2057 - Höfundarréttur

Um það var talað á sínum tíma að gera Ísland að fjármálahöfuðborg heimsins. Með öðrum orðum að skattaskjóli. Þar er samkeppnin afar hörð og hefur verið það lengi. Tök banka, alþjóðlegra stórfyrirtækja og forréttindastétta allskonar á ríkisstjórnum eru eitthvað að bila. Þó er engin ástæða til að halda að almenningur nái að brjóta af sér hlekkina. Hið vestræna skipulag er komið til að vera og engin leið að kasta því fyrir róða án þess að eitthvað komi í staðinn.

Get ekki að því gert að mér finnst „norðurslóðar“ og „olíusöngurinn“ vera af svipuðum meiði og skattaparadísin var áður. Held að draumurinn um hana hafi horfið með Hruninu. En ég er bara svo gamall, tortrygginn og gagnrýninn á allt og alla að ég sé skrattann og ára hans skellihlæjandi í hverju horni.

Það er sennilega alltof mikið skrifað á fésbókina. Ég er þó ekki með nema rúmlega 500 fésbókarvini, en skelfing hljóta innleggin að skruna hratt hjá þeim sem eru með 5000. Skilst að það sé hámarkið. Ég fæ orðið fleiri athugasemdir við fésbókarauglýsinguna mína (sem ég gleymi þó stundum) en við bloggið sjálft. Æ, hættu nú þessu fésbókar- og bloggtuði veit ég að þig langar að segja. Og ég er meira að segja að hugsa um að verða við því.

En hvað á ég þá að skrifa um? Ég sem hef sérhæft mig í að blogga um blogg. Stjórnmálablogg eru vinsæl, segirðu. Já, ég get náttúrulega reynt að spá einhverju um væntanlegt stjórnmálaástand. Og svo eru fréttabloggin mjög góð. Þau hafa þann kost hér á Moggablogginu að auðvelt er að linka í fréttirnar. Kannski fá menn þá fleiri lesendur en þeir mundu annars fá. Muna það. Einu sinni linkaði ég heil ósköp, en er alveg hættur að nenna því.

Jú, ég get svosem bloggað um höfundarréttarmál. Af hverju skyldi fólk ímynda sér að bara vegna þess að „eigendur flutningsréttar“ fá ótakmarkað rými í ríkisfjölmiðlunum, þá hljóti allt að vera háheilagur sannleikur og best fyrir alla, sem þeir hafa að segja. Ég trúi bara ekki Baltasar Kormáki og Páli Óskari því þeir eiga mikilla hagsmuna að gæta í þessum málum. Nennti ekki einu sinni að horfa á Kastljósið í gærkvöldi. Get vel ímyndað mér hver boðskapur þeirra hefur verið.

Allir með strætó, allir með strætó
enginn með Steindóri
því hann er soddan svindlari.

Var einu sinni sungið. Nú ætti líklega að syngja: Allir með Smáís, allir með Smáís.....

Flugvallarmálið hefur verið blásið mikið upp að undanförnu. Aðallega held ég að það byggist á vel heppnaðri undirskriftasöfnun. Rökin eru mjög vafasöm. Held að þetta mál verði dautt og grafið þegar kemur að borgarstjórnarkosningunum næsta vor. Tímasetningin hafi semsagt verið vitlaus þó allt annað hafi heppnast vel. Kannski var bara verið að stíla inn á prókjör sjálfstæðismanna. Ég er bara ekki nógu hagvanur þar til að sjá hverjum þetta kemur til góða. Gísli Marteinn fældist þó allavega.

IMG 4179Tjaldur á steini.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Ég held það sé nokkuð ljóst að það eru dreifingarfyrirtækin sem stela mestu af höfundum og svo náttúrulega ríkið. En höfundum virðist sama um það.  Ég væri sko tilbúinn að þorga rithöfundi beint fyrir afnot af rafbók en að borga Forlaginu hátt í 3 þúsund krónur fyrir sömu bók mun ég aldrei gera.  Þess vegna kaupi ég bara bækur á bókamörkuðum þegar verðið er orðið ásættanlegt. En auðvitað tapa höfundarnir mestu á þessu okri sem viðgengst, hvort sem um er að ræða bækur eða tónlist eða kvikmyndir. Það er hægt að gera þetta öðruvísi en fyrst þarf að breyta viðskiptamódelinu.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 16.10.2013 kl. 01:39

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Er sammála þér um þetta Jóhannes, að öðru leyti en þvi að hægt væri að nota ríkið (samfélagið) betur til að leiðrétta helstu vitleysurnar í þessu öllu.

Sæmundur Bjarnason, 16.10.2013 kl. 09:42

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Takk fyrir góðan pistil. Ef ég skil hann rétt, þá merkir hann „allt er hégómi.“

Auðvitað getum við hrist af okkur hlekkina. Rétt eins og fíll getur hrist af sér sína hlekki, og hestur slitið tauminn, en þeir vöndust þeim í æsku.

Sjálfur er ég sannfærður um að þjóðin muni afdáleiðast og endurskapa lýðræði í anda síns forna Þjóðveldis.

Guðjón E. Hreinberg, 16.10.2013 kl. 09:56

4 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Guðjón, vandinn við þjóðveldið var að þar var ekkert framkvæmdavald. Dómum þurftu menn sjálfir að fullnægja. Væri það ekki að færa handrukkurum allt vald, ef það væri tekið upp aftur?

Sæmundur Bjarnason, 16.10.2013 kl. 11:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband