850 - Fljótavík

Vorið 2007 dvaldi ég í nokkra daga í Fljótavík á Vestfjörðum. Við keyrðum til Ísafjarðar og fórum með flugvél þaðan til Fljótavíkur og eins til baka. Um þessa ferð skrifaði ég í bloggi númer 62 og ætla ekki að endurtaka það. 

Ekki er hægt að líkja þessari ferð við utanlandsferð. Þar er enginn samanburður mögulegur. Í minningunni tekur Fljótavík fram flestum öðrum stöðum sem ég hef komið á. Helst að Hveragerði jafnist á við hana.

Fögur þessi Fljótavík
finnst mér alltaf vera.
Auðnin þar er engu lík
og ekkert þarf að gera.

Einangrunin er líka engu lík. Nokkrum árum fyrir síðustu aldamót fór ég í vikuferð um Hornstandir. Þá sigldum við frá Ísafirði inn í Hrafnsfjarðarbotn og gengum sem leið lá yfir í Furufjörð og þaðan í Hornvík og Kjaransvík og síðan yfir fjallið til þorpsins í Hesteyrarfirði.

Eitt það allra eftirminnilegasta úr þeirri ferð er einmitt einangrunin. Enginn sími, ekkert útvarp, ekki neitt. Maður er bara einn með sjálfum sér og það eina sem skipti máli eru ferðafélagarnir og þeir sem á leið manns verða og svo auðvitað landið og náttúran. Að öðru leyti er maður gjörsamlega einn í heiminum.

Sagt er að 5700 manns séu dánir úr svínaflensunni sem nú gengur yfir heiminn. Ekki margir á Íslandi þó en mér er sama. Ég er skíthræddur við hana. Hef fengið flensu og það er alveg nógu slæmt. Skilst að svínaflensan sé verri en sú venjulega.

Um daginn var forvardað til mín bréfi sem upphaflega var stílað á Netútgáfuna. Það var frá Guðmundi Sigurfrey höfundi bókarinnar um Nostradamus sem verið hefur á vef útgáfunnar. Í bréfinu var ég beðinn um að taka bókina niður því verið væri að endurútgefa hana. Hafði þegar samband við Björn Davíðsson hjá Snerpu sem gerði bókina óaðgengilega gestum Netútgáfunnar. Geri ráð fyrir að þar með sé mínum afskiptum af þessu máli lokið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fljótavík er góður staður enda á ég þar mínar rætur.  Afi minn og amma bjuggu þar á fyrri hluta síðustu aldar, Júlíus og Guðrún.  Við reynum að fara þangað á hverju ári til að njóta friðsældar og nálægð við náttúruna sem er engu öður líkt.

Ég safnaði saman fróðleik með viðtölu við fólk á fyrri hluta þessara aldar, fóks sem var fætt og uppalið í Fljótavík.   Þetta fólk hefur kynnst meiri breytingum en nokkur önnur kynslóð fyrr og síðar.  Fæddist í torfkofa og nota-r (ði) tölvur og internet.  Það eru miklar breytingar.

Gunnar Þórðarson 31.10.2009 kl. 09:28

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Takk Gunnar. En af hverju ert þú eins og óskráður hérna, en þegar ég klikka á nafnið þitt lendi ég á Moggabloggaranum Gunnari Þórðarsyni?

Sæmundur Bjarnason, 31.10.2009 kl. 10:45

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hvað gerist ef svínavírusinn stökkbreytist allt í einu hér á Íslandi og ekki nóg bóluefni til fyrr en eftir mánuð. Mér finnst einhvern veginn eins og þetta sé rétt að byrja. Flensan hefur breiðst hraðar út hér en annars staðar, afhverju getur hún þá hreinlega ekki orðið skæðari, eitthvað er hér öðruvísi en annars staðar.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 31.10.2009 kl. 18:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband