3036 - Bóluefni

Að sjálfsögðu hugsa allir mest um bóluefni og Covid-19 um þessar mundir. Sagt er að Canada hafi tryggt sér nægilega mikið af bóluefni til þess að bólusetja alla að minnsta kosti 5 sinnum. Þeir sem mest græða á þessu bóluefni eru lyfjarisarnir. Ríku þjóðirnar munu sjá til þess að þeir sem vilja munu verða bólusettir. Sem betur fer erum við Íslendingar í hópi ríku þjóðanna og munum sigrast á þessum veirufjára. Þriðji heimurinn svokallaði mun áfram berjast við hana og ekki eykur þetta á jafnrétti milli hinna ríku og þeirra snauðu. Að öllum líkindum verða einhver ár þar til þriðji heimurinn mun ná tökum á þessari veiru.

Jólahald verður með breyttu sniði að þessu sinni ef að líkum lætur. Vel getur samt verið að við Íslendingar slökum það mikið á klónni að ein bylgja ennþá af þessum faraldri skelli á okkur. Miðað við marga aðra má samt gera ráð fyrir að við sleppum tiltölulega vel frá þessu öllusaman. Ef vil tekst til mun ríkisstjórnin reyna að eigna sér þann árangur í kosningunum sem væntanlega fara fram í september næstkomandi. Ef ekki þá verður Þórólfi og Co. kennt um. Þeir sem allra mest vilja slaka á í baráttunni eru sennilega mikill minnihlutahópur, samt er vel hugsanlegt að hann fari stækkandi.

Að mínu viti eru það einkum tvær stefnur sem takast á í stjórnmálum. Bæði hér á landi og víða annarsstaðar. Vel má kalla þessar stefnur einangrunarstefnu og opingáttarstefnu. Allra stærstu þjóðirnar hugsa þó fyrst og fremst um eigin hag og völd. Önnur atriði eru aftar í röðinni þar. Á undanförnum árum hefur opingáttar- og samvinnustefnan verið ríkjandi víða um lönd. Einangrunar og föðurlandsástarstefnan hefur þó verið að vinna á. Enginn vafi er á því að þau ríki sem áður og fyrr voru undir oki Sovétríkjanna hneygjast mjög til einangrunarstefnu í þessum skilningi. Engin ástæða er til að líta á andstæðinga að þessu leyti sem einhverja óvini. Allir vilja gera sitt allra besta. Jafnvel stjórnmálaflokkar. Á margan hátt er því ráði beitt að sundra fólki frekar en sameina í stjónmálaerjum af öllu tagi. Samvinna og jafnrétti vinnur þó í heildina á í heiminum með tímanum.

Skrítið er að fylgjast með stjórnmálum í USA. Enginn vafi er á því að Trump hefur leitast við að auka viðsjár milli fólks og flokka, frekar en að sameina. Að þurfa að setja traust sitt á Biden í staðinn er hugsanlega ekki til nokkurra bóta. Fyrirsjáanleiki mun samt eitthvað aukast, en í heildina mun stefna Bandaríkjanna ekki breytast hót.

Kófþreyta er nú mjög farin að gera vart við sig. Ekki mun hún minnka um Jólin og hugsanlega mun hún valda ýmsum vandræðum.

Nú er búið að fresta augna-aðgerðinni á mér og er nú útlit fyrir að ég fái nýjan eða nýja augasteina þann 21. desember og ætti það að vera allt í lagi því mér skilst að fólk sé afar fljótt að jafna sig á þessu.

IMG 0941Einhver mynd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ekki getur undirritaður nú verið sammála þessari fullyrðingu: cool

"Einangrunar og föðurlandsástarstefnan hefur þó verið að vinna á. Enginn vafi er á því að þau ríki sem áður og fyrr voru undir oki Sovétríkjanna hneygjast mjög til einangrunarstefnu í þessum skilningi."

Ellefu Austur-Evrópuríki, sem áður voru kommúnistaríki, eru nú bæði í Evrópusambandinu og NATO. cool

Serbía, Bosnía, Albanía, Svartfjallaland og Norður-Makedónía hafa einnig sótt um aðild að Evrópusambandinu og þrjú síðastnefndu ríkin hafa nú þegar fengið aðild að NATO.

Þar að auki vill Úkraína fá aðild að bæði Evrópusambandinu og NATO.

"All major political parties in Ukraine support full eventual integration into the European Union."

"After February 2014 Yanukovych ouster and following the Russian military intervention in Ukraine (which Russia denies) Ukraine renewed its drive for NATO membership."

9.12.2020 (í dag):

Record Support (85%) for Hungarian European Union Membership

9.12.2020 (í dag):

Foreign Minister of Hungary: Poland and Hungary Not Moving Away from the European Union

"The Commonwealth of Independent States (CIS) is a regional intergovernmental organization of nine post-Soviet republics in Eurasia, Armenia, Azerbaijan, Belarus, Kazakhstan, Kyrgyzstan, Moldova, Russia, Tajikistan and Uzbekistan."

Commonwealth of Independent States (CIS)

Enda þótt Bretland eigi ekki lengur aðild að Evrópusambandinu vilja Skotar og Norður-Írar aðild að sambandinu, Kína er ekki með einangrunarstefnu og Joe Biden vann forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. cool

Þorsteinn Briem, 9.12.2020 kl. 18:40

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Sagði ég að Kína væri með einangrunarstefnu? Varðandi Austur-Evrópuþjóðirnar talar þú lítið um Ungverjaland, Pólland og Tékkland. Sennilega hef ég aðallega verið að hugsa um þær. Við eigum líka mest samskipti við þær. Þar er hægri stefna mjög ráðandi. Annars held ég að við séum mjög sammála um alþjóðamál og jafnvel líka um Trump og Trumpisma.

Sæmundur Bjarnason, 10.12.2020 kl. 09:49

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Það hlýtur að mega nefna hér eitthvað án þess að þú nefnir það sérstaklega, elsku kallinn minn. cool

Ég nefndi hér hins vegar Ungverjaland og að 85% Ungverja vilji áfram aðild að Evrópusambandinu. cool

Hægri stjórn Viktors Orbáns í Ungverjalandi er einnig í miklum samskiptum og viðskiptum við ríki utan Evrópusambandsins, til að mynda Kína, og Kínverjar eiga fjölmörg fyrirtæki, verslanir, banka og íbúðir í Ungverjalandi.

Pólland, Ungverjaland og Tékkland eru í NATO, Evrópusambandinu og Schengen-samstarfinu og eru ekki að hætta í þessu samstarfi, enda þótt þessi ríki séu ekki tilbúin að taka við mörgum flóttamönnum. cool

"
The Visegrád Group (V4) is a cultural and political alliance of four countries of Central Europe (Czech Republic, Hungary, Poland and Slovakia), all of which are members of the European Union and of NATO, to advance co-operation in military, cultural, economic and energy matters with one another and to further their integration to the European Union."

Þar að auki vill ríkisstjórn Viktors Orbáns fjölga ríkjum í Evrópusambandinu. cool

15.5.2020:

"Trade between Hungary and Serbia reached record volume last year, Viktor Orbán [forsætisráðherra Ungverjalands] said, and freight traffic and commuter traffic is currently flowing across the borders, he said.

Orbán pledged support for Serbian investments in Hungary, and said the construction of the Budapest-Belgrade rail line had reached a phase of acceleration.

"It is obvious that delivering Chinese goods quickly to Europe is one of the key issues of the future," he said. cool

Hungary is a committed supporter of the efforts of Serbia to join the European Union, Orbán said, calling on Brussels to open the accession chapters that Serbia is ready to conclude."

Ísland tekur einnig þátt í Schengen-samstarfinu, er eitt af stofnríkjum NATO og enginn stjórnmálaflokkur, sem á sæti á Alþingi, vill segja upp aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu, ekki einu sinni Flokkur fólksins eða Miðflokkurinn. cool

Þorsteinn Briem, 10.12.2020 kl. 11:15

4 Smámynd: FORNLEIFUR

Eruð þið ekki bara hræddir drengir, eins og allir aðrir. Hugsa um heildina, svo um sjálfan sig!

FORNLEIFUR, 10.12.2020 kl. 15:10

5 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Mér datt einmitt í hug að minnast á þig, Villi minn. Við smáfuglarnir getum haft okkar skoðanir á heimsmálunum, en hver tekur mark á því? Á sama hátt og þú tekur oft upp hanskann fyrir Ísraelsmenn virðist Steini hafa mikið dálæti á EU. Á ég kannski að vera einhvers sérstakur Kínverjavinur? Og hvað með Tyrki? Ég bara spyr. Um þetta er endalaust hægt að deila.

Sæmundur Bjarnason, 10.12.2020 kl. 15:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband