26.12.2011 | 08:32
1569 - Eldkyndillinn, framhald
Gamla myndin.
Bjarni Þór Ólafsson. Rámar í að hafa beðið Bjarna um að hafa skeiðina í vinstri hendi svo betra væri að taka myndina.
Jú, mér tókst að kveikja á henni. En nú ætla ég að halda mönnum í talsverðri spennu og ekki segja frá því strax hvernig mér gekk að slökkva á henni aftur og hlaða batteríið og þess háttar. Auðvitað er allt slíkt algjört grundvallaratriði þegar um spjaldtölvu af þessari gerð er að ræða.
Já, hún er svört, tæpur sentimetri á þykkt giska ég á og á stærð við ofvaxna ljósmynd sem kölluð er 10x15. Satt að segja er hún u.þ.b. sentimetri á þykkt stærðin er 12x19 sentimetrar og ég held að hún sé uppundir hálft kíló að þyngd.
En nú segi ég ekki meira um hana nema mér verði mútað til þess. Sjáumst í næsta bloggi.
Konan mín er búin að starfa að því óslitið frá fyrstu snjóum að lokka til sín fugla himinsins með allskyns matargjöfum og eplaskrælingi en þeir láta ekki blekkjast. Stöku sinnum sjást þeir þó hoppa grein af grein i garðinum og kallar það á mikinn æsing. Skyldu þeir nú láta fallerast og taka til matar síns? Nei, er þá ekki köttur nágrannans kominn á kreik líka og því sjálfhætt við allar matmálstilraunir.
Lægi líf mitt við og ég ætti að búa til lista yfir alla þá staði þar sem ég hef átt heima þá yrði hann víst einhvernvegin svona:
Bláfell.
Breiðamörk eitthvað (hjá Steinu og Tedda.).
Heiðmörk hjá Sigmundi og Kristínu.
Frumskógar 1.
Hveramörk 6.
Bifröst í Borgarfirði herbergi 219.
Bifröst í Borgarfirði herbergi 205.
Breiðamörk 25 Hveragerði.
Smáratún 9 Selfossi.
Hjarðarhagi 54 Reykjvík.
Lynghagi 17 Reykjavík.
Hávallagata 44 Reykjavík.
Vegamót Snæfellsnesi.
Valbjarnarvelli í Borgarhrepp.
Helgugata 8 Borgarnesi.
Þorsteinsgata 15 Borgarnesi.
Hrafnaklettur 6 Borgarnesi.
Þórufell 8 Reykjavík.
Borgarhraun 2 Hveragerði.
Álftamýri 12 Reykjavík.
Tungusel 9 Reykjavík.
Vífilsgata 22 Reykjavík.
Auðbrekka 29 Kópavogi.
Af gefnu tilefni tek ég fram að ekki er öruggt að þessi listi sé í réttri tímaröð. Fyrir því er þó engin sérstök ástæða.
Þennan langa lista fann ég í skjali á tölvunni minni. Bjó hann semsagt ekki til núna. Athyglisvert er hve dvöl mín á hverjum stað lengist sífellt. Þetta endar sennilega með ósköpum.
Jú, ég held að ég sé að ná mér af ritstíflunni. Einhversstaðar endar þetta þó alltsaman. Í síðasta lagi hætti ég að skrifa þegar ég drepst. Þetta var mikil speki. Jafnvel spekileki.
Heimskautanóttin er löng. Hún er öllum erfið. Þó hefur lífið sigrað hana. Svarið felst í dvalanum. Allt, eða næstum því allt, stöðvast. Dvalinn er næsti bær við dauðann og hefur jafnmarga bókstafi. A.m.k. á íslensku. Þessvegna er íslenskan fullkomnari öðrum tungumálum. Heimskautanóttin er innbyggð í hana. Tölum svo ekki meira um heimskautadauðann fyrr en við vöknum. Einbeitum okkur að því að þreyja Þorrann og Góuna.
Já, það er kalt, en ekki svo kalt að ekki sé hægt að viðhalda blóðhitanum ef réttum aðferðum er beitt. Kætumst meðan hægt er. Étum okkar jólamat, förum jafnvel á jólafyllirí, en gætum okkar umfram allt á heimskautanóttinni. Hún liggur í leyni og reynir að yfirbuga okkur. Sjaldan tekst henni það því við erum svo snjöll. Samansöfnuð vineskja kynslóðanna hjálpar okkur. Við bætum meira að segja við hana. Jafnvel án þess að vita það. Bíðum bara eftir vorinu og reynum að gera eitthvað skemmtilegt á meðan. Nú er sagt að sólin sé tekin að hækka aftur á himninum. Hægt gengur það, en hefst þó áreiðanlega.
Veðurstofa Íslands. Kofinn í forgrunninum er ansi veðurlegur.
Athugasemdir
Gaman að þessari upptalningu þinni. Gerði sjálfur svipað fyrir fáeinum árum nema ég fór og tók myndir af viðkomandi húsum, þeim sem enn eru til.
Ég sé að í Bifröst hefur þú fyrst verið einu númeri lægri en ég en síðan einu hærri. Ég reyndi fyrir fáum árum að skipa bekkjarfélögum mínum öllum í herbergi og held raunar að það hafi tekist þó ótrúlega margir hafi ekki munað herbergisnúmerin/heitin sín. Svolítið fyndið að einn bekkjarfélaginn mundi hvar í röðinni, talið innan frá, herbergið hans var fyrri veturinn, en ekki númer hvað það var. Svo hann hringdi upp í Bifröst og lét gá að númerunum fyrir sig og tilkynnti númer samkvæmt þeirri útkomu. Gallinn er bara sá að þegar við vorum á skólanum var hæsta númerið, 222 fremsta númer til vinstri en svo lækkaði talan inn eftir ganginum, en nú er búið að snúa dæminu við, lægsta númer (sem ég veit ekki hver er -- 214 kannski?) er fremst til vinstri en síðan hækkar talan inn eftir ganginum.
Sigurður Hreiðar, 26.12.2011 kl. 12:59
Gleðilega hátíð Sæmundur
Gaman að þessu með fuglana. Sumir halda að það sé nóg að henda út korni eða brauði en svo er nú aldeilis ekki. Fuglar láta ekki fallerast af gylliboðum eins og mannfólkið (kvenfólkið) Það tók mig 2 ár að læra á þrestina hér í mínum garði en nú ríkir gagnkvæmur skilningur held ég. Í fyrsta lagi þarf að velja góðan stað þar sem þeir sjá til ferða óvinanna og geta forðað sér. Í öðru lagi þarf að byrja á að gefa þeim eitthvað sem þeim þykir gott og í þriðja lagi þarf að gefa þeim á réttum tíma. Ég hef þurft að taka inn frosið brauð og þýða það í örbylgjunni fyrir þá. Og hafa ber í huga að þrestir eru mjög heimaríkir. þeir virðast helga sér svæði þar sem þeir reka minni og veikari fugla í burtu. Svo lærdómurinn af því er að gefa þeim ekki of mikið á sama stað. Dreifa frekar matnum á fleiri staði. Samkvæmt minni reynslu þá finnst skógarþröstum best að fá flot og allskonar eldaða fitu (t.d fitu af svínasteik) og þar á eftir finnst þeim gott að fá brauð með sultu. En ekki hvaða sultu sem er. Það verður að vera heimalöguð rabarbara og döðlusulta. Rifsberjasultan gengur þó út ef ekkert annað er í boði
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 26.12.2011 kl. 14:22
Takk. Ekki ónýtt að fá þessar upplýsingar um matarvenjur þrastanna. Hef tekið eftir því að þeir eru heimaríkir. Flýja þó ef starrarnir koma. Þeir eru líka oftast í hóp. Misfrekir þó. Lærdómsríkt að stúdera fuglana. Maður fer jafnvel að þekkja þá í sundur.
Sæmundur Bjarnason, 26.12.2011 kl. 14:31
Sæmundur. Þú hefur flutt oftar en amma! Pabbi varð örþreyttur á að flytja gömlu konuna, áður en hann gifti sig. Hann bjó bara á 2 stöðum, frá 1942 til 1987. Alveg dauð uppgefinn.
Ólafur Sveinsson 26.12.2011 kl. 14:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.