna. Hugsið ykkur bara hve mikill munur það væri að vera laus við hann. Gnörrunum mundi auðvitað fjölga og jafnvel misheppnaðir þingmenn slæðast með en ráðherraræflana mætti sækja hvert sem er ef menn vildu endilega að þeir hentuðu bærilega í starf sitt.

Þjóðaratkvæðagreiðslan sem framin var um daginn er alveg gleymd. Nú tala menn bara um eitthvað annað. Til dæmis skötusel og ketti. Tek bara ekki þátt í svona vitleysu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ekki lengi bar sitt barr,
borgaranna fylgið þvarr,
Jesús minn með Jóni Gnarr,
og jólasveinar nýtt þar narr.

Þorsteinn Briem, 3.4.2010 kl. 02:26

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ég verð að viðurkenna að ég er feginn að hafa ekki heyrt á Icesafe minnst undanfarið. blessað gosið og kettirnir

Brjánn Guðjónsson, 3.4.2010 kl. 03:41

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Gnarr í góðu formi
gantast til og frá.
Trúi´ekki að Dabbi dormi
og dragi að ráðast á.

Sæmundur Bjarnason, 3.4.2010 kl. 07:38

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Í sveitinni bjó hún Marilyn Monroe,
úr mysingi og kotasælu þar dó,
einnig kisa og fimm þar finkur,
sem fórust er á þær kom slinkur.

Þorsteinn Briem, 3.4.2010 kl. 10:50

5 Smámynd: Hrannar Baldursson

Spaugstofuna í framboð sem Spaugflokkurinn. Þeir myndu rjúka inn.

Hrannar Baldursson, 3.4.2010 kl. 14:06

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sæmundur minn þó fólk vilji hafa það þannig að þjóðaratkvæðagreiðslan sé gleymd þá er hún það ekki.  Hún kraumar í undirmeðvitund okkar og á eftir að skila góðum hlutum, núna til dæmis eru bæði Bretar og Hollendingar að bakka í samningaviðræðunum, það hlálegasta við það er að fjármálaráðherran okkar er í einhverskonar fýlu út af því.

Annars góð færsla hjá þér takk fyrir mig.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.4.2010 kl. 16:33

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

Soldill Guðni senator,
á Suðurlandi er í for,
kallinn fer með kýr í vor,
á Klörubar og Al sér Gore.

Þorsteinn Briem, 3.4.2010 kl. 16:46

8 Smámynd: Finnur Bárðarson

Það er nú ekki leiðinleg að heimsækja Sæmund :)

Finnur Bárðarson, 3.4.2010 kl. 17:12

9 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Nei rétt er það Finnur, þarna fer yfirvegaður og rólyndismaður á ferð sem nennir greinilega ekki að æsa sig yfir þessu rugli hjá okkur hinum  en heldur rólegur áfram sínu góða bloggi og lætur hvern dag ráða för, í númeraröð þó !

Guðmundur Júlíusson, 3.4.2010 kl. 22:13

10 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk fyrir hrósið. Jú, ég reyni að halda mínu striki. Tala stundum um pólitík, hrunið, Icesave og allt þetta, en er ósköp loðmullulegur í samanburði við marga aðra, finnst mér. Eitt blogg á dag - hvorki meira né minna (oftas nær a.m.k.) Ég er bara búinn að venja mig á þetta.

Ásthildur, ég veit að við erum ekki sammála í pólitík en vel getur verið að frjálslyndi flokkurinn hafi enn hlutverk.

Hrannar, ég bíð eftir næstu Alþingiskosningum þó ég viti ekki frekar en aðrið hvenær þær verða. Trúi þvi varla að núverandi stjórn lafi út kjörtímabilið.

Sæmundur Bjarnason, 3.4.2010 kl. 23:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband