19.9.2009 | 00:15
808 - Bless Borgarahreyfing
Ég verð að viðurkenna að ég kaus Borgarahreyfinguna í síðustu kosningum. Auk þess er ég búsettur í Kópavoginum og ber því einhverja ábyrgð á því að Þór Saari situr á þingi. Ekkert eitt atriði hefur styrkt fjórflokkinn jafnmikið í sessi að undanförnu og það slys. Ekkert er við því að gera úr því sem komið er. Líklegast er að ég kjósi í næstu kosningum einhvern af fjórflokkunum beint eða kjósi ekki.
Hvers vegna hefur kosning Þórs Saari styrkt fjórflokkinn kynni einhver að spyrja? Því er fljótsvarað. Næstu áratugina mun fólk gera ráð fyrir því með réttu eða röngu að ný framboð séu lík Borgarahreyfingunni að því leyti að alls óvíst sé hvernig þingmenn þeirra reynist og þess vegna forðast að kjósa þau.
Orkubloggarinn Ketill Sigurjónsson er sannarlega orkumikill. Blogg hans eru fróðleg og góð. Greinarnar langar og ítarlegar. Langoftast er ég sammála honum en reyni þó að horfa á það gagnrýnum augum sem hann skrifar.
Rætt er um að Páll Baldvin Baldvinsson verði Þjóðleikhússtjóri. Mér líst vel á það. Páli kynntist ég nokkuð þegar ég vann með honum á Stöð 2. Ekki verður logn og ládeyða í kringum embættið ef Páll fær það. Skylmingar hans og Kolbrúnar Bergþórsdóttur í bókmenntaþættinum Kiljunni eru oft skemmtilegar. Að vera í vinsælum sjónvarpsþætti og á allra vörum landar mönnum oft góðum embættum.
Rætt var um rímnakveðskap í síðustu Kilju. Rímnakveðskapur er bráðskemmtilegur ef hann skilst sæmilega en annars er hann hundleiðinlegt þrugl. Ætlast er þó til að hann þyki ævinlega fínn því hann er í tísku núna.
Ágúst Borgþór, sem sjálfur er úrvalsbloggari, sagði einhverntíma á sínu bloggi að það væri hvíld frá alvarlegri skrifum að blogga og meinti örugglega að hann vandaði sig síður við það en önnur skrif. Fyllsta ástæða er samt til að vanda sig við bloggskrif. Einkum ef þau eru það skásta sem maður gerir.
Flokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:35 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Ég held að þetta sé alveg rétt athugað hjá þér að þetta brölt Borgaarahreyfingarinnar verði til að styrkja fjórflokkinn. Og b.t.w. ég held að Páll Baldvin eigi ekki eftir að verða Þjóðleikhússtjóri. Hann er ekki nógu sviplaus og persónulaus. Ráðherrar skipa ekki svona róttæka menn eins og hann. Þeir vilja bara aumingja.
Sigurður Þór Guðjónsson, 19.9.2009 kl. 01:21
Já, en Sigurður er ekki ráðherrann sjálfur dálítið róttækur í þessu tilfelli? Ég hef alveg trú á að Páll verði Þjóðleikhússtjóri.
Sæmundur Bjarnason, 19.9.2009 kl. 01:33
Gúmoren hér. Skrifaði smávegis um Þjóðleikhússtjórann í júnílok og er enn sama sinnis.
http://yngvii.blog.is/blog/yngvii/entry/906012/
Yngvi Högnason, 19.9.2009 kl. 09:33
Yngvi, alveg sammála þér með þetta. Hef samt lítið fylgst með þessu máli og veit ekki einu sinni hvenær því verður ráðir til lykta.
Sæmundur Bjarnason, 19.9.2009 kl. 09:50
Ég er ekki alveg að skilja af hverju fólk er á móti Þór Saari ?
Gunnar Helgi Eysteinsson, 19.9.2009 kl. 09:58
Gunnar Helgi, það sem ég hef aðallega á móti Þór Saari er að þegar ESB málið var til umræðu auglýsti hann bókstaflega að atkvæði Borgarahreyfingarinnar væru til sölu. Einnig virðist hann hafa úrslitaáhrif á það hvaða ákvarðanir Birgitta og Margrét taka. Svo er myndun Hreyfingarinnar og fjandskapurinn við Valgeir Skagfjörð rangur að mínu mati.
Sæmundur Bjarnason, 19.9.2009 kl. 10:10
ég tek undir með Sæma í greiningunni á Þór Saari.. ég slettaði bloggið hans því ég nennti aldrei að lesa það sem hann skrifaði eftir að hann auglýsti atkvæði borgarahreifingarinnar til sölu opinberlega sl sumar.
Óskar Þorkelsson, 19.9.2009 kl. 10:54
Óskar ég er alveg sammála þér. Les samt gjarnan það sem þau Þór og Birgitta skrifa um þingstörfin því það er oft fróðlegt.
Sæmundur Bjarnason, 19.9.2009 kl. 12:11
Tek undir með þér Sæmundur, ég kaus Borgarahreyfinguna vegna þess að ekkert annað var í boði. Nú er það atkvæði horfið út í buskann.
Þröstur Ingólfur Víðisson 19.9.2009 kl. 13:20
Þröstur, já það er lítið við þessu að gera. Samt er mögulegt að viðhorfin verði önnur þegar dregur að næstu kosningum.
Sæmundur Bjarnason, 19.9.2009 kl. 13:33
Kjósið bara VG
Látið ykkur bara að kenningu verða Sæmundur, Þröstur ofl.
VG hefur nú þegar unnið ómetanlegt starf við að draga þjóðfélagið upp úr drullu nýfrjálshyggju. Vissulega erum við margir kjósendur VG ekki ánægðir með allt í Samfylkingarsamstarfi. En mikill munur er eðlilegum skoðanaskiptum innan flokksins og farsa Borgarhreyfingar.
Sigmar Þormar, 19.9.2009 kl. 15:38
Sigmar, VG er nú bara einn fjórði af fjórflokknum og ekkert endilega betri, nema á sumum sviðum. Minnst skemmdur af bankahruninu að vísu, en eru ekki bara allar gömlu klisjurnar að öðlast líf að nýju?
Sæmundur Bjarnason, 19.9.2009 kl. 16:08
Yfirlýsing: Borgarahreyfing ei meir fyrir mig. Í næstu kosningum mun ég kjósa Evrópuflokk.
Kama Sutra, 19.9.2009 kl. 16:38
Já, en Kama Sutra við erum bara tvö. Það voru svo margir sem kusu Borgarahreyfinguna en verða nú að snúa sér að fjórflokknum. Það er ekkert víst að flokkarnir þar geti allir ákveðið sig varðandi Evrópumálin. Svo er ekkert vinsælt að vera hlynntur ESB akkúrat núna.
Sæmundur Bjarnason, 19.9.2009 kl. 16:54
Ég er með miðlungs breitt bak og er að reyna að koma mér upp þykkum skráp. Ég ber það auðveldlega að vera ESB-sinni mitt í allri Evrópufóbíunni.
Kama Sutra, 19.9.2009 kl. 17:09
Það er fullreynt með þessa þrjá þingmenn en er fullreynt með Borgarahreyfinguna?
Ég er svo bjartsýnn að ég held að nú gefist tími til að byggja upp öfluga valddreifða stjórnmálahreyfingu. Nýja stjórnin er skipuð hörku fólki sem nú er reynslunni ríkara. Enn eru um 600 manns skráð í hreyfinguna og ég hef trú á að við séum rétt að byrja. Skora á Sæmund Bjarnason og ykkur hin að taka þátt í endurreisninni með okkur í Borgarahreyfingunni.
Jón Kristófer Arnarson, 19.9.2009 kl. 17:57
Takk Jón Kristófer.
Man að það var einkum Valgeir Skagfjörð sem vakti athygli mína fyrir skeleggan málflutning í kosningabaráttunni fyrir síðustu kosningar. Skilst að hann sé enn í Borgarahreyfingunni, svo kannski er einhver von.
Sæmundur Bjarnason, 19.9.2009 kl. 19:01
Ég vona svo sannarlega að þessi vandræðagangur Borgarahreyfingarinnar hafi ekki látið fólk missa alla trú á ný framboð því það skulu vera fleiri en fjórflokkurinn í boði í næstu kosningum, og Samtök Fullveldissinna eitt þeirra. Ólíklegt þykir mér þó að nokkur þeirra sem hér skrifar muni kjósa það framboð.
Axel Þór Kolbeinsson, 21.9.2009 kl. 09:29
hehe. Aldrei að segja aldrei. Kannski Davíð fari bara á þennan lista þegar hann verður búinn að gera endanlega útaf við Moggatetrið.
Sæmundur Bjarnason, 22.9.2009 kl. 00:15
Úff, æ nei. Davíð ætti bara að slappa af og skrifa smásögur.
Axel Þór Kolbeinsson, 22.9.2009 kl. 08:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.