781 - Um bloggið mitt

Veit vel að ekki nenna margir að lesa bloggið mitt að staðaldri. Verð að una við það og er ekkert óhress með. Samt eru furðumargir sem skoða það. Ef dagar falla niður hjá mér fækkar lesendum mjög. Af því dreg ég þá ályktun að þónokkuð mikilll fjöldi skoði bloggið mitt einkum fyrir tilverknað RSS-strauma og þeirrar auglýsingar sem fólgin er í stórhausahugmyndinni hjá þeim Moggamönnum og ef til vill líka í bloggvinaæðinu hjá þeim. Já, ég velti mikið fyrir mér hvers vegna í ósköpunum fólk er að lesa þetta.

Vildi að ég gæti skrifað um eitthvað bitastætt á hverjum degi en svo er ekki. Stundum stend ég sjálfan mig að því að reyna að gera eitthvað bitastætt sem í rauninni er það alls ekki. Til dæmis held ég að vísurnar hjá okkur Hilmari séu ekki spor merkilegar þó ég hafi leiðst útí að segja frá þeim í síðasta bloggi. Don Hewitt var þó merkilegur og Hólmfastur Guðmundsson líka.

Í kvöld er víst menningarnótt í Reykjavík en ég nenni ekki að fara. Of margir á ferðinni og of mikið vesen. Skárra að sitja hér og skrifa einhverja vitleysu.

Konan mín er nýbúin að auglýsa til sölu nokkrar myndir eftir sig á etsy.com og setja upp einskonar verslun þar.  asben.etsy.com - er urlið. Þar eru nokkrar fínar vatnslitamyndir og á eflaust eftir að fjölga. Etsy.com er annars ágætur vefur. Sérhæfir sig í öllu „handmade" og er greinilega nokkuð vinsæll. Einkum í Bandaríkjunum. Þar er margt að skoða hafi menn áhuga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Nú vill skylmast náunginn.
Nálykt ilmar varla.
Vekur Hilmar háðfuglinn
sem að filmar karla.

Sæmundur Bjarnason, 23.8.2009 kl. 12:13

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Við yfirlestur sé ég að seinni höfuðstafinn vantar. Úr því má bæta. Nenni samt ekki að leiðrétta. Veit heldur ekki hvort það er hægt.

Sæmundur Bjarnason, 23.8.2009 kl. 12:18

3 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

"hann sem filmar karla"

Svanur Gísli Þorkelsson, 23.8.2009 kl. 13:21

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Nú skal hendu fríða hring
hugsun venda að semja.
Andans lendur allt um kring
æfðri hendi temja.

Filmar karla fimur hann
fýsnir varla hefur.
Argur harla er víst hann.
Um sig jarli vefur.

Sæmundur Bjarnason, 23.8.2009 kl. 16:01

5 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Orkurík þau eðalsvin.
Ekki líkjast körlum.
Kaupa ríkir kláravín
og kátir flíka jörlum.

Sæmundur Bjarnason, 24.8.2009 kl. 00:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband