25.5.2009 | 00:05
695- Samtíningur og sitthvað - afrakstur tiltektar
Nýlega var frá því sagt að prestur hafi keypt hlutabréf í Stoke um árið og sjái nú loksins fram á að endurheimta hugsanlega eitthvað af því fé sem þar fór forgörðum. Ég var einn af þeim vitleysingum sem fylgdist á sínum tíma vel með Stoke ævintýrinu. Sem betur fer lagði ég þó ekki peninga í það. Vest Ham sagan fór víst eitthvað illa líka. Ekki er fullreynt ennþá um þessi mál en knattspyrnuliðin á Bretlandi eru í dýrari kantinum fyrir mig. Þetta með prinsinn elgtanaða er merkilegt mál. Vonandi fer þó allt saman vel. Ekki finnst mér líklegt að miklar fjárhæðir endurheimtist eftir allan þennan tíma en það skiptir kannski ekki mestu máli. Aðalmálið er að góma þyrluflugmanninn son Ólafs kaupfélagsstjóra í Borgarnesi. Netið er stórhættulegt. Þriggja ára keypti skurðgröfu á Netinu. Menn hafa keypt allan fjárann í gegnum síma. Er hann ekki stórhættulegur líka? Og hugsið ykkur allan óþverrann og lestina. Ég fæ bara klígju. Skottulækningar eru vinsælli en málfar. Eiður Guðnason getur borið vitni um það. Hann réðist um daginn á detox-vitleysuna og lifewave og allt það. Ekki stóð á viðbrögðunum. Hver um aðra þvera ryðjast Jónínurnar fram og vitna um afeitrunina einu og sönnu. Á toppfm.is er besta útvarpsstöðin á Akranesi samkvæmt topplistanum hans Gunnars Helga Eysteinssonar. Þetta finnst mér alveg magnað. Vissi ekki einu sinni að það væru margar útvarpsstöðvar á Akranesi. Ég á alltaf dálítið erfitt með mig þegar vitleysur Evrópuandstæðinga ganga úr hófi. Það er ekki nóg með að þessir andskotar í Brussel ætli að ræna okkur sjálfstæðinu og taka traustataki allar okkar auðlindir heldur eru þeir líka útsettir með að eitra fyrir okkur með því að flytja hingað handónýtar landbúnaðarafurðir. Það nýjasta er svo að við Íslendingar verðum að vara okkur mjög á herskyldunni sem áreiðanlega komi í stórríkinu sem verið sé að stofna. |
Flokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:03 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Gott þú minnist á herskylduna. Hana óttast ég eiginlega mest. Sem betur fer eru bara kvenmenn í minni fjölskyldu!!! svo það yrði allavega lengra í herskyldu á okkar bæ. Auðvitað, fyrr eða síðar, verður Evrópuklasinn hervæddur.
Mér finnst örfáir ræða þennan "sennilega möguleika".
Eygló, 25.5.2009 kl. 01:40
Eftir að hafa hlustað á þjóðrembuna í sumum Evrópuandstæðingum hér á landi undanfarið þá furðar maður sig stundum á því hvers vegna allir þessir ósjálfstæðu, heimsku og auðlindalausu Evrópubúar (utan Íslands) eru ekki fyrir löngu steindauðir af öllum þessum baneitruðu landbúnaðarvörum sem þeir láta ofan í sig.
Ég segi það satt - ég er komin með upp í kok af íslensku þjóðrembunum.
Malína 25.5.2009 kl. 02:32
Maíja af hverju er líklegt að við tökum upp samvinnu við aðrar þjóðir um herskyldu? Ég hef bara heyrt um stórríkið sem við erum að fara að ganga í hjá æstustu Evrópusambandsandstæðingum.
Sæmundur Bjarnason, 25.5.2009 kl. 02:59
evrópa er hervædd Maíja, og herskyld nema á íslandi. Sé ekkert athughavert að við tökum þátt í því á einn eða annan hátt.. við gætum td bara verið með björgunarsveitir og aðstoðarskip.. margir möguleikar í stöðunni aðrir en að bera M16 og skjóta einhver..
Óskar Þorkelsson, 25.5.2009 kl. 11:51
Ha ha. Þegar maður veltir vitlausum vanga og spyrst fyrir frá vitlausum sjónarhóli fara margir í andspyrnugírinn.
Ég er hvorki í flokki Evrópusambandssinna né Evrópusambandsandstæðinga. Ég hvorki veit nóg um þessi mál, né er líkleg til að skilja allar hliðar þótt þær yrðu lagðar fyrir mig.
Almennt óttumst við hið óþekkta og það á við mig; maður veit nokkuð hvað maður hefur en ekki hvað maður kann að fá.
Ef við yrðum aðilar ESB og sambandið hefði her á að skipa... fengjum við þá að velja hvort við bærum okkar skyldu til herkvaðningar? Gætum við "pant-fá" að vera í björgunar- eða hjálparsveitum eða yrði því miðstýrt eins og margir óttast um aðgang að auðlindum okkar?
Yrði ég kvödd í her vildi ég nú frekar hafa M16 í mínum fórum heldur en að láta skjóta mig eða mína.
Ofanritað eru vangaveltur þess sem ekki veit en langar að vita.
Eygló, 25.5.2009 kl. 23:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.