21.10.2020 | 06:31
3019 - Borat
Á sínum tíma leit ég ekki á Borat sem gagnrýni á Bandaríkin fyrst og fremst, heldur aðallega sem feikilega vel heppnaða gamanmynd. Minnisstæðust er fáránleg sundskýlan sem hann var sem oftast í og áherslan á nektina. Er alls ekki viss um að ég hafi séð kvikmyndina alla. Borat brandarar tröllriðu öllum fjölmiðlum á þessum tíma. Sennilega hefur þessi Borat-vitleysa öllsömul mótað að einhverju leyti hugmyndir mínar um Kirgistan. Allir fjölmiðlar voru ofurseldir þessu og á vissan hátt má segja að þetta allt saman hafi náð hámarki sínu í raunveruleika sjónvarpinu og þar með í Trump og öllu sem þróast hefur í kringum hann. Í einhverjum skilningi er hann einskonar afsprengi Borat fíflagangsins sem kenna má pressunni um að sumu leyti.
Nú er verið að boða Borat2 og kannski verður það jafnmikið flopp og Segway var á sínum tíma. Fjölmiðlar þreyttust ekki á því að skrifa um þetta tækniundur, en svo gleymdist það eiginlega alveg. Segja má að rafknúnu hlaupahjólin séu afsprengi þeirrar tæknivitleysu.
Að þessi nýja Boratmynd skuli vera frumsýnd einmitt núna er að mörgu leyti skiljanlegt. Gagnrýni heimsins á Trump og þá últra hægristefnu í stjórnmálum sem hann stendur fyrir er á margan hátt eðlileg. Vel er samt hægt að hugsa sér að öll þessi gagnrýni á bandarískt þjóðlíf komi Trump til góða á einhvern hátt. Áhuginn á komandi forsetakosninum í Bandaríkjunum (3. nóvember) er að minnsta kosti geysimikill um allan heim.
Man vel eftir því, þó það komi ekki þessu beinlínis við, að á sínum tíma (1959) var ég að hefja nám í Samvinnuskólanum að Bifröst og var í einhverri nefnd sem ákvað að sýna á skemmtíkvöldi (laugardagskvöldi) kvikmynd um kappræður þeirra Nixons og Kennedys. Þá kvikmynd man ég að við fengum hjá einhverri upplýsinga og áróðursskrifstofu sem bandaríkjamenn ráku þá í Reykjavík. Nú eru þessar kappræður álitnar sögulegar í meira lagi.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Í Bandaríkjum Borat var,
bjánum alltaf hrósa,
Óli Björn og Brynjar þar,
bjálfann Trump þeir kjósa.
Þorsteinn Briem, 21.10.2020 kl. 11:50
"Borat: Cultural Learnings of America for Make Benefit Glorious Nation of Kazakhstan".
Sem sagt ekki Kirgistan, sem einnig er ríki í Mið-Asíu.
"Almennt er að telja Úsbekistan, Túrkmenistan, Tadsjikistan, Kirgistan og Kasakstan til Mið-Asíu.
Þetta er sú skilgreining sem notuð var af leiðtogum þessara ríkja skömmu eftir að þau fengu sjálfstæði frá Sovétríkjunum."
Þorsteinn Briem, 21.10.2020 kl. 12:00
Steini minn,
ég hef engu við þetta að bæta.
Sæmundur Bjarnason, 21.10.2020 kl. 14:20
21.10.2020 (í dag):
"Erfitt er að spá fyrir um niðurstöðuna í á öðrum tug ríkja en þótt Trump hafi betur í öllum sveifluríkjunum, þar sem munurinn á milli frambjóðendanna er minnstur og þeim sem talin eru líkleg til að falla hans megin núna, dugir það ekki til sigurs.
Trump fengi þá 248 kjörmenn af þeim 270 sem hann þarf til að halda embætti."
Tvær vikur til stefnu og forskot Bidens aldrei meira
Þorsteinn Briem, 21.10.2020 kl. 15:17
Er ekki Kirgistan í Pennsylvaníu?
Þorsteinn Siglaugsson, 21.10.2020 kl. 17:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.