19.9.2018 | 09:14
2767 - Er feminismi vinstri stefna?
Las í morgun bréf útaf úrskurði Umboðsmanns Alþingis um lagatúlkun Tryggingastofnunar Íslands og í Fréttablaði dagsins sé ég að þetta er orðið að forsíðuefni þar. Ekki veit ég neitt um efnisatriði þessa máls umfram það sem komið hefur fram í fréttum og bréfum, en greinilegt er að ýmsir aðilar, bæði einstaklingar og samtök eru farin/farnir (hvort eru það aðilarnir eða samtökin sem eiga að stýra þessu) að líta á Umboðsmanninn sem einskonar dómstól. Kannski er ekki vanþörf á því í viðskiptum við ríkið því eðlilegt er að flestir hasist upp á því að eiga við dómstóla þessa lands og lögfræðingastóðið sem virðist geta teygt og togað lög og reglugerðir í ýmsar áttir. Þar að auki er afskaplega dýrt að eiga við þá aðila og mál geta tekið mörg ár.
Stofnanir ýmisskonar (Tryggingastofnunin er ekki ein um þetta) virðast vera orðnar einskonar ríki í ríkinu og túlka lög og reglugerðir sem mest sér í hag. Ráðuneyti og aðrir aðilar sem ættu að geta skipað þeim fyrir nenna ekki að sinna neinu sem máli skiptir. Starfsmenn þar eru sennilega of uppteknir við að naga blýanta. Allaf þurfa Íslendingar að haga sér eins og þeir séu stórþjóð en ekki minni en flest sem lítið er.
Þessar tvær klásúlur sem hérna eru fyrir ofan setti ég á fésbókina síðastliðinn mánudag, því mér fannst á þessu liggja. Einsog kunnugt er þá lifa margir fyrir fésbókina og ég veit ekki hvort ég hef sömu lesendur þar og hér. Allavega hef ég vanið mig á að auglýsa innlegg á þennan vettvang á fésbókar-ræksninu og auk þess set ég stundum sama efni þar og hér.
Alveg finnst mér það síðasta sort (einsog Einar smiður í Borgarnesi sagði jafnan) að henda útum gluggann 87 milljónum í einhvern atburð sem afar fáir höfðu nokkurn áhuga á. Þetta létu alþingismenn véla sig til að gera. Sögðust vera að þessu til að minnast hundrað ára afmælis fullveldis þjóðarinnar. Það hefði verið hægt að gera öðruvísi.
Kannski er blessað bloggið að ganga í endurnýjun lífdaga. Margir eru í vaxandi mæli búnir að fá leið á fésbókinni. Enda er hún oft eins og hver annar kjaftavaðall. Sumir höfðu horn í síðu Moggabloggsins á sínum tíma. Vel má svosem halda því fram að það sé ekki alvörublogg, enda þarf ekkert fyrir því að hafa. Upphaflega er það sennilega hugsað sem vettvangur fyrir athugasemdir við fréttir og annað á mbl.is. Vinsældir þess voru miklar á tímabili en þegar fésbókinni fór að vaxa fiskur um hrygg og Davíð tók við stjórnartaumunum á Moggableðlinum fóru margir þaðan. Kannski koma þeir aftur í fyllingu tímans.
Sennilega er MÍTÚ-byltingin að komast á nýtt stig. Til þess benda orkuveitumálin og hæstréttadómaramálið í Bandaríkjunum. Eftir því sem konur standa betur saman eykst pólitískt vald þeirra. Ekki stöndum við Íslendingar neitt sérlega illa þar. Þó má alltaf gera betur. Ekki er hægt að mótmæla því að konum hefur verið haldið verulega niðri á undangengnum áratugum og víða er svo enn. Feministar allra landa sameinist Vinstrisinnar víðast hvar í heiminum geta í aðalariðum tekið undir þetta.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Á Þingvöllum var þrútið fés,
þingsins ljóta Dana,
Sæmi hélt þar sig til hlés,
en sauðir vildu hana.
Þorsteinn Briem, 19.9.2018 kl. 10:00
Á öllum Dönum eru fés
ekki lengur mögur.
Pia sína sálma blés
sýndist ekki fögur.
Sæmundur Bjarnason, 19.9.2018 kl. 13:36
Sæll Sæmundur.
"...en greinilegt er að ýmsir aðilar, bæði einstaklingar og samtök eru farin/farnir (hvort eru það aðilarnir eða samtökin sem eiga að stýra þessu) að líta á Umboðsmanninn sem einskonar dómstól."
Ofnotkun nafnháttar: sögnin að vera+nh (nafnháttur)
(ég er ekki að skilja þetta > ég skil þetta ekki)
Þetta hefði ef til vill mátt orða svona:
"...en greinilegt er að einstaklingar og samtök líta á umboðsmanninn ...".
Húsari. 19.9.2018 kl. 21:08
Alltaf má deila um orðalag. Orðalag er stíll. Breytt orðalag er það sem mér finnst hættulegast íslenskri tungu. Einnig það að íslensku skuli úthýst hjá heilum starfsgreinum. Einstök orð, svo ég tali nú ekki um einstaka bókstafi, finnst mér engu, eða a.m.k. litlu, máli skipta. Mér þótti málfræði alltaf hundleiðinleg í skóla, en hef samt tileinkað mér hana að einhverju leyti.
Sæmundur Bjarnason, 20.9.2018 kl. 05:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.