26.8.2009 | 00:08
784 - Skoðanakönnun um aðild að ESB
Fyrir nokkru var sagt í fréttum frá skoðanakönnun um aðild að ESB. Mig minnir að hún hafi verið tekin eftir að samþykkt var að sækja um aðild. 17+17 prósent aðspurðra voru fremur eða mjög fylgjandi aðild en 19+29 prósent andvíg. Um 17 prósent voru síðan á báðum áttum. Eðlilega hafa aðildarsinnar ekki viljað ræða mikið um þessa skoðanakönnum. Sjálfur átti ég von á að fylkingarnar væru nokkuð jafnar, en svo er að sjá sem andstæðingar aðildar séu talsvert fleiri en aðildarsinnar eins og sakir standa. Þetta kann auðvitað að breytast. Einkum ef einhver markverður árangur næst í aðildarviðræðunum. Hætt er við að Icesave-málið hafi haft áhrif á niðurstöðu þessarar könnunar. Ég á von á að aðild að ESB verði mikið hitamál í allri stjórnmálaumræðu næstu misserin. Þetta mál hefur margar hliðar og er alls ekki einfalt. Andstæðingar aðildar fullyrða gjarnan, án þess að vita nokkuð um það, að ESB muni á næstu árum og áratugum þróast í átt til þess að verða stórríki. Sumt fólk hefur meira að segja orðið andvígt aðild á þeim forsendum að annars endi afkomendur þeirra með að verða herskyldir í stórríkinu. Þetta er eins mikil fjarstæða og verið getur. Ég er fylgjandi aðild eins og málin líta núna út en ef ekki nást almennilegir samningar getur stuðningur minn gufað upp á stuttum tíma. Auðvitað er eðlilegt að menn skipi sér í fylkingar og deili um þessi mál. Þetta getur vel orðið aðalhitamálið í íslenskum stjórnmálum næstu árin. Vonandi er samt að þessar deilur valdi ekki vinslitum þar sem síst skyldi. Heyrði Hannes Hólmstein Gissurarson segja í einhverjum fréttatíma að bankahrunið væri okkur öllum að kenna nema Davíð Oddssyni. Finnst þetta hljóma eins og hver annar brandari en þó var ekki annað að heyra á Hannesi en honum væri fyllsta alvara með þetta. Og í lokin nokkrar myndir. |
Flokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:14 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Eins og ég hef sagt hérna áður, áróður ákveðins ofstækismanns gegn ESB á eftir að snúast upp í andhverfu sína og koma okkur þangað inn - líklega á methraða. Ég hef því engar áhyggjur og sef rólega á meðan téður áróðursmeistari vinnur okkur fylgi fyrir inngöngu í ESB með sínum ofstopa- og æsingaskrifum. Fleiri virðast vera á sömu skoðun og ég:
http://blog.eyjan.is/bjorn/2009/08/25/ofstaeki-i-gard-andstaedinga/
Kama Sutra, 26.8.2009 kl. 01:30
Ég held, Sæmundur, að stuðningur við inngöngu í ESB muni dala áfram. Það fer allt eftir því hvernig hagsmunasamtök sambandssinna og fullveldissinna spinna úr fréttunum. En ég held að þegar fólk sér það að hagsmunir okkar og meginlandsins eru ekki þeir sömu þegar kemur að atvinnu- og tollamálum muni stuðningurinn aldrei verða nægilegur.
kveðjur úr Hveragerði.
Samtök Fullveldissinna, 26.8.2009 kl. 09:55
Þetta átti að vera í mínu nafni en ekki samtakana...
Axel Þór Kolbeinsson, 26.8.2009 kl. 09:56
Bjarni Harðarson, 26.8.2009 kl. 11:12
Mér sýnist JVJ vera á góðri leið með að sannfæra fólk um að ESB sé það sem koma skal...
DoctorE 26.8.2009 kl. 12:26
Viðbrögðin við þessari grein eru svipuð og ég bjóst við. Varðandi herskylduna vil ég bara segja. (án þess að hafa lesið Lissabon-sáttmálann spjaldanna á millli). Ef til þess kemur eftir aldir eða árþúsund að herskylda verður tekin upp á íslandi verður það alveg örugglega ekki vegna þess að Ísland hafi gengið í ESB nú á næstu árum. Það er alveg áreiðanlegt að ástæðurnar verða allt aðrar ef til þessa kemur sem er með því ólíklegasta sem er hægt að hugsa sér.
Sæmundur Bjarnason, 26.8.2009 kl. 14:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.