29.5.2009 | 00:26
699 - Erró, bjór og myndir
Erró er engum líkur. Hann kann að mála. Hefur sérstakan stíl og kann svo sannarlega að auglýsa sig. Einu sinni hét hann Ferró en svo vildi einhver meina að hann hefði einkarétt á því nafni svo hann felldi F-ið niður. Hann heitir víst Guðmundur Guðmundsson og er fæddur í Ólafsvík en alinn upp á Kirkjubæjarklaustri.
Á Hundastapa á Mýrum er rennandi bjór eftir því sem sagt var í sjónvarpinu í kvöld. Ekki veit ég hvað það á að fyrirstilla að vera að gefa nautum bjór en ég man eftir því að einu sinni var vinsælt lag sem hét á ensku Running bear" eða eitthvað þess háttar. Ég var aldrei viss um hvort verið var að tala um hlaupandi björn eða rennandi bjór. Annars man ég yfirleitt ekki vel eftir dægurlagatextum. Skil þá sjaldnast og finnst þeir yfirleitt ekki skipta miklu máli. Undantekningar eru samt til.
Ef endilega þarf að vera verðtrygging þá er án alls vafa vitlaus vísitala notuð til að hækka lánin. Eðlilegast er að skuldunautar og lánardrottnar skipti verðbólguáhrifunum einhvern vegin á milli sín. Ef verðbólgan er lítil sem engin skiptir þetta auðvitað ekki miklu máli en verðbólgan á það til að rjúka upp eins og dæmin sanna.
Óvenjumargir blogga nú um þingstörfin sín og er það vel. Þetta starf verður manneskjulegra fyrir vikið. Svo er líka oft gaman að fylgjast með Alþingisumræðum í sjónvarpinu. Ágæt gestaþraut er að spá í skammstafanirnar á nöfnunum sem hægt er að sjá á mælendaskránni.
Athyglisverð þverstæða er að nú er líklega fyrst meirihluti á Alþingi fyrir Evrópuaðild en kannski ekki meðal þjóðarinnar. Löngum var því öfugt farið. Líklega fer best á því að láta Alþingi eitt um það næstu vikurnar að þræta fram og aftur um þetta mál.
Og svo eru einar ellefu myndir sem allar eru teknar við Elliðaárnar um daginn.
Þetta er víst fífill að springa út.
Hundasúruplanta berst fyrir lífi sínu.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Apríl 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
-
Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
-
Egill Jóhannsson
-
Róslín A. Valdemarsdóttir
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Arnþór Helgason
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Lýður Pálsson
-
Einar Sveinbjörnsson
-
Gylfi Guðmundsson
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Villi Asgeirsson
-
Sigurður Þór Guðjónsson
-
Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
-
Egill Bjarnason
-
Jóhann Björnsson
-
Ólafur fannberg
-
TómasHa
-
Ágúst H Bjarnason
-
Brjánn Guðjónsson
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Ragnheiður
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Magnús Helgi Björgvinsson
-
Kári Harðarson
-
Eiríkur Mörk Valsson
-
Ragnhildur Sverrisdóttir
-
Ridar T. Falls
-
Konráð Ragnarsson
-
Vefritid
-
Svanur Sigurbjörnsson
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Friðrik Þór Guðmundsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Sveinn Ingi Lýðsson
-
Hlynur Þór Magnússon
-
Pawel Bartoszek
-
Haukur Nikulásson
-
Bjarni Harðarson
-
Eiður Svanberg Guðnason
-
Ómar Ragnarsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
AK-72
-
Sigurður Ingi Kjartansson
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Púkinn
-
Lady Elín
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Jens Guð
-
Gunnar Th. Gunnarsson
-
Hrannar Baldursson
-
Jón Bjarnason
-
Ár & síð
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
-
Svavar Alfreð Jónsson
-
Benedikt Henry Segura
-
Marinó G. Njálsson
-
Theódór Norðkvist
-
Jón Ingvar Jónsson
-
Gunnar Þórðarson
-
Ólafur Fr Mixa
-
Gíslína Erlendsdóttir
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Heimir Tómasson
-
Guðmundur Pálsson
-
Ólafur Ragnarsson
-
gudni.is
-
Guðbjörn Guðbjörnsson
-
Lúðvík Júlíusson
-
G. Valdimar Valdemarsson
-
Sigmar Þór Sveinbjörnsson
-
Gestur Gunnarsson
-
Óskar Þorkelsson
-
Ylfa Mist Helgadóttir
-
Kristinn Theódórsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Evrópusamtökin, www.evropa.is
-
Lýður Árnason
-
Brattur
-
Marta B Helgadóttir
-
Hallmundur Kristinsson
-
Sigurður Hreiðar
-
Eyþór Árnason
-
Bergur Thorberg
-
kloi
-
Hjalti Tómasson
-
Kristjana Bjarnadóttir
-
Bjarni Sæmundsson
-
Máni Ragnar Svansson
-
Emil Hannes Valgeirsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Torfi Kristján Stefánsson
-
Haukur Baukur
-
Sverrir Stormsker
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Loopman
-
Einar B Bragason
-
Erna Bjarnadóttir
-
Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Gísli Tryggvason
-
Helgi Guðmundsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Þorsteinn Briem
-
Hjálmtýr V Heiðdal
-
Himmalingur
-
Ketill Sigurjónsson
-
Sæmundur Bjarnason
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Bjarni Rúnar Einarsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Bókakaffið á Selfossi
-
Guðni Karl Harðarson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Hlynur Þór Magnússon
-
Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
-
Marteinn Unnar Heiðarsson
-
Einar G. Harðarson
-
Bloggrýnirinn
-
kreppukallinn
-
Jack Daniel's
-
Guðjón Baldursson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Dóra litla
-
hilmar jónsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Arnþrúður Karlsdóttir
-
Baldur Hermannsson
-
Eygló
-
Finnur Bárðarson
-
Andri Geir Arinbjarnarson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Loftslag.is
-
Jón Daníelsson
-
Elín Helga Egilsdóttir
-
Helga Þórðardóttir
-
Sigurður Grétar Guðmundsson
-
Leikhópurinn Lotta
-
Dúa
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Kama Sutra
-
Bjarni Kristjánsson
-
Kristinn Theódórsson
-
Blogblaster
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jóhanna Magnúsdóttir
-
Andspilling
-
Valmundur Valmundsson
-
Dingli
-
Kristinn Karl Brynjarsson
-
Sigurður Einarsson
-
Mathieu Grettir Skúlason
-
Árni Matthíasson
-
BookIceland
-
FORNLEIFUR
-
Guðbjörn Jónsson
-
Högni Snær Hauksson
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Stefán Júlíusson
-
Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
vísitala neysluverðs, sem notuð er til verðtryggingar endurspeglar ekki neyslu heldur einungis verð vara sem einhverjir besserwissar hafa ákveðið að væru týpískar almennar neysluvörur, s.s. ilmvötn og sólarlandaferðir.
tóm tjara.
og neyslumynstrið breytist. í dag eru mun færri að fara í sólarlandaferðir og væntanlega líka færri að stunda ilmvatnakaup.
nær væri að hafa færri vörur í vísitölunni og þá einungis vörur sem flokkast sem nauðsynjar. vörur sem allir kaupa, óháð þjóðfélagsaðstæðum.
vísitalan í dag er langt frá því að mæla hvað fólk er að kaupa.
það kæmi mér ekki á óvart að verð nýrra bifreiða (sem enginn er að kaupa í dag) væri í vísitölunni.
tómt endemis rugl.
Þegar forsendan er rugl getur útkoman aldrei orðið annað en rugl. Simple as that.
Brjánn Guðjónsson, 29.5.2009 kl. 00:40
Að brennivínshækkanir og skattahækkanir skuli stórhækka húsnæðislán sýnir vel hverslags fáviska þessi verðtrygging er. En menn gleymdu sér í verðbólguleysinu undanfarið og í staðinn fyrir að afnema þessi ósköp bítur verðtryggingin okkur nú sem aldrei fyrr.
Sæmundur Bjarnason, 29.5.2009 kl. 01:04
Erro kann meira en að mála. Hann kann að markaðsetja sig. Gaf okkur þessi býsn af málvekur ef máverk skyldi kalla eftir að útséð var að ekki yrði byggt undir hann safn í Evrópu.
Hann er með fjöldann allan í vinnu. Hvað er list?
Hallgerður Pétursdóttir 29.5.2009 kl. 23:07
Já, viljandi ýta yfirvöld skuldum venjulegs fólks upp í himinhæðir, um milljónir á milljónir ofan, vegna handótnýtrar vitleysis-vísitölu sem er notuð af yfirvöldum. Það er orðið alvarlegt mannréttindabrot gegn venjulegu fólki. Og þarna er ég ekki að meina fólk sem eyddi eins og vitleysingar. Fólk getur ekkert gert og ræður engu um allar milljónirnar sem eru lagðar af yfirvöldum með valdi ofan á fyrri eðliegar skuldir þess. Einn maður, TJ, lýsti þessu svona:
"Öll mannanna verk eru fallvölt og það sem einu sinni var ákveðið eða búið til verðum við að hafa kjark til að breyta eða lagfæra. Verðtrygging er ekki náttúrulögmál og gengisviðmið ekki heldur. Þetta eru einfaldlega tæki sem notuð voru í ákveðnum tilgangi en núna eru þessi tæki biluð og þá á auðvitað að gera við þau.
Maður heldur ekki áfram að aka úrbræddum bíl og maður notar ekki tölvuna áfram eftir að hún smitast af vírus (eða það ætti maður a.m.k. ekki að gera!).
Maður níðist heldur ekki á þjóð sinni með því að fleygja henni fyrir borð úti á rúmsjó með blöðru í stað björgunarvestis. Segja henni svo að synda bara heim þótt hvergi sjáist til lands, jafnvel þótt synda verði út yfir gröf og dauða."
Og ótal önnur dæmi eru um hrollvekjandi lýsingar á ofbeldi yfirvalda gegn skuldurum.
EE elle 30.5.2009 kl. 22:51
Og eitt enn: Eina vísitalan sem kannski ætti að koma fasteignaskuldum fólks við væri þá fasteignavisitalan. Enn fljúga fasteignaskuldir fólksins upp á fullu þó fasteignir hafi kol-fallið í verði!?! Fasteignaskuldir fólksins fljúga upp ef Ögmundur vill hækka skatta á bensíni, áfengi, sykri!?! Ósvífni, rán, svindl. EKkert land í heiminum notar svona ranglætislega vísitölu. Í venjulegum löndum miðast fasteignalánsvextir, ekki nein vísitala, við fasteignaverð. En ekki í Skuldalandi. Í
EE elle 30.5.2009 kl. 23:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.