29.8.2008 | 00:06
434. - Veraldar-Vefurinn er vissulega vafasamur
Vefur er til að veiða í. Fólk festist í því sem fyrir því er haft. Gengur í bloggbjörgin eða verður einhverju öðru að bráð. Hvort sem það er Moggablogg, einhver önnur bloggveita, Flickr, Facebook, Ebay, YouTube, MSN, leikir eða eitthvað annað þá er það markmið og ósk stjórnvalda að ræna frá þér tíma svo þú gerir ekki eitthvað af þér. Allir eiga að vera auðsveipir og fyrirsjáanlegir. Þá er hægt að prógrammera okkur til að gera allan andskotann. Jafnvel fara í stríð við ímyndaða óvini sem engu eira og eru með öllu óalandi og óferjandi. Í mínum huga er það verulegt vafamál hvort bloggið færir okkur nær hóphyggju eða einstaklingsfrelsi. Ég sveiflast að minnsta kosti milli þess að trúa hvoru sem er. Eitt er þó víst og það er að bloggið er ný vídd í mannlegum samskiptum og stjórnmálamenn óttast þetta fyrirbrigði mjög. Sigurður Hreiðar biður mig að finna þeim orðum mínum stað að Ólafur forseti hafi farið með tómt fleipur þegar hann talaði um mesta íþróttaafrek allra tíma. Auk þess að vísa í kommentin við síðustu færslu mína má nefna blogg Ómars Ragnarssonar þar sem hann fjallar um afrek Íslendinga á Evrópumeistaramótinu 1950. Einnig má minnast á að sumir telja fleira íþróttir en svokallaðar ólympískar íþróttir. Þar má til dæmis nefna skák og bridge. (Bermúdaskál - einhver) Já og íbúar í Lichtenstein eru rúmlega 30 þúsund. Bahamabúar eru hinsvegar álíka margir og við Íslendingar. Sigurður segir líka réttilega að svona upplýsingar eigi betur heima á blogginu sjálfu en í athugasemdum svo hér eru endurteknar nokkrar upplýsingar þaðan. Lichtenststein - 2 gull, 2 silfur, 5 brons. Bahama - 3 gull, 3 silfur, 4 brons á Ólympíuleikum. Bahama auk þess heimsmeistara í hástökki nýlega. Annars var það málið með fyrirlitningu RUV á þeim sem horfa á útsendingar þeirra á Vefnum sem ég var frekar að vona að yrðu tilefni athugasemda en fjasið í Ólafi Ragnari. |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Þakka þér fyrir. Svona upplýsingar eru nauðsynlegar þegar idjót í íþróttamálum eins og ég eiga í hlut.
Kannski pirraði það mig ofboðlítið að mér finnst ómaklega vegið að Ólafi Ragnari sem mér finnst almennt séð hafa staðið sig prýðilega sem forseti.
kv
Sigurður Hreiðar, 29.8.2008 kl. 12:37
Ég ætla einhvern tíma að tjá mig um vef RUV og beinar eða óbeinar útsendingar þar. Þar sem ég nota vefinn mjög mikið - bæði til að horfa beint og eftir á, svo og til að taka upp, þá hef ég mjög mikla reynslu af honum.
Sú reynsla er að gera mig gráhærða - því sem næst. Ástandið hefur versnað mjög upp á síðkastið. Einnig finnst mér að efnið mætti vera miklu, miklu lengur inni en í hálfan mánuð - a.m.k. fréttir, Kastljós, Vikulokin, Silfur Egils og fleiri þættir á Rás 1.
Rás 1 er eðalútvarpsstöð með frábæru dagskrárgerðarfólki og mjög fróðlegu og skemmtilegu efni.
Lára Hanna Einarsdóttir, 29.8.2008 kl. 14:15
Já, Sigurður. Mér líkar vel við Ólaf að mörgu leyti og finnst hann oft verða fyrir ómaklegum árásum. Hann er samt of mikið fyrir að tala bara til þess að tala og er haldinn sömu firru og margir blaðamenn að sagan sé bara það sem hann man eftir í svipinn.
Og Lára Hann mér finnst að RUV-menn sinni Netinu illa og þurfi að bæta sig mikið þar. Þeim sem fylgjast með afurðum þeirra á Netinu fjölgar stöðugt.
Sæmundur Bjarnason, 29.8.2008 kl. 14:38
En þú ert ekki að hafa rétt eftir forsetanum hérna.
Þröstur Unnar, 29.8.2008 kl. 15:34
Nú. Hvað sagði hann þá?
Sæmundur Bjarnason, 29.8.2008 kl. 16:43
Vissulega er oft vesen á þessari útsendingu. Fann mikið fyrir því þegar ég bjó úti og hafði enga aðra leið til að ná fréttatímanum að heiman. Nú þegar ég er sjónvarpslaus finn ég aftur fyrir því að netið á það til að klikka þegar síst skildi, en líklega er það að hluta til vegna mikils álags og lítillar fjárfestingar í kerfinu sjálfu. Svo er líka oft erfitt að hafa nógu marga og reynda menn á vakt í tæknimálunum.
Það var reyndar verið að gera breytingar á skipulagi vefsins, nýr vefstjóri sem færist undir útvarpið í stað þess að vera einn í einhverju limbóí. Vonandi batnar þetta eitthvað.
Gunnar Hrafn Jónsson 29.8.2008 kl. 18:36
nei Sæmi minn. við skulum ekki missa okkur alveg. seint flokkast félagsvist, lúdó og svartipétur undir íþróttir
brids og skák? líklega ágætis afþreyging fyrir þá sem nenna að spila
Brjánn Guðjónsson, 29.8.2008 kl. 19:50
RÚV 'cappar', (það er slítur reglubundið), útsendíngu sína, til þess að koma í veg fyrir að þeir sem að ekki eru áskrifendur sitji við sama borð & þeir sem að borga þrælnauðugir & óviljugir áskriftargjöldin. Á sama hátt & þeir senda útsendíngu sína um 'gervihnetti' erlendis, ruglað. Skák & Bridge eru almennt þekktari & 'útbreiddari íþróttagreinar' en 'Team Handball'.
Forsetinn hefur vaxið í starfi sem fyrirmenni foldarinnar & frauka hans er fín.
Steingrímur Helgason, 29.8.2008 kl. 21:32
Þarna hefur þú það Sæmundur, í því sem Kanny segir. Forsetinn talaði um liðið frá smáþjóðinni, en ekki mesta íþróttaafrek einstaklings eins og þú gefur til kynna.
Þröstur Unnar, 30.8.2008 kl. 09:41
Í því sem ég vitnaði í að Ólafur Ragnar hefði sagt talaði hann ekki neitt um lið. Það hefur hann samt kannski ætlað að gera. Samt er þetta ekki rétt því í boðhlaupum keppa einnig lið en ekki einstaklingar. Ef skilgreind er ákveðin stærð og gerð liða fer þetta kannski að standast. Þannig er það oft þegar deilt er að viðkomandi skilja ekki hvorn annan og meina allt annað en þeir segja.
Sæmundur Bjarnason, 30.8.2008 kl. 17:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.