28.8.2009 | 00:02
786 - kjosa.is
Nú er kannski kominn tími til að dusta rykið af kjosa.is. Síðast þegar ég vissi voru meira en 3200 búnir að skrifa sig á þann lista. Kannski eru flestir búnir að gleyma því en þetta vefsetur var stofnað fyrir allnokkru þegar umræðan um Icesave var á frumstigi. Í sem allra stystu máli er þetta áskorun á forseta vorn um að skrifa ekki undir lögin um Icesave ríkisábyrgðina. Sjá nánar á vefsetrinu sjálfu. 3200 er auðvitað ekki mikill fjöldi en ef þeir sem hæst hafa látið útaf Icesave undanfarið hvetja nú alla til að skrifa sig á þennan lista kann þeim að fjölga. Tónninn í stjórnmálaumræðu hér á landi hefur breyst að undanförnu. Netið á sinn þátt í því. Umræðan þar er ákaflega óvægin. Bloggarar eru mestan part vinstri sinnaðir og gjarnir á að halda að allt sem þeir lesa og segja sé undantekningalaust satt og rétt. Prófkjör og kosningar sýna vel vanmátt bloggsins. Vegur þess fer þó vaxandi og margir lesa greinar þar sér til gagns. Jón Valur Jensson skrifar mikið á sitt blogg um fréttir dagsins en einkum þó um Icesave og ESB. Þar minnist hann oft á að Jón Sigurðsson forseti hefði gert þetta eða hitt ef hann væri á lífi og fengi að ráða. Ég er sannfærður um að Jón Sigurðsson hefði verið fylgjandi aðild að ESB. Annars vil ég helst ekki ræða mikið um þetta mál því þá er hætta á að svarhalarnir lengist úr hófi og úr verði þrætubók af versta tagi. Andstæðingar aðildar segja jafnan að fullveldi og sjálfstæði landsins sé lokið ef af aðild verður og þeir sem slíku mæli bót séu örgustu landráðamenn og svikarar. Þessu verðum við ESB-sinnar að sitja undir en sagan mun dæma um réttmæti þessara fullyrðinga og ekki kvíði ég þeim dómi. |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Nonni Sig hefði fundið upp ESB, hefði honum endst aldur til.
Brjánn Guðjónsson, 28.8.2009 kl. 00:09
Ég er líka viss um að Jón Sigurðsson hefði verið sammála mér í einu og öllu og hann hefði snúið sér við í gröfinni ef hann væri á lífi núna.
Emil Hannes Valgeirsson, 28.8.2009 kl. 00:16
Dóra litla, ég hef ekkert sagt um nauðsynina. Sótt hefur verið um aðild og að því kemur að þeir sem kjósa að taka þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta þurfa að taka afstöðu. Margir eru þegar farnir að velta fyrir sér valkostunum.
Sæmundur Bjarnason, 28.8.2009 kl. 01:23
Það væri nú ekki amalegt ef það væri hægt að koma lögum yfir sumt af því sem viðgengst á Íslandi í tengslum við venslafyrirgreiðslu og fjárfestinga-krosstengsl í fyrirtækjum og stofnunum. Íslendingar munu aldrei taka á því þjóðarmeini sjálfir. Ef að það mundi breytast við ESB væri aðild tilvinnandi.
Þakka þér annars Sæmundur fyrir fína pistla upp á síðkastið sem áður.
Svanur Gísli Þorkelsson, 28.8.2009 kl. 02:30
Ég er eiginlega farin að líta á það sem extra bónus við það að ganga í ESB - að Ísland missi fullveldið. Vonandi gerist það.
Kallið mig bara landráðamanneskju...
Kama Sutra, 28.8.2009 kl. 02:39
Takk öll. Það eru líklega örlagatímar sem við lifum á. Meira að segja knattspyrnulandsleikir verða smámál.
Sæmundur Bjarnason, 28.8.2009 kl. 05:10
Vel 6. þúsund (með þeim sem hafa skrifað undir áskorun á eyðublöðum) eru búin að skora á forsetann - og fer ört fjölgandi.
www.kjosa.is
Við eigum stjórnarskrá. Beitum henni. Ellegar hættum að væla.
Rómverji 28.8.2009 kl. 20:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.