20.9.2013 | 03:52
2048 - Að stefna saksóknara
Eitthvað félag, sem Óli Gneisti segir að Nýherji eigi, hefur stefnt embætti sérstaks saksóknara fyrir meint brot á höfundarlögum. Þetta er mjög sérstakt mál. Jafnvel sérstakara en sérstakur sjálfur og er tilkomið vegna skoðunar Seðlabankans á Samherja á Akureyri. Er einhver yfirsaksóknari yfir sérstökum saksóknara? Þýðir eitthvað fyrir menn að kæra verknað sem saksókari á að hafa yfir að segja fyrir saksóknara? Ég bara spyr. Er lagatæknin að taka hér völdin? Snýst allt um lögfræðiálit? Þau virðast geta gengið í hvaða átt sem er. Fer það kannski eftir því hvað þeim er borgað mikið?
Er svarið að hætta að versla við Nýherja, eins og Óli Gneisti stingur uppá? Mig minnir að það séu Píratar sem vilja endurskoða höfundarlögin og gera þau skiljanlegri og skynsamlegri. Ef höfundalögin eru orðin svo rammflækt og illskiljanleg að jafnvel sérstakur með allar sínar sérþarfir getur brotið þau óvart með séstökum hætti, er þá ekki eitthvað að? Er það kannski Seðlabankinn sem er sekur? Ég bara skil þetta ekki.
Í Kjarnanum sem kom út í dag segir að hagræðing heimilanna sé einn allsherjar misskilningur. Jafnvel rangur misskilningur. Reyndar hef ég aldrei getað skilið almennilega hvaða sanngirni er fólgin í því að umbuna bara þeim sem hafa orðið útundan í leiðréttingum á verðtryggingu húsnæðislána og ekki þurft á slíkri leiðréttingu að halda. Mest hlýtur það auðvitað að vera vegna þess að skilningur minn er ekki á sama plani og annarra. Sú ríkisstjórn sem var á undan þeirri núverandi fékk mikla gagnrýni fyrir það að sinna lítt skálkaskjóli skuldara, og með vissum hætti má segja að sú núverandi hafi komist að útá það. Annars er auðvelt að týna sjálfum sér í speglasjónum um peninga. Eru þeir bara ekki einfaldlega undirrót alls ills.
Sagt er að Spánverjinn Fernardo Alonso og Finninn Kimi Raikkonen muni keyra fyrir Ferrari á næsta ári. Man að ég byrjaði að fylgjast með formúlunni um það leyti sem Schumacher fór að keyra fyrir Ferrari og hætti því um líkt leyti og hann hætti að keyra fyrir þá. Sögulega séð er Ferrari langmerkasta liðið í Formúlu eitt. Þar að auki er Ferrari-rautt minn uppáhaldslitur. Kannski ég fari bara að fylgjast með formúlunni aftur. Nei, annars ég er orðinn afhuga öllum íþróttum. Samt get ég ekki að því gert að mér finnst margar íþróttir mun skemmtilegri en fótboltinn.
Eiginlega er það alveg blöskranlegt hvað veröldin er stór. Nú, eða lítil ef þannig er hugsað. Jónatan Swift (ferðir Gullivers) sagði að ekkert væri lítið og ekkert stórt án samanburðar við annað. Heimsi greyið er óttalega lítill ef miðað er við alheiminn. En er alheimurinn þá ekki stór? Hugsanlega eru til margir alheimar og þá er eitt stykki kannski frekar lítið. Nei, þetta er utan og ofan við minn skilning, eins og svo margt annað.
Nú er kyrrðin og rósemdin öllu ofar. Náttúran dauðþreytt eftir hamaganginn undanfarna daga. Bílarnir farnir að sofa. Klukkan að verða fjögur. Tunglið hátt á skafheiðríkum himni. Samt sjást engar stjörnur. Hvert eru þær farnar? Já, af hverju er himininn blár? Er hann kannski svartur?
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tenglar
Blogg
- Áslaug Benediktsdóttir
- Harpa Hreinsdóttir
- Atli Harðarson
- Anna K. Kristjánsdóttir
- Erlingur Brynjólfsson
- Nanna Rögnvaldardóttir
- Þórunn Sigurjónsdóttir
- Susan Polgar
Skák
Ýmislegt
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Anna Einarsdóttir
- Umsjónarmenn blog.is
- Egill Jóhannsson
- Róslín A. Valdemarsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Arnþór Helgason
- Birgitta Jónsdóttir
- Lýður Pálsson
- Einar Sveinbjörnsson
- Gylfi Guðmundsson
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Þór Guðjónsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Egill Bjarnason
- Jóhann Björnsson
- Ólafur fannberg
- TómasHa
- Ágúst H Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Ragnheiður
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Magnús Helgi Björgvinsson
- Kári Harðarson
- Eiríkur Mörk Valsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ridar T. Falls
- Konráð Ragnarsson
- Vefritid
- Svanur Sigurbjörnsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Pawel Bartoszek
- Haukur Nikulásson
- Bjarni Harðarson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Ómar Ragnarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- AK-72
- Sigurður Ingi Kjartansson
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Þórarinn Þ Gíslason
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Púkinn
- Lady Elín
- Kolbrún Baldursdóttir
- Jens Guð
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Bjarnason
- Ár & síð
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Benedikt Henry Segura
- Marinó G. Njálsson
- Theódór Norðkvist
- Jón Ingvar Jónsson
- Gunnar Þórðarson
- Ólafur Fr Mixa
- Gíslína Erlendsdóttir
- Jóna Á. Gísladóttir
- Heimir Tómasson
- Guðmundur Pálsson
- Ólafur Ragnarsson
- gudni.is
- Guðbjörn Guðbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- G. Valdimar Valdemarsson
- Sigmar Þór Sveinbjörnsson
- Gestur Gunnarsson
- Óskar Þorkelsson
- Ylfa Mist Helgadóttir
- Kristinn Theódórsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Lýður Árnason
- Brattur
- Marta B Helgadóttir
- Hallmundur Kristinsson
- Sigurður Hreiðar
- Eyþór Árnason
- Bergur Thorberg
- kloi
- Hjalti Tómasson
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Máni Ragnar Svansson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Torfi Kristján Stefánsson
- Haukur Baukur
- Sverrir Stormsker
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Helga Kristjánsdóttir
- Loopman
- Einar B Bragason
- Erna Bjarnadóttir
- Ólafur "Tröllabarn" Georgsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Gísli Tryggvason
- Helgi Guðmundsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Þráinn Jökull Elísson
- Þorsteinn Briem
- Hjálmtýr V Heiðdal
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Sæmundur Bjarnason
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Bjarni Rúnar Einarsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Bókakaffið á Selfossi
- Guðni Karl Harðarson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Hlynur Þór Magnússon
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Marteinn Unnar Heiðarsson
- Einar G. Harðarson
- Bloggrýnirinn
- kreppukallinn
- Jack Daniel's
- Guðjón Baldursson
- Már Wolfgang Mixa
- Dóra litla
- hilmar jónsson
- Hörður B Hjartarson
- Kristín Bjarnadóttir
- Arnþrúður Karlsdóttir
- Baldur Hermannsson
- Eygló
- Finnur Bárðarson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Loftslag.is
- Jón Daníelsson
- Elín Helga Egilsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Leikhópurinn Lotta
- Dúa
- Hulda Haraldsdóttir
- Kama Sutra
- Bjarni Kristjánsson
- Kristinn Theódórsson
- Blogblaster
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Andspilling
- Valmundur Valmundsson
- Dingli
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Sigurður Einarsson
- Mathieu Grettir Skúlason
- Árni Matthíasson
- BookIceland
- FORNLEIFUR
- Guðbjörn Jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Ingólfur Sigurðsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Siglaugsson
Athugasemdir
Sæll Sæmundur.
Fyrir allnokkru varstu að velta fyrir þér kvæðinu
Lorelei. Ætlaði að senda þér þá þessar fáu línur
en varð síðan ekki af.
Datt í hug að þú hefðir samt gaman af að líta á
þetta þó svo að efni sé í engu samræmi við
pistil hér að ofan. Bið þig að afsaka það
og auðvitað hægastur vandinn að henda þessu út
ef þér fellur það ekki.
og þýðingu Steingríms Thorsteinssonar
á kvæði þessu.
á Lórelei e. Heinrich Heine birtist í ljóðasafninu Svanhvíti 1877.
og Steingrím Thorsteinsson)
Ég veit ekki af hvers konar völdum
svo viknandi dapur ég er,
Ég veit ei af hverskyns völdum
mér virðist svo kynlegt hér,
Hannes Hafstein
Ég hvorki skil það né skýri,
hví skeikar gleðin mér,
Magnús Ásgeirsson
Eg veit ei, hvað má því valda,
að verður svo þung mín lund.
Þórir Bergsson (Þorsteinn Jónsson)
Hvað veldur, - eg veit það eigi
mér vorið finnst sem haust.
Gísli Brynjólfsson
Ég veit ei hvað því veldur
að vakna raunir mér,
Karl Ísfeld
Ég veit ei, hvað slíku má valda,
að vekur angur mér
Steingrímur Thorsteinsson
Ég veit ekki af hvers konar völdum
svo viknandi dapur ég er,
Ich weiß nicht, was soll es bedeuten,
Daß ich so traurig bin,
Ein Märchen aus uralten Zeiten,
Das kommt mir nicht aus dem Sinn.
Die Luft ist kühl und es dunkelt,
Und ruhig fließt der Rhein;
Der Gipfel des Berges funkelt,
Im Abendsonnenschein."
Húsari. 24.9.2013 kl. 21:15
Er ekki heima. Var fyrst ad sja thetta nuna. Svara betur seinna.
Sæmundur Bjarnason, 29.9.2013 kl. 09:38
Ich weiß nicht, was soll es bedeuten,
Daß ich so traurig bin,
Ein Märchen aus uralten Zeiten,
Das kommt mir nicht aus dem Sinn.
Die Luft ist kühl und es dunkelt,
Und ruhig fließt der Rhein;
Der Gipfel des Berges funkelt,
Im Abendsonnenschein."
Man ekki með vissu hversvegna ég var að velta Lorelei fyrir mér. Sennilega hefur það verið vegna þess að fyrri hluti þess kvæðis sem þú tilgreinir er eitt af því fáa sem ég kann í þýsku. Einnig kunni ég eitt sinn næstum orðréttan fyrsta kaflann í þýskunámsbók Boga Ólafssonar "Das Mittagessen des Englanders"
Man eftir að hafa eitt sinn verið tekinn upp í þýsku hjá Herði Haraldssyni á Bifröst og gatað hroðalega. Árið áður hafi kaflanum nefnilega verið sleppt og ekkert úr honum í glósunum sem ég hafði keypt.
Kannski hef ég í umfjöllun minni um Lorelei eftir Heine verið að vekja athygli á hve hlutverk þýðanda er oft vanmetið (var nefnilega eitt sinn sjónvarpsþýðandi sjálfur - þó ekki úr þýsku.)
Annars er ég einmitt nýkominn heim úr eftirminnilegri ferð um Austurríki, Þýskaland og Norður-Ítalíu og er að undirbúa mitt næsta blogg.
Takk fyrir þetta innlegg.
Sæmundur Bjarnason, 2.10.2013 kl. 08:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.