782 - Gaman er að gera hitt

Gaman er að gera hitt
á góðri stund.
Í píkuna að setja sitt.
Soldinn brund. 

Var ekki lengi að gera þessa vísu enda hef ég yfirleitt átt auðvelt með að setja saman dónalegar (óprenthæfar) vísur. Þarna þurfti ég á einhverju rammandi að halda í upphafinu.

Fáar vísur sem ég hef gert eru mér sérlega minnisstæðar. Ein klámvísa stendur þó uppúr. Hún er svona:

Tekur þýtt um tólið hlýtt
typpi er ýtt í skokkð.
Hárið sítt á tussu títt
titrar frítt og hrokkið.

Þessi er gömul og konan mín hjálpaði mér við hana. Gott ef hún á ekki fyrripartinn að mestu leyti. Sagði Þórði í Mýrdal einhvern tíma frá þessari vísu og síðan mátti hann ekki sjá mig öðruvísi en að fara með vísuna. Honum hefur líklega þótt hún góð.

Til konu minnar orti ég eitt sinn:

Mín ást til þín er alla tíð
sem eldfjalls heitur toppur.
Þú ert svanninn sem ég ríð
og svakalegur kroppur.

Ég álít semsagt sv- ekki vera einn af gnýstuðlunum eins og sumir gera. Í skólanum lærði ég að þeir væru þrír: sk- st- og sp-. Þetta er samt á mörkunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvurslags stólpakjaftur er hér á ferð.. mér er skapi næst að benda honum Árna á þessi hræðilega svæsnu skrif... þessi eini pistill gæti hæglega gert út af við ísland eins og það leggur sig.... segja þeir á Omega ásamt öðrum sem lifa í Lalalandi.

Bara að grínast eins og þú ;)

DoctorE 24.8.2009 kl. 14:11

2 Smámynd: Björn Birgisson

Assskoti hressandi!

Björn Birgisson, 24.8.2009 kl. 15:45

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

:)

Óskar Þorkelsson, 24.8.2009 kl. 15:46

4 identicon

Jah, nú sígur auga í pung.....

nicejerk 24.8.2009 kl. 16:41

5 identicon

eða var það að draga í pung. Elliglöp.

nicejerk 24.8.2009 kl. 16:44

6 Smámynd: Kama Sutra

Sæmundur þó!  

Hvað segja nú Moggabloggsguðirnir?  Verður þér ekki umsvifalaust hent héðan út þegar þeir fatta þetta?

Kama Sutra, 24.8.2009 kl. 18:33

7 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Fleira er ekki fært í letur.
Feginn segir hilmarinn.
Hann var að í allan vetur
en ekki náði að komast inn.

Sæmundur Bjarnason, 24.8.2009 kl. 20:51

8 Smámynd: Kama Sutra

Héðan í frá verður það Klæmundur, en ekki Sæmundur.

Kama Sutra, 25.8.2009 kl. 00:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband