1568 - Kindle fire

Scan86 (2)Gamla myndin.
Anna Einarsdóttir og Þorgeir bróðir hennar ásamt bræðrunum Bjarna og Benna.

Ekki veit ég af hverju þessi rasti kom í bloggið hjá mér um daginn. (Eða þaráður) Eiginlega er ég kominn með hálfgerða blogg-ritstíflu og þessvegna var það sem ég þóttist leysa málið með því að setja hingað gamalt blogg. Samt er ég búinn að fá nýtt leikfang, sem er Kindle fire tölva með snertiskjá, lit, vefaðgang o.s.frv. Kannski ritstíflan stafi bara af því. Ég er eiginlega búinn að bíða eftir henni lengi og kannski er hún komin núna (þ.e. stíflan, ekki spjaldtölvan)

Kannski er þetta bara tiltölulega meinlaus jólaritstífla sem rjátlast af mér með jólasteikinni. Ég veit svosem ekki af hverju þetta stafar því venjulega hef ég svo gaman af að skrifa að ég á erfitt með að hætta.

Mér er sagt að þetta séu spjaldtölvujólin miklu. Þessvegna fjárfesti ég í Kindle fire einsog áður er getið. Hún kostaði 199 dollara og ef einhverjir eru tilbúnir til að borga á annað hundrað þúsund fyrir þá er eflaust hægt að finna einhverja sem þiggja það.

Ætli það verði ekki næst á dagskrá hjá mér að birta dóm um þetta fyrirbæri. Þ.e.a.s. ef mér tekst að kveikja á henni.

Sagt er að Aðfangadagur sé að skella á með brauki og bramli. Það er annars orðið langt síðan maður hefur fengið almennilegt illviðri á Aðfangadag.

IMG 7484Borgarspítalinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Til hamingju með Kindle tölvuna þína. Ég keypti eina slíka síðsumars og er búinn að lesa einhver ósköp af misgóðum bókum í henni síðan. Finnst hún afar hentug þó hún sé „bara“ svarthvít, enda hef ég ekkert að gera með lit í henni til bóklesturs. Hún er líka bara „keyboard“-týpa og kostaði minnir mig ekki nema 99 dollara. Á tilboði.

Gleðileg jól.

Sigurður Hreiðar, 24.12.2011 kl. 13:44

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Já, Sigurður sennilega nýtist hún best til lestrar. Það á ekki að vera erfitt að fá þær bækur á pdf.formati sem maður kærir sig um. Liturinn og Internet samhæfingin er ágætis viðbót samt.

Gleðileg jól.

Sæmundur Bjarnason, 25.12.2011 kl. 00:38

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Gleðilega hátíð Sæmundur, Áslaug og fjölskylda. 

Anna Einarsdóttir, 25.12.2011 kl. 09:48

4 Smámynd: Ragnheiður

Mér finnst voða gaman að sjá myndir af fallegu vinkonu minni, henni Önnu. Nú sé ég hana tvisvar, bæði í mini mynd og alvöru :)

Ragnheiður , 26.12.2011 kl. 03:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband