16.10.2008 | 00:23
480. - Blaðamannafundur um ekki neitt. Geir og Bjöggi höfðu ekkert að segja. Ætluðu þeir að segja eitthvað?
Nú eru strákarnir að fara svolítið framúr sjálfum sér. Það er engin ástæða til að halda blaðamannafund nema hafa eitthvað að segja. Mér fannst samt eins og þeir álitu að ástandið færi bráðum að skána. Var að lesa byrjunina á skýrslunni sem dregin var undan stólnum og það er ljótur lestur. Núna rétt áðan ætlaði ég svo að lesa grein í Financial Times sem mbl.is vísaði í en þá kostaði það. Mér var bara öllum lokið. Lesið pistilinn hennar Láru Hönnu um skýrsluna. Tölum frekar um eitthvað annað. Eins og til dæmis Nobelsverðlaun í bókmenntum. Það er fróðlegt að athuga ýmislegt í sambandi við þau. Eins og flestir Íslendingar vita hlaut Halldór Kiljan Laxness þau árið 1955. Sá sem fékk þau árið áður var enginn annar en Ernest Hemingway og árið þar á undan fékk Sir Winston Churchill þau. Sagt er að Sir Winston hafi orðið nokkuð undrandi þegar hann frétti af verðlaununum og einhverjir veltu því fyrir sér hvort hann hefði ekki átt að fá friðarverðlaunin frekar. Hann hefði kunnað að meta íróníuna í úthlutun friðarverðlaunanna árið 1973 þegar Henry Kissinger og Le Duc Tho hlutu þau. Það voru reyndar stórmennin Albert Schweitzer og George C. Marshall sem hlutu friðarverðlaunin árin 1952 og 1953. Knut Hamsun hlaut bókmenntaverðlaunin hinsvegar þegar árið 1920. Mér er minnisstætt að ég las á sínum tíma um svipað leyti bækurnar Sjálfstætt fólk eftir Laxness og Gróður jarðar eftir Hamsun. Líkindi bókanna fóru auðvitað alls ekki framhjá mér en mér finnst langt gegnið að tala um að Laxness sé að stæla Hamsun með sinni bók. Tveimur árum eftir að Laxness fékk verðlaunin fékk Frakkinn Albert Camus þau og Rússinn Boris Pasternak árið þar á eftir. Það var svo ekki fyrr en árið 1962 sem John Steinbeck hlaut verðlaunin og Alexander Solzhenitsyn árið 1970. Þegar skoðaður er listi yfir þá höfunda sem hlotið hafa bókmenntaverðlaun Nobels fer ekki hjá því að maður kannist við ýmis nöfn. Norðmaðurinn Björnstjerne Björnson hlaut þau til dæmis árið 1903. Hann samdi meðal annars söguna ódauðlegu um Bör Börsson sem Helgi Hjörvar las í Íslenska Ríkisútvarpið við fádæma vinsældir á sínum tíma. Norrænu skáldkonurnar Selma Lagerlöf og Sigrid Unset hafa einnig báðar fengið Nobelsverðlaunin. Það var svo í fyrra (2007) sem Doris Lessing fékk verðlaunin. Það sýnir bara hvað úthlutunarnefndin er mikið á eftir tímanum. |
Flokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:31 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Þessi blaðamannafundur var alger steypa og ekkert nýtt kom fram. Forsætisráðherra var jafnvel verr upplýstur um viðræður við Rússa en fréttamenn.
Erna Bjarnadóttir, 16.10.2008 kl. 08:55
Hvenær samdi Björnsterne Bör Börson?
Var það ekki Falkberget?
Gunnar F 16.10.2008 kl. 09:40
Þetta með Björnstjerne var nú bara eftir minni. Kannski tóm vitleysa. Réttast að gúgla það bara.
Sæmundur Bjarnason, 16.10.2008 kl. 13:02
Þú ert orðinn ávanabindandi eins og svo margt annað og nú er gengið í hús og upprættur landi og hass. Í guðanna bænum hættu að vera svona skemmtilegur. Annars kemur löggan kannski og gerir þig upptækan.
Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 16.10.2008 kl. 21:37
Gaman að þessum pistli fyrir bókmenntaunnanda. En Gunnar hefur rétt fyrir sér um höfund sögunnar um Bör Börson. Það var Johan Falkberget sem skrifaði þá skemmtilegu bók og aðra um Bör Börson júníor eða hvað hún nú hét á íslenzku.
Manni getur illilega orðið á í messunni. Það kom fyrir mig um daginn þegar ég skrifaði athugasemd hjá Sigurði veðurvita á þá leið að glasnost þýddi hláka. Þetta kvað minn helmingur - ég segi ekki sá betri, en helmingur samt - vera hina mestu firru. Glasnost þýðir "öppning" sagði minn helmingur og það útleggzt kannski glæta eða rof í merkingunni rofa til. Jæja, nú er þetta leiðrétt hér með.
Boris Pasternak kom aldrei til Stokkhólms til að taka við Nóbelsverðlaununum. Honum voru settir þeir afarkostir af yfirvöldum heima í Sovjét að þá fengi hann ekki að snúa aftur heim til fósturlandsins utan væri dæmdur til útlegðar í " det kapitalistiska paradiset" Hann sendi því loftskeyti til Stokkhólms og í því hinu sama afsagði hann sér verðlaununum en þegar hann lá fyrir dauðanum ( hann dó úr lungnakrabba 1960 ) sagðist hann gjarnan hefði tekið við verðlaununum í Stokkhólmi 1958, ef hann mátt ráða.
Bókin, sem verðlaunin voru veitt fyrir, var skáldsagan Doktor Zjivago og nafnið á dokornum er komið af rússneska orðinu "zjivoj" sem merkir lifandi.
S.H. 16.10.2008 kl. 21:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.