1739 - Að ruglast í ríminu

Sagt er að einhverju sinni hafi Hólamenn ruglast svo eftirminnilega í ríminu (rím=dagatalsfræði) að þeir hafi ekki getað fundið út hvenær páskarnir væru. Þá hafi maður verið sendur yfir Kjöl til að spyrja að þessu í Skálholti. Þaðan á orðtakið að vera komið. Kannski er þetta bara þjóðsaga. Hugsanlega hét þessi maður Ólafur og þá kann hann að hafa orðið á vegi tröllskessunnar í Bláfelli, sem hafi þá sagt:

„Ólafur muður
ætlarðu suður?“

Þó ég sé orðinn aldraður þá man ég ekki eftir þessu.

Alveg er samt merkilegt að ég skuli vera svona endingargóður við að skrifa á Moggabloggið. Er eiginlega farinn að líta á mig sem „The Grand Old Man“ þess. Ómar Ragnarsson stendur mér þó greinilega mun framar þar eins og í flestu öðru. Eflaust eru þeir samt miklu fleiri sem gera það. Hef bara ekki athugað það svo grannt. Sérstaklega ekki þetta með aldurinn.

Þó ég hafi skoðanir á flestu, jafnvel öllu, ber mér ekkert að upplýsa lesendur mína um það. Blogglög eru engin á landinu. Eitthvað eru fjölmiðlar (vefmiðlar?) að kvarta undan nýjum fjömiðlalögum en ég tek ekki þátt í því. Ég er ekki eins staðreyndafróður og sumir sem hafa atvinnu af því að skrifa. Ef mann vantar staðreyndir er netið (eða Gúgli) rétti staðurinn til að leita að þeim.

Julian Assange, andlit WikiLeaks, treystir Ekvadorbúum betur en Bretum. Það geri ég ekki. Hef lítið álit á Bretum og stóð sjálfan mig að því við horf á sjónvarútsendingar frá Ólympíuleikunum nýsálugu að halda ævinlega fremur með andstæðingum þeirra. Samt hef ég tilhneigingu til að treysta þeim vel í svona málum. Ríkisstjórnin breska segir ekki dómstólum fyrir verkum, álít ég. Svipað er að segja um Svía.

Að dæma eftir vefmiðlunum og fésbókinni eru selebin orðin svo mörg að ég er alveg lúsheppinn að þurfa ekki að fylgjast með þeim. Þeir eru ekki öfundsverðir sem taka það að sér. Vita þarf hjá hverjum þau sváfu síðast, með hverjum þau borðuðu í gærkvöldi og á hvaða veitingastað o.s.frv o.s.frv. Að auki þarf helst að skoða 18 myndir af hverju stykki á dag. Fyrir nú utan allar hinar myndirnar sem flestar eru nýkomnar úr photoshop.

Lesendum mínum virðist hafa fjölgað eftir að ég tók upp þann sið að gleyma aldrei að deila upplýsingum um bloggið mitt á fésbókina. Vinsældir fésbókarinnar hér á landi eru sífellt að aukast finnst mér og gott ef Moggabloggið er ekki að styrkjast líka.

Mér finnst lúpínan falleg. Víða er hún þó með frekasta móti. Það er nokkuð langt síðan ég sá lúpínuakra fyrst. Það var í Skorradalnum. Talsvert vatn hefur til sjávar runnið síðan og mönnum kemur ekki saman um lúpínugreyið. Mér finnst stærsti gallinn við hana hvað hún verður ljót á litinn snemma sumars. Við því er auðvitað ekkert að gera. Víða meðfram vegum landsins hefur hún tekið völdin. Að áliti margra hörfar hún þegar jarðvegur hefur myndast. Það held ég að sé yfirleitt rétt. Þorlákshöfn og umhverfi hefur gjörbreytt um svip frá því að ég man fyrst eftir. Þar er það að vísu melgresið sem ég held að sé í aðalhlutverki en gróður allur á láglendi, a.m.k. þar sem ég þekki til, hefur tekið vel við sér frá því sem áður var. Vonandi heldur sú þróun áfram. Gróið land er mun fallegra en örfoka.

2012 08 03 13.50.03Hefurðu séð hrúta berja lyng?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband