2862 - Cultural imperialism

„Menningarleg heimsvaldastefna“ (cultural imperialism) kallast það á ensku. Nú er hægrimanninum „skríta og skemmtilega“ Boris Johnson aðallega legið það á hálsi að ætlast til þess að allir sem á Englandi búa tali ensku sem sitt fyrsta og mikilvægasta mál. Þetta minnir mann óþægilega á þá hægrimenn og einangrunarsinna hér á landi sem ætlast til þess að allir sem hingað koma tali lýtalausa íslensku. Jafnvel systir Borisar gerir grín að honum fyrir þetta með því að segja að heima fyrir tali þau að sjálfsögðu forngrísku.

Tungumál eru á margan hátt „mál málanna“ hér á ísa köldu landi. Sú árátta einangrunarsinna að eigna sér sem allra mest allt „þjóðlegt og sérkennilegt“ er beinlínis hlægileg í þessu ljósi. Þjóðerniskennd má ekki vera fólgin í því að gera allt sem alþjóðlegan eða annarlegan blæ ber útlægt í samfélaginu. Slík neikvæðni er hættulegri en virðist vera í fljótu bragði. Nú á tímum er hið alþjóðlega, auk þess að auka skilning þjóða á milli, ekki síður oft merkilegt, en hið þjóðlega og hallærislega. 

Stundum er það sem ég skrifa fremst í bloggin mín það merkilegasta og það sem mesta hugsunin liggur á bakvið. Oft er það sem á eftir kemur meira og minna til uppfyllingar. Svo er þó ekki alltaf. Þessar hugleiðingar mínar um tungumál spruttu mjög skyndilega upp, en eru ekkert verri fyrir það. Kannski finnst mér þær vera svo sannar og góðar að ég flýti mér að ná sæmilegri lengd á bloggið. Sjáum til.

Þessar tvær málsgreinar sem ég skrifaði um Boris Johnson og tungumál þótti mér nógu merkilegar til þess að setja þær líka á fésbókina. Þetta segi ég m.a. til þess að þeir sem séð hafa þær þar finnst að sjálfsögðu að þeir kannist við þessi skrif. Auk þess er fésbókin, hvort sem manni líka betur eða verr, sá staður sem flestir eru tengdir.

Af hverju finnst mér að þessar fyrrnefndu hugleiðingar mínar þurfi á fleiri lesendum að halda en annað sem ég skrifa? Veit það eiginlega ekki, en kannski finnst mér að ég hafi komist svo vel að orði að fleiri þurfi að sjá snilldina.

Fór í gær í giftingarveislu með Atla frænda. Samtals vorum við fjögur í bílnum. Áslaug að sjálfsögðu og Sigrún systir að auki. Fórum þegar veislunni var að ljúka. Dansinn og drykkjan þó eftir. Atli vildi fara sem fyrst og það hentaði okkur „gamalmennunum“ ágætlega. Giftingin sjálf fór fram í Hrunakirkju og að sjálfsögðu minnti það mig á þjóðsöguna um „Dansinn í Hruna“. Á eftir var veisla í félagsheimilinu á Flúðum. Nú veit ég semsagt að Hrunakirkja er rétt hjá Flúðum. Það var Kristín systir Atla sem var að gifta sig og svei mér ef hún ljómaði bara ekki bókstaflega. „Af hverju fá sumir að gifta sig tvisvar, en aðrir bara einu sinni eða jafnvel aldrei?“ sagði einhver af þeim fjölmörgu ræðumönnum sem tóku til máls í veislunni.

Þegar við komun heim á Akranes voru írsku dagarnir í algleymingi og mér finnst Akranes þá vera alþjóðlegri en oftast nær. Sumir mundu kannski segja „túristalegri“ en það orð finnst mér hafa neikvæða merkingu. Í öllu falli ómaði bærinn af drykkjulátum.

IMG 6843Einhver mynd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Á einu vettvangi er búið að ..." skrifar sálfræðingurinn Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins (Fokks fólsins), á bloggi sínu í dag.

Og ekki er íslenskan betri hjá mörgum öðrum mörlenskum háskólagengnum hægrimönnum, sem þykjast vera sannir Íslendingar og kvarta undan íslenskukunnáttu nýbúanna hér á Íslandi.

Sálarlausir sálfræðingar og heimskir heimspekingar. cool

Þorsteinn Briem, 7.7.2019 kl. 19:36

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Sæll, Sæmi.

Við hvaða "hægrimenn og einangrunarsinna hér á landi" áttu við, "sem ætlast til þess að allir sem hingað koma tali lýtalausa íslensku"???

Það væri ágætt að þú nafngreindir þá, a.m.k. þá þekktustu!

Með góðri kveðju,

Jón Valur Jensson, 8.7.2019 kl. 00:16

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

PS. Hér var forsetningin "við" tvítekin aulalega í 1. setningu!

Jón Valur Jensson, 8.7.2019 kl. 00:20

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ekki er nú reikningurinn betri en íslenskukunnáttan hjá þessu liði. cool

Þannig segir búfræðingurinn (fræbúðingurinn) og þingmaður Sjálfstæðisflokksins Haraldur Benediktsson í Mogganum í dag:

"Dreifbýlisnotandi rafmagns hjá Rarik hefur séð reikning vegna flutnings á rafmagni frá árinu 2005-2018 hækka um 108% meðan almennt verðlag hækkaði um 45%."

Almennt verðlag hér á Íslandi hækkaði frá ársbyrjun 2005 til ársloka 2018 um 94% en ekki 45%. cool

Samkvæmt Hagstofu Íslands var vísitala neysluverðs 239,2 í janúar 2005 en 463,9 í desember 2018.

Mismunurinn er 224,7 sem deilt með 239,2 er 0,94 og verðbólgan því 94% á þessu tímabili.

Þorsteinn Briem, 8.7.2019 kl. 12:28

5 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Alltaf ert þú kominn, Jón minn Valur, ef minnst er á hægrimenn, einangrunarsinna eða öfgamenn. Ekki getur víst hugsast þú sért einn af þeim. Hefurðu ekkert betra við tímann að gera en að lesa blogg vinstri manna sem ekki eru nákvæmlega sömu skoðunnar og þú? Ekki virðast þau vera svo fá bloggin sem þú skrifar. Lestu kannski jafnmörg eða jafnvel fleiri? Annars þarf ég ekkert að sinna áskorunum þínum og geri sennilega ekki.

Sæmundur Bjarnason, 11.7.2019 kl. 04:39

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Nei, Sæmi. Þú ætlar EKKI að svara minni einföldu spurningu, hafðir til þess nokkra daga, en gazt það ekki. Hvorki er ég einangrunarsinni né öfgamaður, en leikur samt forvitni á að vita svarið við spurningunni:

Hvaða "hægrimenn og einangrunarsinna hér á landi" áttu við, "sem ætlast til þess að allir sem hingað koma tali lýtalausa íslensku"???

Það væri ágætt að þú nafngreindir þá, a.m.k. þá þekktustu!

Jón Valur Jensson, 11.7.2019 kl. 14:01

7 Smámynd: FORNLEIFUR

Að hugsa sér að kalla íslendinga öfgamenn. Hefir kaffið farið í "den gale hals" áykkur. Eða er þetta blöðruhálskirtillin sem er farinn að stækkar?

Þessi leiði síður að kalla pólitíska andstæðinga sína öfgamenn er of mikið notaður af þeim sem halda að þeir hafi sérleyfi á réttar skoðanir og hreinar á vinstri vængnum. Ef slík stóryrði eru einu "rökin" sem menn hafa fram að færa, eru þeir ráðþrota og rökvilltir.

Maður, sem hefur skrifað 2863 blogg á bloggsíðu, sem fjölmiðill "öfgamanna" stjórna, hlýtur að vera berserkur. Ertu nokkuð af sænskum ættum Sæmundur?

FORNLEIFUR, 15.7.2019 kl. 07:47

8 Smámynd: FORNLEIFUR

stækka ætlaði ég að skrifa.

FORNLEIFUR, 15.7.2019 kl. 07:49

9 Smámynd: FORNLEIFUR

Reyndar hefur það verið svo, Sæmundur, að málfasisminn á Íslandi hefur ekki verið stjórnað af hægrimönnum. Elítan, sem líkti íslenska málinu við ljóshærða stúlku sem talar norðlensku í auglýsingum fyrir hreina mjólk hér um árið, er öll viðriðin vinstri stefnu. Svokallaðar öfgar koma nefnilega úr öllum áttum á Íslandi. Þegar 10% íbúa í landi eru kaþólskir útlendingar sem ekki tala íslensku eins vel og zettlega og Jón Valur og maður getur á FB sumra þeirra lesið það sem næst kemst öfgum útlandsins, er kannski betra að staldra við og íhuga málið og málin.

FORNLEIFUR, 15.7.2019 kl. 07:55

10 Smámynd: Jón Valur Jensson

Fyndið þetta hjá þér, doktor, um 2863 bloggin og berserkinn sem er kannski af sænskum ættum!

Jón Valur Jensson, 15.7.2019 kl. 13:32

11 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Kallarðu þessa þvælu sem þú skrifar hérna fyrir ofan röksemdir, Villi minn.

Þú getur alveg gert betur.

Sæmundur Bjarnason, 15.7.2019 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband