1.11.2009 | 00:08
851 - Ómar Ragnarsson
Sé á Eyjunni að Ómar Þ. Ragnarsson er sagður vera byrjaður að blogga þar. Um það er helst að segja að ég sé dálítið eftir Ómari héðan af Moggablogginu. En þó hann sé farinn er vel hægt að fylgjast með honum á nýja staðnum og lesa bloggin hans þar. Tek samt eftir því að á Eyjunni leyfir hann ekki athugasemdir en það gerði hann þó hér á Moggablogginu. Kannski á það eftir að breytast.
Eyjan var upphaflega stofnuð til höfuðs mbl.is og Moggablogginu. Að mörgu leyti hefur þeim tekist vel upp. Er samt ekki sannfærður um að betra sé að blogga þar. Ekki veit ég hvernig þeim hefur tekist að safna þeim bloggurum í sinn hóp sem þar eru. Flestir þeirra held ég að hafi hafið sinn bloggferil á Moggablogginu og séu blogg þeirra skoðuð sést að margir þeirra eru óttalega óvirkir þó nafnasúpan líti vel út.
Á Eyjunni er Ómar nú
sem alla hefur langað.
Eigi menn sér fína frú (TF-FRU)
fræknir komast þangað.
Nú er að komast festa á stéttaskiptingu bloggara. Í mínum huga skiptast þeir í ofurbloggara, Eyjubloggara og Moggabloggara. Hingað til hefur vandinn verið sá að bloggarar hér og þar (Blogspot, Wordpress, visir.is blogg.is o.s.frv.) hafa litið niður á Moggabloggara og þóst vera þeim fremri. Nú eru þeir eiginlega allir orðnir ómark. Það dugar ekkert minna en að komast á Eyjuna. Moggabloggarar eru þó ennþá Scum of the Earth."
Ef Davíð Oddsson og aðrir öfgasinnaðir hægrimenn fara að hafa of mikil áhrif hér á Moggablogginu fer ég vissulega að íhuga að hætta skrifum hér. Skorað hefur verið á mig að gera það en ég hef hingað til daufheyrst við því einkum vegna þess að ég tel áhrif af stefnu Morgunblaðsritstjóra ekki ná hingað inn nema að litlu leyti og Moggabloggið einfaldlega bjóða notendum sínum bestu þjónustuna. Samstarf þeirra við aðrar bloggveitur gæti þó verið betra.
Svo segist Svanur Gísli vera að hætta hér líka og er þá farið að fjúka í flest skjól. Hvert skyldi Svanur vera að fara? Lára Hanna er þó ekki enn farin eftir því sem ég best veit.
Í grein á mbl.is (sem ég linka ekki í fremur en ég er vanur) er sagt frá því að jafnvel standi til að fækka grunnskólum í Borgarbyggð úr 5 í 3. Borgarafundir verða haldnir á næstunni um málið og aðrar leiðir eru hugsanlegar samkvæmt fréttinni á mbl.is. Annars er þessi frétt á mbl.is svo illa skrifuð og full af villum að skelfilegt er. Ritvillur voru jafnvel í fyrirsögninni þegar ég sá hana fyrst. Skiljanleg er fréttin þó að mestu leyti. Ég er viss um að reynt verður að laga hana svolítið til svo ég nenni ekki að telja villurnar upp.
Og nokkrar myndir.
Skyldi hann ætla að skella sér niður á Kringlumýrarbrautina?
Fyrir ketti sem kunna að lesa. (Anna í Holti á víst einn slíkan.)
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Ekki mun ég fara af Moggablogginu nema veður hætti að vera í landinu. En að öðru leyti ætti maður líklega að segja sem minnst.
Sigurður Þór Guðjónsson, 1.11.2009 kl. 00:19
Vísan er góð, ,oft langað að senda þér eina krassandi,en þori ekki. Það virkar yfirlætislega ,en hún er ekki eftir mig¨samt góð¨
Helga Kristjánsdóttir, 1.11.2009 kl. 02:37
Ómar Ragnarsson segist ætla að blogga á báðum stöðum, hér og á Eyjunni.
http://blog.eyjan.is/omarragnarsson/2009/10/11/hallo-heimur/#comments
Mér er svosem alveg sama hvar ég les bloggið hans. Hann er einn af þeim fáu sem eftir eru hérna sem ég les. Hinir eru mínir bloggvinir.
Kama Sutra, 1.11.2009 kl. 03:56
Góður pistill hérna hjá AK:
http://agnark.wordpress.com/2009/10/31/hi%c3%b0-deyjandi-moggablogg/
Kama Sutra, 1.11.2009 kl. 04:58
Tengillinn virkar ekki. Ég prufa aftur:
http://agnark.wordpress.com/2009/10/31/hi%c3%b0-deyjandi-moggablogg/
Kama Sutra, 1.11.2009 kl. 05:03
Þessi virkar ekki heldur. En pistillinn heitir "Hið deyjandi moggablogg" og er á þessari slóð:
http://agnark.wordpress.com/
Kama Sutra, 1.11.2009 kl. 05:07
Menn fjúka yfir url. Það er í sjálfu sér ekki löng vegalengd.
Don Hrannar, 1.11.2009 kl. 13:16
Einhver sagði það að ef menn blogguðu bæði á (M)BL og EYJUNNI blogguðu þeir á
BLEYJUNNI
Jóhanna Magnúsdóttir, 1.11.2009 kl. 15:01
Kama Sutra. Þessi linkur virkar: http://agnark.wordpress.com/2009/10/31/
annars les ég helst blogg bloggvina og fréttatengd. tékka þó endum og sinnum inn á síðu blog.is.
ég les Eyjuna daglega en einhvernveginn álpast ég inn á fá blogg þar. leiðist líka þetta elítudæmi þar og fáir þar sem ég myndu nenna að lesa yfirleitt.
les ekki bloggin á visir.is. þau eru of ósýnileg og ég nenni ekki að fara inn á sérstaka síðu til að leita að þeim. þeir mættu gera bloggin aðeins sýnilegri á forsíðunni.
ég les stundum blogg á dv.is. þá helst Illuga og Heiðu.
önnur blogg, vistuð úti í heimi, les ég ekki nema mér sé bent á þau, eins og í tilfellinu með blogg Agnars hér að ofan.
Brjánn Guðjónsson, 1.11.2009 kl. 15:26
Blogg mitt á mbl.is mun á engan hátt breytast af mínum völdum eins og menn munu sjá þessa síðustu tvo daga.
Ég mun vonandi geta haldið áframa að njóta samskipta og skoðanaskipta við bloggvini mína þar og aðra bloggara á nákvæmlega sama hátt og hingað til.
Ég met þetta einfaldlega svo að boggsíðu mína á eyjunni noti ég meira í takti við straumana og umræðuna þar og að pistlar mínir þar verði aðrir en á mbl.is eins og menn sjá væntalega líka nú í upphafi veru minnar þar.
Ómar Ragnarsson, 1.11.2009 kl. 16:30
Takk Brjánn! Ég sé að ég hef verið orðin grútmygluð og vansvefta í nótt. Kennir manni að vera ekki að hanga svona á internetinu á næturnar í stað þess að verma bólið sitt.
Kama Sutra, 1.11.2009 kl. 19:26
Takk öll. Hrannar Baldursson segir að lítið mál sé að stökkva yfir url. Ef þið hafið áhuga á kvikmyndum skuluð þið kíkja á bloggin hjá Hrannari. Kama Sutra - búinn að lesa pistilinn hjá Agnari. Jóhanna - fín orðnotkun að segja að Ómar sé á bleyjunni. Helga - ekki hika þó vísan sé krassandi. Brjánn - dv.is og visir.is eru hálfgert ómark. Ómar - mun lesa bloggin þín ef ég finn þau. Kannski athugandi að linka á milli þeirra.
Sæmundur Bjarnason, 1.11.2009 kl. 23:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.