911 - Pælingar

Að sumu leyti hef ég orðið íhaldssamari með aldrinum. Ekki þó að öllu leyti og til dæmis finnst mér stefnur og ismar miklu fremur breytast en mínar skoðanir. Skil til dæmis vel þá sem halda því fram að kapítalisminn nútildags sé eiginlega eins og sósíalismi án réttlætis. Það er markaðurinn sem stjórnar framleiðslutækjunum í kapítalískum kerfum en misvitrir og oft misheppnaðir menn í sósíalískum. Meðan ekki komast þar brjálaðir fjöldamorðingjar til valda tekur sósíalisminn þó á margan hátt kapítalismanum fram. 

Þar er blessaður hagvöxturinn ekki dýrkaður á sama hátt og í markaðsdrifnum kerfum en bara eitthvað annað. Jöfnuður meiri þó velmegun dragist gjarnan aftur úr í sósíalískum ríkjum. Við því er ekkert að gera. Peningar eru ekki allt. Kreppur þekkjast ekki í sósíalismanum en stöðnun getur verið hrikaleg. Stefna sem inniheldur það besta úr báðum kerfum er að komast á legg.

Syntesan ESB er von margra. Mun betri en sósíalisminn í Sovétríkjunum og snöggtum skárri en kapítalisminn í Bandaríkjunum. Þjóðríkið er á undanhaldi og ekki lengur almenn trú á því að ríki skuli vera sem flest. Bandalög um tiltekin málefni er dagskipunin.

ESB er öflugasta viðskiptabandalagið í heiminum um þessar mundir og engin goðgá að tengjast því sterkari böndum en verið hefur. Allt frá þáttöku okkar Íslendinga í EES með Viðeyjarstjórninni forðum höfum við Íslendingar í raun verið að æfa okkur fyrir inngöngu í ESB. Fengið óheftan eða lítt heftan aðgang að mörkuðum bandalagsins og notið margs af gæðum þess, en sloppið að mestu við ókostina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Doddsson gerðist demókrat,
og dáldið mikið það var plat,
hann rífur sig í rassagat,
og Ragnar Arnalds fær í mat.

Þorsteinn Briem, 30.12.2009 kl. 01:52

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Ýmsir bölva ESB
sem alla sundur mylji.
Aðrir telja að Eden sé
og allir þangað vilji.

Sæmundur Bjarnason, 30.12.2009 kl. 02:53

3 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Í ljósi sögunnar þá held ég að menn verði að fara að endurskoða skilgreininguna á kapitalisma og frjálsu hagkerfi. Hver er þessi markaður sem frjálshyggjumenn eru alltaf að dásama? Eigum við ekki frekar að tala um markaðsmisnotkun, þar sem spákaupmennska leikur aðalhlutverkið? Mannskepnan er svo breysk að hún getur ekki lifað án regluverks. Ef menn vilja kalla það sósialisma þá er það í raun góð hugmyndafræði sem einn maður framar öðrum kom óorði á, nefnilega Josef Stalín.  Hvað okkur Íslendinga varðar þá erum við ekki færir um að halda uppi þjóðfélagi jöfnuðar, réttlætis og samkenndar. Þar vinnur pólitíska flokkakerfið á móti okkur. Þar hafa í gegnum tíðina ráðið menn sem fyrst og fremst hafa stjórnast af eiginhagsmunum á kostnað þjóðarhagsmuna. Til þess hafa þeir komið sínum mönnum í allar helstu stöður í stjórnsýslunni og þarmeð er stjórnkerfi landsins ónýtt. Ég tel að við höfum ekki verið reiðubúin að stofna lýðveldið 1944 enda var það gert undir hervernd Bandaríkjanna og þeir voru okkar verndarar allt til 2006.  Að leita skjóls hjá ESB er því rökrétt í þeirri stöðu sem við erum í núna.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 30.12.2009 kl. 19:28

4 identicon

Þið eruð góðir. Fer á óbein "ellilaun" um áramótin.  Ef við ræðum hugtök, þá er sósilalisminn, leiðin til kommúnisma. Vegurinn.  Ég vona að menn blandi ekki Marx gamla við útkomuna í USSR/CCCP,    Ég kannast við útlending sem hélt að Marx hefði staði að byltingunni í Rússlandi.  Vel menntaður, frá frægum háskóla, í Boston.   En annars óska þér gleðilegs nýs árs. Þarft þó vart slíkra óska, miðað við léttu lundina þína.

Ólafur Sveinsson 30.12.2009 kl. 19:47

5 Smámynd: Gísli Ingvarsson

Mér finnst þetta ekki svona dramatískt að þjóðríkin hverfi með aðild að ESB. Það hlýtur að vera einhver blautur draumur útópíuskoðara. Hins vegar verður um nánara og skilyrtara samband á milli þjóða ekki þeirra vegna að vísu heldur íbúanna. Það er nefnilega mikilvægt og verður í framtínni "möst" að íbúar þótt þjóðríki tilheyri hafi ákveðið jafnræði hvar sem þeir svo annars búa. Þvert á móti mun ESB frekar valda sundrungu á meðal margra ríkja sem talin hafa verið þjóðríki en eru samþjóðleg í raun. Íslendingar munu ekkert þurfa að óttast við aðild nema heimóttarskapinn í sjálfum sér og  hégaómagirndina í embætti og völd. 

Gísli Ingvarsson, 30.12.2009 kl. 21:33

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk allir. Mér finnst þetta með þjóðríkin og ESB, sósíalismann, kapítalismann og allt það miklu merkilegra umhugsunarefni en hið ömurlega Icesave sem þó er búið að halda mér föngnum í allt kvöld.

Sæmundur Bjarnason, 31.12.2009 kl. 00:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband