22.5.2009 | 00:17
692- Reynt að kryfja stórhausamálið til mergjar og tæpt á ýmsu öðru
Brjánn bloggvinur minn Guðjónsson gerir stórhausamálið að umtalsefni í nýlegu bloggi. Mér er ljúft og skylt að skýra hvernig þetta mál horfir við mér. Forsíðubloggarar eða stórhausar eru nefndir þeir átta bloggarar sem koma á forsíðuna í hvert sinn sem blog.is setrið er heimsótt. Hvernig þessi blogg eru valin hefur oft komið til umræðu. Starfsmenn Moggabloggsins eða Moggabloggsguðirnir sem ég vil kalla velja þá sem þarna eru. Af lista sem mér skilst að á séu um 200 bloggarar velur sérstakt forrit hverja átta skuli birta hverju sinni. Hvaða skilgreiningar ráða því vali er mér að mestu hulið. Moggabloggsmenn geta þó að sjálfsögðu skýrt þetta allt saman vilji þeir það. Mér finnst að ekki eigi að leyna neinu í þessu sambandi. Annaðhvort eigi að útskýra út í hörgul hvernig þessu vali er varið eða steinhætta þessari stéttaskiptingu. Ef vilji er til að halda þessu áfram tel ég að útskýra þurfi vel af hverju þetta er gert. Mér finnst mannkynsfrelsarar vaða dálítið uppi á Íslandi í dag. Einkum í silfri Egils, Stöð 2 og útvarpi Sögu. Kannski er þetta einhver ímyndun í mér en ég get ekki gert að því þó mér finnist þetta. Bloggið er svolítið annar handleggur. Vissulega er margt bullið þar en fyrir það er auðvelt að skrúfa. Ekki er nærri eins auðvelt að skrúfa fyrir hina hefðbundnu fjölmiðla því vitundin um það sem maður gæti hafa misst af er sárari en margt annað. Fjölmiðlarnir hafa áhrif á marga í krafti auðvaldsins og auglýsinganna. Auglýsendur þurfa að ná til margra í einu og með hjálp fjölmiðlanna tekst þeim það. Þar með verða fjölmiðlarnir háðir auglýsendunum þó þeir geri sér kannski ekki grein fyrir því. Auglýsendurnir eru hinir raunverulegu eigendur fjölmiðlanna og ráða í raun hvað birtist þar. Af nógu er að taka og innan um það sem úti frýs er sjálft lýðræðið og frelsið til athafa. Þetta er gömul saga og ný. Án raunverulegrar og frjálsrar fjölmiðlunar er ekkert líf. Án lífs engin fjölmiðlun. Þetta er Catch-22 nútímans og erfitt að breyta. Um daginn fór ég að bænum Straumi sem stendur skammt frá álverinu í Straumsvík. Ekki fór ég inn heldur lét mér umhverfið nægja. Á heimleiðinni ætlaði ég að skoða nánar hið merka listaverk af Þór sáluga í hafravagninum en listrænn hundur, kolsvartur að lit, sem þarna var á verði kom í veg fyrir það. Um leið og ég snaraðist út úr bílnum kom hann æðandi með gelti, gassalátum og urri en hefur sennilega brugðið eins mikið og mér því líklega hefði hann getað bitið mig áður en ég komst inn í bílinn aftur hafi það verið raunverulegur ásetningur hans. Út úr bílnum þorði ég þó ekki að fara öðru sinni heldur kom mér sem skjótast í burtu. Svo eru nokkrar myndir. |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Þetta er mjög athyglisverður pistill hjá þér. Það er ekki langt síðan ég fór að blogga en það hefur undrað mig hve þröngur hópur það er sem kemst í þennan útvalda hóp að verða forsíðubloggarar. Ég bloggaði nýlega um það að fjölmiðlar, hvaða nafni sem þeir nefnast, séu hlutdrægir í vali sínu á viðmælendum og benti á að í Kastljósi og Silfri Egils væru stöðugt á ferðinni "afturgöngur" mér sýnist það sama vera upp á teningum hvað varðar val forsíðubloggara (Líklega er ég hér með búinn að eyðileggja um alla framtíða möguleika mína að komast í þennan útvalda hóp)
Sigurður Grétar Guðmundsson, 22.5.2009 kl. 09:20
Já Sigurður. Þetta forsíðubloggaramál er einkennilegt og ég skil ekki tilganginn með því. Mér finnst að reglurnar sem þessu ráða þyrftu að vera auðskiljanlegar og aðgengilegar. Það er að segja ef þetta er nauðsynlegt.
Sæmundur Bjarnason, 22.5.2009 kl. 13:53
Mér finnst gott að vera í skugganum af stórmennunum.
Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 22.5.2009 kl. 19:26
Best að vera bara þverhaus og sníkjublogga hjá stórhausunum.
Malína 22.5.2009 kl. 20:20
Ég vil ekki vera ´alvörubloggari´. Heldur bara skipta mér af mönnum og músum.
EE elle 25.5.2009 kl. 23:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.