784 - Skoðanakönnun um aðild að ESB

Fyrir nokkru var sagt í fréttum frá skoðanakönnun um aðild að ESB. Mig minnir að hún hafi verið tekin eftir að samþykkt var að sækja um aðild. 

17+17 prósent aðspurðra voru fremur eða mjög fylgjandi aðild en 19+29 prósent andvíg. Um 17 prósent voru síðan á báðum áttum. Eðlilega hafa aðildarsinnar ekki viljað ræða mikið um þessa skoðanakönnum. Sjálfur átti ég von á að fylkingarnar væru nokkuð jafnar, en svo er að sjá sem andstæðingar aðildar séu talsvert fleiri en aðildarsinnar eins og sakir standa.

Þetta kann auðvitað að breytast. Einkum ef einhver markverður árangur næst í aðildarviðræðunum. Hætt er við að Icesave-málið hafi haft áhrif á niðurstöðu þessarar könnunar.

Ég á von á að aðild að ESB verði mikið hitamál í allri stjórnmálaumræðu næstu misserin. Þetta mál hefur margar hliðar og er alls ekki einfalt.

Andstæðingar aðildar fullyrða gjarnan, án þess að vita nokkuð um það, að ESB muni á næstu árum og áratugum þróast í átt til þess að verða stórríki. Sumt fólk hefur meira að segja orðið andvígt aðild á þeim forsendum að annars endi afkomendur þeirra með að verða herskyldir í stórríkinu. Þetta er eins mikil fjarstæða og verið getur.

Ég er fylgjandi aðild eins og málin líta núna út en ef ekki nást almennilegir samningar getur stuðningur minn gufað upp á stuttum tíma. Auðvitað er eðlilegt að menn skipi sér í fylkingar og deili um þessi mál. Þetta getur vel orðið aðalhitamálið í íslenskum stjórnmálum næstu árin. Vonandi er samt að þessar deilur valdi ekki vinslitum þar sem síst skyldi.

Heyrði Hannes Hólmstein Gissurarson segja í einhverjum fréttatíma að bankahrunið væri okkur öllum að kenna nema Davíð Oddssyni. Finnst þetta hljóma eins og hver annar brandari en þó var ekki annað að heyra á Hannesi en honum væri fyllsta alvara með þetta.

Og í lokin nokkrar myndir.

IMG 3911Alveg til sóma enda með rjóma.

IMG 3916Hugsandi köttur.

IMG 3932Sveppanýlenda.

IMG 3962Þang og hrúðurkarlar.

IMG 3968Eitthvað grænt.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kama Sutra

Eins og ég hef sagt hérna áður, áróður ákveðins ofstækismanns gegn ESB á eftir að snúast upp í andhverfu sína og koma okkur þangað inn - líklega á methraða.  Ég hef því engar áhyggjur og sef rólega á meðan téður áróðursmeistari vinnur okkur fylgi fyrir inngöngu í ESB með sínum ofstopa- og æsingaskrifum.   Fleiri virðast vera á sömu skoðun og ég:

http://blog.eyjan.is/bjorn/2009/08/25/ofstaeki-i-gard-andstaedinga/

Kama Sutra, 26.8.2009 kl. 01:30

2 Smámynd: Samtök Fullveldissinna

Ég held, Sæmundur, að stuðningur við inngöngu í ESB muni dala áfram.  Það fer allt eftir því hvernig hagsmunasamtök sambandssinna og fullveldissinna spinna úr fréttunum.  En ég held að þegar fólk sér það að hagsmunir okkar og meginlandsins eru ekki þeir sömu þegar kemur að atvinnu- og tollamálum muni stuðningurinn aldrei verða nægilegur.

kveðjur úr Hveragerði.

Samtök Fullveldissinna, 26.8.2009 kl. 09:55

3 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Þetta átti að vera í mínu nafni en ekki samtakana...

Axel Þór Kolbeinsson, 26.8.2009 kl. 09:56

4 Smámynd: Bjarni Harðarson

Sumt fólk hefur meira að segja orðið andvígt aðild á þeim forsendum að annars endi afkomendur þeirra með að verða herskyldir í stórríkinu. Þetta er eins mikil fjarstæða og verið getur.
Í Lissabonsáttmálanum eru ákvæði um herskyldu svo ég skil ekki þessa fullyrðingu þína frændi.

Bjarni Harðarson, 26.8.2009 kl. 11:12

5 identicon

Mér sýnist JVJ vera á góðri leið með að sannfæra fólk um að ESB sé það sem koma skal...

DoctorE 26.8.2009 kl. 12:26

6 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Viðbrögðin við þessari grein eru svipuð og ég bjóst við. Varðandi herskylduna vil ég bara segja. (án þess að hafa lesið Lissabon-sáttmálann spjaldanna á millli). Ef til þess kemur eftir aldir eða árþúsund að herskylda verður tekin upp á íslandi verður það alveg örugglega ekki vegna þess að Ísland hafi gengið í ESB nú á næstu árum. Það er alveg áreiðanlegt að ástæðurnar verða allt aðrar ef til þessa kemur sem er með því ólíklegasta sem er hægt að hugsa sér.

Sæmundur Bjarnason, 26.8.2009 kl. 14:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband